Fréttablaðið - 22.10.2020, Síða 4

Fréttablaðið - 22.10.2020, Síða 4
Ef þessar eignir væru teknar inn í samstæðureikning á kostn- aðarverði, eru áhrifin því um 52 milljarðar króna til lækkunar. Einar S. Hálfdánarson, lögmaður og löggiltur endurskoðandi Samkvæmt samstæðu- reikningi Reykjavíkur- borgar fyrir árið 2019 var eiginfjárhlutfall borgarinn- ar um 50 prósent og eigið fé um 344 milljarðar króna. UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 FORSALA Á NÝJUM PLUG-IN HYBRID JEEP RENEGADE OG COMPASS *Verð miðað við gengi USD 132, svartur Compass, hvítur Renegade. ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF JEEP COMPASS LIMITED 4X4 5.999.000* PLUG-IN-HYBRIDPLUG-IN-HYBRIDJEEP RENEGADE TRAILHAWK 4X4 5.499.000* ÓTRÚLEGT FORSÖLUVERÐ Á BÍLUM HLÖÐNUM LÚXUSBÚNAÐI FYRSTA SENDING UPPSELD! ÖNNUR SENDING VÆNTANLEG Í NÓVEMBER REYK JAVÍK Eigið fé samstæðu- reiknings Reykjavíkurborgar er hugsanlega ofmetið um tugi millj- arða króna, ef marka má álit reikn- ingsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga um hvernig taka eigi reikningsskil félaga í eigu sveitar- félaga inn í samstæðureikning. Til- efni álits nefndarinnar eru innsend erindi Einars S. Hálfdánarsonar, lögmanns og Vigdísar Hauksdóttur, borgarfulltrúa. Erindin sneru að því hvort það stæðist lög að Reykja- víkurborg skilgreini fasteignir sem leigðar eru út til einstaklinga á grundvelli laga um félagsþjónustu, sem fjárfestingaeignir. Að sama skapi var nefndin spurð að því hvort Reykjavíkurborg væri heim- ilt að færa ársreikninga Félagsbú- staða óbreytta inn í samantekin reikningsskil samstæðureiknings borgarinnar. Forsaga málsins er sú að Einar S. Hálfdánarson, lögmaður og löggilt- ur endurskoðandi, sem þá átti sæti í endurskoðunarnefnd borgarráðs, sendi borgarráði bréf í mars á þessu ári þar sem efasemdum var lýst um hvernig reikningsskil Félagsbústaða væru meðhöndluð í samstæðu- reikningi Reykjavíkur. Félagsbú- staðir væru gerðir upp samkvæmt alþjóðlegum reikningsstöðlum, IFRS. Í bréfi sínu bendir Einar á að Félagsbústaðir séu ekki reknir í hagnaðarskyni og slík félög í öðrum EES-löndum noti ekki IFRS-staðla. Fasteignir Félagsbústaða væru þannig gerðar upp á gangvirði, sem þýddi að árlega hækkaði virði eigna félagsins í takt við þróun á markaði. Einar sagðist þá telja eðlilegra að eignirnar yrðu metnar á afskrifuðu kostnaðarverði. Félagsbústaðir hafa umsjón með rekstri félagslegra leiguíbúða fyrir einstaklinga og fjölskyldur undir ákveðnum tekju- mörkum, og einnig fyrir aldraða og fatlaða. Samkvæmt lögum um ársreikn- inga ber að nota sömu matsað- ferðir við gerð samstæðureikninga og móðurfélagið notast við í árs- reikningi sínum, sem er í þessu tilfelli Reykjavíkurborg. „Ef félag sem færa skal í B-hluta sveitar- félags beitir öðrum matsaðferðum í eigin ársreikningi en samstæðu- reikningur sveitarfélagsins byggir á, ber að vinna ný reikningsskil fyrir félagið, þar sem matsaðferðir eru í samræmi við reikningsskil samstæðureikningsins,“ segir áliti nefndarinnar. Það er þó sérstaklega tekið fram í álitinu að Reykjavíkurborg sé heimilt, en ekki skylt, að taka árs- reikning Félagsbústaða óbreyttan inn í samstæðureikning borgar- innar. Það er þó háð þeirri for- sendu að starfsemi Félagsbústaða sé skilgreind á sviði fjárfestinga í fjárfestingafasteignum. Í lögum um ársreikninga er hugtakið fjárfest- ingaeign skilgreind sem „fasteign, land, bygging eða hluti byggingar, sem ætluð er til öflunar tekna, svo sem til útleigu eða í öðru ágóða- skyni, en ekki til notkunar í rekstri félags við framleiðslu, vörslu vöru- birgða, þjónustu í rekstri félagsins, í stjórnunarlegum tilgangi eða til sölu í hefðbundnum rekstrartil- gangi.