Fréttablaðið - 03.11.2020, Qupperneq 4
Okkur er ekki stætt
á því að
taka við þess-
um peningum.
Einar Hermanns-
son, formaður SÁÁ
TAKMARKAÐ MAGN
BÍLA Í BOÐI
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
JEEP ® CHEROKEE
Helsti staðalbúnaður Jeep® Cherokee Longitude Luxury:
• 2.2 lítra 195 hestafla díselvél, 9 gíra sjálfskipting
• Jeep Active Drive I Select Terrain
með 4 drifstillingum,
• Rafdrifin snertilaus opnun á afturhlera
• Leðurinnrétting
• 8,4” upplýsinga- og snertiskjár
• Íslenskt leiðsögukerfi
• Bakkmyndavél með bílastæðaaðstoð
• Hágæða Alpine hljómflutningskerfi með
bassaboxi
• Apple & Android Car Play
• Bluetooth til að streyma tónlist og síma
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
FRÁBÆRT VERÐ: 7.990.000 KR.
ÖFLUG DÍSELVÉL - 9 GÍRA SJÁLFSKIPTING
SPARNEYTINN - HLAÐINN LÚXUSBÚNAÐI
HEILBRIGÐISMÁL Framkvæmda-
stjórn SÁÁ hefur ákveðið einróma
að hætta þátttöku sinni í rekstri
spilakassa og að slíta tengsl sín við
Íslandsspil.
„Í ár er gert ráð fyrir um 40 millj-
ónum króna og á næsta ári er gert
ráð fyrir í kringum 34 milljónum
sem við myndum fá út úr Íslands-
spilum,“ sagði Einar Hermannsson,
formaður SÁÁ, í viðtali í 21 á Hring-
braut í gærkvöldi.
Að sögn Einars fara tekjurnar úr
kössunum stöðugt minnkandi þar
sem áhættuspil hefur færst í aukn-
um mæli á internetið.
„Upphæðin skiptir kannski ekki
öllu máli. Við teljum þetta bara
prinsippmál, okkur er ekki stætt á
því að taka við þessum peningum
og margir hafa núna haft samband
við okkur og lýst ánægju sinni með
þetta skref,“ sagði Einar. Algjörlega
óvíst sé hvernig bæta eigi tekju-
tapið.
SÁÁ rekur Íslandsspil ásamt
Landsbjörgu og Rauða krossinum
og eiga samtökin 9,5 prósenta
eignarhlut.
Einar sagði í þættinum á Hring-
braut að viðræður væru hafnar um
að samtökin gengju út úr Íslands-
spilum og þau mæti skilningi. Fjöl-
menn aðalstjórn SÁÁ eigi síðasta
orðið, en þar séu skoðanir á sama
veg og í framkvæmdastjórninni. – lb
SÁÁ verður af tugmilljónum króna við að hætta í spilakössunum
COVID-19 Skólahald hefst að nýju í
dag með breyttum áherslum vegna
hertra takmarkana á samkomum
vegna kórónaveirufaraldursins.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra staðfesti í gær breytingu á
reglugerð um samkomutakmark-
anir og þurfa börn í 1.-4. bekk, fædd
2011 eða síðar, ekki að bera grímu.
Börn fædd fyrir árið 2011 þurfa að
bera grímu sé ekki hægt að tryggja
tveggja metra regluna, þetta á meðal
annars við í skólum, almennings-
samgöngum og í verslunum.
Síðustu daga hefur verið uppi
um ræða um óánægju kennara
sem bein ist að því að nemendur í
1.-4. bekk séu teknir út fyrir sviga
þegar kemur að hertum reglum
um samkomutakmarkanir. Ómar
Örn Magnússon, kennari í Haga-
skóla, tel ur afar mikilvægt að halda
skólum opnum með sem minnstum
skerðingum og segist hann telja að
flestir sem starfi innan menntakerf-
isins séu tilbúnir að sinna störfum
sínum með þeim takmörkunum
sem í gildi séu.
„Hlutverk skólans er svo marg-
þætt og snýr ekki bara að því að
fræða nemendur. Það er mikilvægt
að nemendur hafi rútínu,“ segir
Ómar.
„Skólinn er samfélag fyrir nem-
endur og mikilvægur griðastaður
fyrir marga. Það búa ekki allir
við sömu heimilisaðstæður og ég
held að það hafi aldrei verið mikil-
vægara en nú að líta á skólann sem
jöfnunartækið sem hann er,“ bætir
Ómar við.
