Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Page 25

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Page 25
Hvað er að segja um sýninguna sem þið vinnið að núna? Þið kallið hana „Stilet og elefant.” — Já, en hún er býsna ólík hin- um. í þremur fyrstu sýningunum vorum við fyrst og fremst að höfða til homma. Svo kom skólasýningin, en nú vendum við okkar kvæði í kross og sýnum kannski meiri hörku en áður. í stað þess að standa á sviðinu og ræða eða sýna stöðu okkar sem utangarðsmenn þá ætlum við núna að nota þessa stöðu okkar til að tala um hvað sem er. Núna finnst okkur mikilvægt að nýta það að við erum öðruvísi, við ætlum að notfæra okkur utan- garðsmennskuna til að gagnrýna og ráðast á ríkjandi gildismat í sam- félaginu. í verkinu lítum við á stöðu okkar sem utangarðsmanna sem styrkleika í stað veikleika og send- um skeyti okkar til hægri og vinstri. Stjúpsystur Öskubusku — Umgjörðina sækjum við annars í ævintýrið um Öskubusku þar sem við förum í hlutverk stjúp- systranna. Þegar hér er komið sögu hefur Öskubuska fengið prinsinn sinn og situr nú í flotta einbýlishús- inu sínu í einu af fínu úthverfunum. Auðvitað erum við stjúpsysturnar öfundsjúkar, okkur langar líka í prinsinn. En smám saman rennur upp fyrir okkur að líkast til höfum við ýmislegt sem Öskubusku skort- ir. Eflaust hefur hún átt sína drauma, en séð þann kost vænstan að gleyma þeim þegar hún fann prinsinn sinn, svo venjuleg og pen sem hún ánnars er, blessunin. Auð- vitað standa stjúpsysturnar veikt að vígi, rétt eins og hommarnir. Þeir eru jú stjúpbörn samfélagsins og fá sömu meðferð og olnbogabörn ævintýranna nema þeir taki málin í sínar hendur og taki hver utan um annan. Hvað geturðu sagt við þá íslensku homma sem kannski dreymir um að gera eitthvað svipað og þið hafið gert? Það er mikilvægast að þið gerið eitthvað í málunum og passið ykkur á að kjafta ekki allt frumkvæði í hel. Þið skuluð hittast í basisgrúppu í heilan vetur, tala um það sem ykkur langar til að koma á fram- færi, reyna að impróvísera og vera opnir fyrir hugmyndum hvers ann- ars. Það er líka nauðsynlegt að ein- hver í hópnum hafi reynslu af leik- rænum spuna. Þið verðið líka að kunna að hlusta hver á annan, allt er þess virði að það sé prófað og kannað. Það er ekki nauðsynlegt að vera sammála um allt, en við fáum aldrei mikilvægar hugmyndir og til- finningar fram nema við séum opnir og leitandi. Að þroskast og breytast Hvað geturðu svo sagt mér um sjálfan þig, Gunnar? Hvar stendur þú eftir þessi fjögur ár? Hefur leik- hópurinn haft áhrif á þitt líf? — Jú, ég er ekki frá því. Það var einmitt um það bil sem fyrsta sýn- ingin okkar komst á fjalirnar að ég kom endanlega úr felum og sneri baki við framapotinu í leikhús- heiminum. Ég var þá einn af þessum ,,ungu og upprennandi sem svo miklar vonir voru bundnar við”. Um sama leyti kynntist ég Henrik sem er núna elskhugi minn og það er kannski engin tilviljun að samband okkar varð að veruleika á þessum tíma. Ég hafði hreinlega lært að segja hug minn og sýna til- finningar. Leikhúsvinnan gerði í upphafi miklar kröfur til mín persónulega eins og ég lýsti fyrir þér og ég finn fyrir þessari kröfu í hvert skipti sem ég færi upp nýja sýningu með ,,Den lette ende”. Og ég furða mig á því að þetta skuli alltaf vera jafn erfitt fyrir mig tilfinningalega. Það sýnir kannski að ég er alltaf að þroskast og breytast. En þó margt hafi breyst í lífi mínu geri ég mér ósköp vel grein fyrir sjálfskúgun minni sem hommi, ég er svo sem ekki laus við hana ennþá. En það er gott að ég skuli koma auga á hana og geta glímt við hana. Þorvaldur Kristinsson 25

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.