Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Side 26
Skilnaðurinn
Smásaga eftir Böðvar Björnsson
Þau eru ófá skiptin sem ég hef upplifað skilnað: sem
betur fer oftast í gegnum kvikmyndir, skáldsögur, leikrit
og ljóð. Þar hef ég orðið vitni að öllum tegundum skiln-
aða: ástvinamissi, óumflýjanlegri skilnaðarstund elsk-
enda, botnlausri angist barna við viðskilnað við foreldra,
syninum að hleypa heimdraganum til að freista gæfunn-
ar útí hinum stóra heimi.
En þrátt fyrir allar þessar upplifanir mínar í heimi
skáldskaparins, og þótt ég hafi í eigin lífi þurft að ganga í
gegnum óumflýjanlegar skilnaðarstundir, þá skýtur
alltaf frumstæðri mynd uppí huga minn þegar ég heyri
orðið skilnaður. Þetta er væmin mynd af manni og konu
að kveðjast á járnbrautarpalli. Hvaðan þessi mynd er
komin og hvernig hún komst inní höfuð mitt er saga útaf
fyrir sig: stutt saga og einföld sem lætur mig ósnortinn.
Hinsvegar er sagan um það hvernig þessi hugsýn mín
afhjúpar sig æ ofaní æ sem draumórakennt bull and-
spænis eigin reynslu, þó nokkrum blaðsíðum lengri, ögn
26