Hákon Sigursteinsson, fram-
k væmd a st jór i B a r naver nd a r
Reykjavíkur, tekur undir orð Ómars
og segir afstöðu Barnaverndar
skýra. Afar mikilvægt sé að hafa
bæði leik- og grunnskóla opna.
„Börn þarfnast rútínu og félags-
legrar samveru með öðrum börnum.
Sérstaklega á það við um börn sem
búa við erfiðar félagslegar aðstæður
og vanrækslu, svo sem ofbeldi eða
neyslu foreldra. Þar er skólinn oft
athvarf barnanna,“ segir Hákon.
Þá kveðst Hákon bera traust til
sóttavarnalæknis og tillagna hans,
en einnig til skólastjórnenda og
kennara og hæfni þeirra til að skipu-
leggja umhverfi barnanna með til-
liti til sóttvarna.
Segir Hákon greinilegt að þeir sem
starfi í umhverfi barnanna séu vel
vakandi á verðinum.
„Tilkynningar til Barnaverndar
Reykjavíkur hafa aldrei verið fleiri
en nú, fara líklega yfir 5.200 tilkynn-
ingar yfir árið og stefnir í um tíu pró-
senta aukningu frá fyrra ári,“ segir
Hákon.
Álfheiður Guðmundsdóttir, for-
maður fagdeildar sálfræðinga við
skóla, segir líkt og Hákon og Ómar
að mikilvægt sé að halda uppi skóla-
haldi með sem minnstum skerð-
ingum. Mikilvægt sé að raska lífi
barnanna sem minnst.
Það er mikilvægt að börn hafi
sem mestan stöðugleika, því það
veitir þeim öryggi að vita hvað er
að fara að gerast á morgun,“ segir
Álfheiður.
Að sögn Álfheiðar spila heimilis-
aðstæður stóran þátt í lífi barna á
tímum sem þessum og að ekki séu
allir foreldrar jafn vel í stakk búnir
til að hjálpa börnum sínum við
heimanám og fjarkennslu.
Álf heiður segist hafa upplifað
það að vanlíðan barna sem glími
við einkenni kvíða eða hafi staðið á
höllum fæti félagslega hafi í sumum
tilfellum aukist en að flestum börn-
um vegni vel.
„Flest börn hafa sýnt mikla seiglu
og góða aðlögunarfærni í þessum
sérstöku aðstæðum,“ segir Álfheið-
ur. birnadrofn@frettabladid.is
Börn eiga griðastað í skólum
Kennari í Hagaskóla segir mikilvægt að halda skólum opnum með sem minnstum skerðingum og fram-
kvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur tekur undir. Sálfræðingur segir röskun valda börnum óöryggi.
Grímuskylda er í skólum fyrir börn fædd 2010 og fyrr þar sem ekki er hægt að halda fjarlægð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Flest börn hafa sýnt
mikla seiglu og
góða aðlögunarfærni í
þessum sérstöku aðstæðum.
Álfheiður Guð-
mundsdóttir, for-
maður fagdeildar
sálfræðinga við
skóla
ÍSLAND Íbúafjöldi á Íslandi var
364.134 þann 1. janúar og fjölgaði
um tvö prósent samkvæmt tilkynn-
ingu Hagstofunnar. Árið 2019 fædd-
ust 4.452 börn en 2.275 manns létust.
Alls fluttu um sjö þúsund manns
frá landinu en tólf þúsund til lands-
ins. Brottfluttir íslenskir ríkisborg-
arar umfram aðflutta, voru 175 árið
2019.
Innflytjendur voru 55.354. Þann
1. janúar rufu Pólverjar 20 þúsund
manna múrinn. Þeir telja nú 20.477,
sem samsvarar 37 prósentum allra
innflytjenda. Annarri kynslóð inn-
f lytjenda fjölgaði milli ára, voru
5.684 í ár, samanborið við 5.263 í
fyrra.
Fjölmennasta sveitarfélagið var
Reykjavík með 131.136 íbúa. Það
fámennasta var Árneshreppur, þar
sem bjuggu 43 íbúar. Árið 2019 fækk-
aði fólki í fjórtán sveitarfélögum en
fjölgun átti sér stað á öllum land-
svæðunum átta.
Fólki á höfuðborgarsvæðinu
fjölgaði árið 2019, en 1. janúar 2020
bjuggu þar 4.803 fleiri en árið áður.
– bb
Yfir 130 þúsund
búa í Reykjavík
Í ársbyrjun bjuggu alls 21.633 hér á
landi í dreifbýli. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
43
voru skráðir um síðustu ára-
mót í Árneshreppi, fámenn-
asta sveitarfélagi landsins,
3 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð