Fréttablaðið - 30.10.2020, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 30.10.2020, Blaðsíða 28
ÁTVR hefur frá upphafi unnið markvisst að því að innleiða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni í ferla fyrirtækisins, en sex markmiðanna falla sérstaklega vel að áherslum ÁTVR. Þau eru Heilsa og vellíðan (3), Jafnrétti kynjanna (5), Góð atvinna og hagvöxtur (8), Ábyrg neysla og framleiðsla (12), Aðgerðir í loftlagsmálum (13) og Samvinna um markmiðin (17),“ upplýsir Sig- rún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðar- forstjóri ÁTVR. Markmiðið Heilsa og vel- líðan birtist meðal annars í því að stöðugt er unnið að því að vinnu- staðurinn sé heilsueflandi. Öryggi og heilsa starfsfólks eru ávallt for- gangsverkefni. „Við framfylgjum stefnu stjórn- valda um bætta lýðheilsu og samfélagslega ábyrgð í áfengis- og tóbaksmálum, í sátt við samfélagið. Hornsteinninn í samfélagsábyrgð ÁTVR er ábyrg sala áfengis sem endurspeglast meðal annars í því að engar söluhvetjandi aðgerðir eru í starfseminni, heldur er megináherslan á góða og ábyrga þjónustu. Önnur mikilvæg áhersla í samfélagsábyrgð er skilríkjaeftirlit til að tryggja að allir viðskipta- vinir hafi náð áfengiskaupaaldri,“ útskýrir Sigrún Ósk. Með 5. heimsmarkmiði SÞ, Jafn- rétti kynjanna, njóti allt starfsfólk sömu virðingar og hafi jafna stöðu innan fyrirtækisins. Jafnlauna- vottun er viðhaldið og unnið er eftir jafnréttisáætlun fyrirtækisins. „Áttunda heimsmarkmiðið er Góð atvinna og hagvöxtur. Þar leitumst við eftir að vinnustaður- inn sé eftirsóknarverður þar sem samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð. Við leggjum áherslu á að starfsfólk geti vaxið í starfi og aflað sér þekkingar sem stuðlar að starfsánægju og framúr- skarandi þjónustu. Stefnt er að því að söluvörur Vínbúðanna séu fram- leiddar samkvæmt alþjóðlegum samþykktum og siðareglum og við aðstæður sem eru góðar, bæði fyrir starfsfólk og umhverfið.“ Góð norræn samvinna Með því að framfylgja 12. heims- markmiði SÞ, Ábyrgri neyslu og framleiðslu, beinir ÁTVR sjónum sínum að vöruumbúðum. Á vef Vínbúðanna má meðal annars sjá útreikning á áætluðu kolefnisfót- spori allra áfengisumbúða. Lögð er áhersla á sjálfbært efnisval og end- urvinnslu í Vínbúðunum. ÁTVR hefur sett sér stefnu í umhverfis- málum þar sem markvisst er unnið að því að ná 98 prósent endur- vinnsluhlutfalli árið 2030. Í dag er stefnan að ná 94 prósent hlutfalli. Þrettánda heimsmarkmið SÞ er Aðgerðir í loftlagsmálum og segir Sigrún Ósk að loftlagsmarkmið ÁTVR til ársins 2030 sé 40 prósent samdráttur á útblæstri gróðurhúsa- lofttegunda, miðað við árið 2016. „Við höfum orkusparnað í fyrir- rúmi ásamt því að draga úr losun koltvísýrings (CO2). Sjónum er beint að orkunotkun fyrirtækisins og áhersla lögð á endurnýjanlega orku í öllu framleiðsluferlinu, ásamt sjálfbærum ræktunarað- gerðum, til dæmis bindingu kol- efnis.“ Samvinna um markmiðin, er 17. heimsmarkmiðið sem ÁTVR fylgir. „ÁTVR styrkir samvinnu við ýmsa aðila, jafnt innanlands og á alþjóða vettvangi, í því skyni að ná markmiðum. Við leggjum áherslu á norræna samvinnu, samstarf við alþjóðleg samtök auk samtaka innan iðnaðarins, vottunaraðila og frjáls félagasamtök,“ útskýrir Sigrún Ósk. Heimsmarkmiðin áskorun ÁTVR vinnur með systurfyrir- tækjum sínum á Norðurlöndunum og eru heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna notuð sem rammi utan um sameiginleg verkefni. Nor- rænu einkasölurnar eru Alko í Finnlandi, Systembolaget í Sví- þjóð, Vinmonopolet í Noregi, Rús- drekkasøla Landsins í Færeyjum og Vínbúðin. „Nú er til að mynda unnið í vatni og mannréttindum í aðfangakeðjunni og þar áður var unnið í orkunotkun og kolefnis- spori umbúða sem tengist heims- markmiði um aðgerðir í loftlags- málum. Á næsta ári verður unnið með líffræðilegan fjölbreytileika,“ upplýsir Sigrún Ósk. „Núverandi verkefni felst í að kanna hvaða áhrif vatnsnotkun við áfengisframleiðslu hefur í framleiðslulöndunum og vekja athygli á hugsanlegum neikvæð- um áhrifum í aðfangakeðjunni sem vatnsnotkun í framleiðslu afurða getur haft á mannrétt- indi.“ Í næsta mánuði verður svo haldin ráðstefna í netheimum um vatns- og mannréttindi þar sem ný skýrsla og helstu áskoranir til úrbóta verða kynntar. „Að vinna í samræmi við heims- markmið Sameinuðu þjóðanna er áskorun sem snertir alla þætti í rekstri. Mikilvægt er að setja sér raunhæf en metnaðarfull mark- mið, þannig getum við stuðla að betra samfélagi,“ segir Sigrún Ósk. Sjá nánar á vinbudin.is Raunhæf en metnaðarfull markmið ÁTVR hefur frá árinu 2016 unnið að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálf- bæra þróun í ferla fyrirtækisins og góður árangur náðst við að ná settum markmiðum. Sigrún Ósk við nýja hleðslustöð við höfuðstöðvar ÁTVR. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFEÁN Heimsmarkmiðin í Kópavogi F y r i r t æ k i o g s t o f n a n i r i n n l e i ð a h e i m s m a r k m i ð S a m e i n u ð u þ j ó ð a n n a u m s j á l f b æ r a þ r ó u n Kópavogsbær vinnur markvisst að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í starfsemi bæjarfélagsins. Markaðsstofa Kópavogs hvetur fyrirtæki og stofnanir í Kópavogi til að undirrita viljayfirlýsingu um innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og sýna þannig samfélagslega ábyrgð í verki. Rekstraraðilar eru hvattir til að máta heimsmarkmiðin við sinn rekstur og innleiða þau markmið sem best passa hverjum í stefnu sína og daglegan rekstur. Gerum Kópavog, Ísland og heiminn allan að betri stað til að búa og starfa í. Nánari upplýsingar á www.markadsstofakopavogs.is/heimsmarkmidin 10 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RHEIMSMARKMIÐ SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.