Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Side 30

Samtökin '78 - Úr felum - 01.06.1984, Side 30
Opinber könnun á stöðu lesbsa og homma á íslandi Merkur áfangi náðist í réttindabaráttu okkar lesbía og homma er Norðurlandaráð samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta 1. mars sl. ályktun til ríkisstjórna landanna og norrænu ráð- herranefndarinnar varðandi stöðu lesbía og homma á Norður- löndum. Ályktunina fluttu 11 þingmenn frá Danmörku, Nor- egi, Svíþjóð og Finnlandi, fyrir frumkvæði Norðurlandaráðs lesbía og homma, sem Samtökin ’78 eiga aðild að. í greinargerð flutningsmanna er bent á það, að staða lesbía og homma er ákaflega mismunandi á hinum einstöku Norðurlöndum. Bent er á þær aðgerðir sem átt hafa sér stað í Noregi, Svíþjóð og Dan- mörk, og jafnframt vakin athygli á því, að stjórnvöld á íslandi og í Finnlandi hafa ekkert gert til þess að tryggja full mannréttindi lesbía og homma. Þá er vísað til þess, að markmið með norrænni samvinnu á sviði löggjafar sé það, að borgarar Norðurlanda megi búa við sem lík- asta löggjöf. Eftir Helsingfors- samningum 1962 ber Norðurlanda- þjóðunum að vinna að samræm- ingu einkamála- og refsiréttar. Þá segja flutningsmenn: ,,Við teljum að misrétti í garð samkynhneigðra sé óviðunandi í lýðræðislegu þjóðfélagi og brjóti í bága við grundvallarreglur um borgararéttindi. Við höfum komist að raun um að enn eru viðhorf til stöðu samkynhneigðra í samfélag- inu ákaflega mismunandi milli landanna. Við vekjum athygli á ályktun Evrópuráðsins nr. 924 frá 1. október 1981, þar sem hvatt er til þess að samkynhneigðir njóti sömu réttinda og gagnkynhneigðir.“ Greinar ályktunarinnar eru tvær. Önnur er til norrænu ráðherra- nefndarinnar, að hún láti fara fram könnun á stöðu lesbía og homma á Norðurlöndum, hverju um sig, svo og að hún leiti leiða til þess að afnema löggjöf er felur í sér misrétti gagnvart samkynhneigðum, og að setja lög er tryggi jafnrétti lesbía og homma og vörn þeirra gegn mis- rétti. Hinni greininni er beint til rík- isstjórna landanna, að þær vinni saman að því innan stofnana Sameinuðu þjóðanna og annars staðar á alþjóðlegum vettvangi, að tryggja vörn gegn misrétti gagnvart samkynhneigðum. Flutningsmenn eru: Danirnir Bernhardt Tastesen (framsögumað- ur) og Svend Jakobsen (báðir sósíaldemókratar), Norðmennirnir Gro Harlem Brundtland, Astrid Murberg Martinsen (báðar úr Verkamannaflokknum), Margrete Auken (úr Sósíalska þjóðarflokkn- um, Margit Hansen-Krone og Gun- vor Schnitler (báðar úr Hægri- flokknum), Svíarnir Lennart Anderson og Grethe Lundblad (bæði sósialdemókratar) og Finn- arnir Terhi Nieminen-Mákynen (úr Miðflokknum/Frjálslynda þjóðar- flokknum) og Sten Söderström (úr Kommúnistaflokknum). Þegar unnið var að undirbúningi ályktunarinnar áttu þessir íslenskir þingmenn sæti í Norðurlandaráði: Eiður Guðnason úr Alþýðuflokki, Halldór Ásgrímsson og Páll Péturs- son úr Framsóknarflokki, Pétur Sigurðsson og Sverrir Hermannsson úr Sjálfstæðisflokki, og Stefán Jónsson úr Alþýðubandalagi. Norðurlandaráð lesbía og homma, NRH, gekkst fyrir kynningarfundi um málefni þetta þegar nefndir Norðurlandaráðs komu saman til vinnufunda í Mariehamn á Álands- eyjum í nóvember 1982. Samtökin ’78 rituðu öllum ofangreindum íslenskum þingmönnum og varamönnum þeirra boðsbréf til fundarins, en Stefán Jónsson sótti hann einn íslendinga. Þar upplýsti hann aðra fundarmenn um það, að á íslandi viðgengist ekkert misrétti gagnvart samkynhneigðum, og að hann þekkti meira að segja tvo homma sem hefðu það bara ágætt. Gangur tillögu til Norðurlanda- ráðs er sá, að hana verður að leggja fram fyrir þing, þingið vísar henni til nefndar, nefndin leitar umsagna og skilar áliti til næsta þings. Tillag- an fór til meðferðar hjá dómsmála- nefnd, en þar tók Friðjón Þórðar- son sæti íslendinga á síðastliðnu ári. Á íslandi var umsagna leitað hjá dómsmálaráðuneytinu og Sam- tökunum ’78. Dómsmálaráðuneytið svaraði með því að upplýsa, að þar væri unnið að endurskoðun skírlíf- isbrotakafla hegningarlaga, og að með henni hyrfi öll kyngreining úr ákvæðum laganna. Samtökin ’78 skýrðu í umsögn sinni stöðu lesbía og homma á íslandi, þar var gerð grein fyrir lagalegu, menningarlegu og félagslegu misrétti gagnvart lesbíum og hommum á íslandi, svo og einstökum nýlegum dæmum um afstöðu stjórnvalda til málefna les- bía og homma. Allir umsagnaraðil- ar hvöttu til samþykktar tillögunn- ar, ellegar tóku ekki afstöðu til hennar, svo sem dómsmálaráðu- neytið íslenska. Einungis ein um- sögn barst þar sem tillagan var lýst óþörf og latt til samþykkis. Það var frá dómsmálaráðuneyti Dana, en því ræður ,,kristilegur“ demókrati. 30

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.