“ Sé litið á ársreikning Félagsbú- staða fyrir árið 2019, kemur fram að kostnaðarverð fjárfestingaeigna félagsins var tæplega 40 milljarðar króna við lok þess árs. Gangvirði þeirra er hins vegar ríf lega 92 milljarðar króna. „Það skiptir ekki máli hvort fasteignirnar eru taldar vera fjárfestingafasteignir af stjórn Félagsbústaða, heldur hver til- gangur borgarinnar er með því að eiga félagslegar íbúðir. Matshækkun fjárfestingafasteigna Félagsbústaða nam 52 milljörðum við árslok 2019. Ef þessar eignir væru teknar inn í samstæðureikning á kostnaðar- verði, eru áhrifin því um 52 millj- arðar króna til lækkunar á eigin fé samstæðureiknings Reykjavíkur- borgar,“ segir Einar í samtali við Fréttablaðið. Samkvæmt samstæðureikningi Reykjavíkurborgar fyrir árið 2019 var eiginfjárhlutfall borgarinnar um 50 prósent og eigið fé um 344 milljarðar króna. Væru eignir Félagsbústaða færðar á kostnaðar- verði, eins og venjan er við bók- færslu fasteigna innan A-hluta borgarsjóðs, myndi eiginfjárhlutfall borgarinnar því lækka í ríf lega 42 prósent. thg@frettabladid.is Eigið fé Reykjavíkurborgar mögulega stórlega ofmetið Reikningsskila- og upplýsinganefnd sveitarfélaga telur að fasteignir Félagsbústaða eigi ekki að vera færðar á gangvirði inn í samstæðureikning borgarinnar nema Félagsbústaðir séu flokkaðir sem fjárfest- ingaeignir sem eigi að skila hagnaði. Fasteignir innan A-hluta eru bókfærðar á kostnaðarverði. Fasteignir Félagsbústaða eru bókfærðar öðruvísi en fasteignir innan A-hluta borgarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK ÁRÉTTING Hljóðgæði í Hofi Vegna fréttar blaðsins í gær um hljóðgæði í Hofi var því ranglega haldið fram að að lélegt hljóð sé í Hofi og Samkomuhúsinu. Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar, segir að það sé búið að vinna markvisst að því undanfarin ár að bæta hljóðgæðin í Hofi og sérstaklega Samkomuhúsinu. Menningarfélagið sé í góðu samstarfi við Akureyrarbæ um að endurnýja búnaðinn í Hofi þannig að hann uppfylli ströngustu gæðakröfur. Skilja mátti fréttina í gær svo að nánast ekkert heyrðist, en það er ekki rétt. S TJ Ó R N M Á L  Ung l iða h rey f i ng Alþýðusambandsins, ASÍ-UNG, styður ekki frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barna- málaráðherra, um breytt fyrirkomu- lag fæðingarorlofs, ólíkt ASÍ. „Nú liggur fyrir frumvarp um breytingu á fæðingarorlofslögum. ASÍ hefur komið að vinnu við þetta frumvarp og styður það, en það gerir ASÍ-UNG ekki,“ sagði Ástþór Jón Ragnheiðar- son, varaformaður ASÍ-UNG, í ræðu sinni þegar 44. þing ASÍ fór fram. Ástþór sagði að raddir unga fólks- ins innan ASÍ hefðu mátt vera sýni- legri en það ylti líka á því hve sýni- leg og áhrifamikil samtökin leyfðu þeim að vera. Í svo stóru máli sem fæðingarorlofið er væri slæmt að unga fólkið innan ASÍ fengi ekki að taka þátt. „Það vill nefnilega svo til að þó svo að við eigum að sjá til þess að málefni ungs fólks séu ávallt á dagskrá, fáum við ekki alltaf að taka þátt í þeim málum, sem er ákaflega slæmt, sérstaklega þegar um er að ræða málefni af þessari stærðar- gráðu,“ sagði Ástþór. „Ég held að ekki sé hægt að finna grímulausara dæmi um skort á sam- starfi og samráði heldur en akkúrat í þessari vinnu. Málefni sem varðar ungt fólk, fyrir ungt fólk, en án aðkomu ungs fólks.“ Sagði hann að með stuðningi sínum væri ASÍ að styðja við for- réttindahópa. „Við eigum að vera málsvari jaðarsettra hópa, en ekki forréttindahópa.“ – bb ASÍ-UNG ósammála ASÍ Ástþór Jón Ragnheiðarson, varaformaður ASÍ-UNG 2 2 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.