Fréttablaðið - 03.11.2020, Side 6
Við tókum þá
ákvörðun strax í
upphafi að halda í allan
mannskapinn og höfum
ekki sagt neinum upp.
Guðmundur M.
Kristjánsson,
hafnarstjóri á
Ísafirði
Fáðu faglega aðstoð lyafræðings
Komdu eða pantaðu tíma í síma
517 5500 eða sendu póst á
lyfsalinn@lyfsalinn.is
Þekkirðu lyn þín?
GLÆSIBÆ
OPIÐ 08:30-18:00 mán.- fös.
Sími 517 5500 / lyfsalinn@lyfsalinn.is
VESTURLANDSVEGI
OPIÐ 10:00-22:00 alla daga
Sími 516 5500 / vesturlandsvegur@lyfsalinn.is
URÐARHVARFI
OPIÐ 08:30-18:00 mán.- fös.
Sími 516 5505 / urdarhvarf@lyfsalinn.is
og þér líður betur
www.lyfsalinn.is
SKIPAUMFERÐ Samkvæmt skýrslu
Siglingaöryggisstofnunar Evrópu,
European Maritime Safety Agency,
hefur skipaumferð skemmtiferða-
skipa og farþegaflutninga minnkað
um íslenskar hafnir um 40 prósent
frá því að COVID-faraldurinn kom
upp.
Faraldurinn hefur haft mest áhrif
á hafnir í Króatíu, þar sem hrunið
telur um 70 prósent, á Íslandi, Sló-
veníu og Spáni.
Valur Rafn Halldórsson hjá
Hafna sambandi Íslands segir að
COVID hafi vissulega haft áhrif
á hafnastarfsemi enda haf i fá
skemmtiferðaskip lagst hér að höfn.
„Stóra höggið kom í sumar enda
margar hafnir sem treysta á komu
þeirra. Innflutningur hefur að mínu
viti ekki minnkað þó hann hafi taf-
ist. Sjávarútvegurinn hefur haldið
sínu striki,“ segir Valur.
Að sögn Vals kemur innan tíðar
skýrsla um fjárhagsstöðu íslenskra
hafna sem byggir á ársreikningum
2019 með sérkafla um áhrif COVID.
Um 150 skemmtiferðaskip höfðu
bókað sig til Ísafjarðar en aðeins
nokkrir tugir skipa lögðust að
bryggju. Tíminn sé nýttur til fram-
kvæmda og þó tíðin sé slæm er ekki
búið að segja neinum upp.
„Það koma um 50 prósent af
okkar tekjum í gegnum skemmti-
ferðaskipin,“ segir Guðmundur M.
Kristjánsson, hafnarstjóri á Ísafirði.
Hann er ekki sérlega bjartsýnn á
að skemmtiferðaskip leggist aftur
að bryggju fyrr en bóluefni gegn
veirunni verði komið.
„Við erum að þjónusta íslenskan
sjávarútveg og f lutningar og land-
anir eru í ágætu horfi. Við tókum þá
ákvörðun strax í upphafi að halda
í allan mannskapinn og höfum
ekki sagt neinum upp,“ segir Guð-
mundur. Stórframkvæmdir séu
fram undan á Ísafirði.
„Við erum að nýta tímann og
byggja upp. Við erum að fara að
lengja skemmtiferðaskipakantinn
þannig að þá getum við tekið á
móti öllum skipum. Stærstu skipin
hafa þurft að liggja úti á akkeri hjá
okkur,“ segir Guðmundur.
Framkvæmdin á að auka fjöl-
breytni og þjónustu við nýtingu
hafnarinnar sem og auka tekjur
hennar, segir í frummatsskýrslu
Verkís. Lengja eigi kantinn um allt
að 300 metra og auka dýpi við bakk-
ann í allt að 11 metra.
benediktboas@frettabladid.is
Tekjufall hjá höfnum vegna
fjarveru skemmtiferðaskipa
Hafnir Íslands fara ekki varhluta af COVID-faraldrinum. Samkvæmt skýrslu Siglingaöryggisstofnunar
Evrópu hafa tekjur vegna skemmtiferðaskipa minnkað um 40 prósent. Um 150 skip höfðu boðað komu
sína til Ísafjarðar í sumar en aðeins nokkrir tugir komu. Tíminn hefur verið nýttur til framkvæmda.
Skemmtiferðaskip leggst að Ísafjarðarhöfn forðum daga. Stór skip hafa þurft að bíða með akkerin niðri en miklar
framkvæmdir eru fyrirhugaðar þannig að öll skip geta lagst að bryggju innan tíðar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
COVID-áhrif á ýmsar
hafnir í Evrópu
n Króatía -69 prósent
n Ísland -39 prósent
n Spánn -30 prósent
n Slóvenía -29 prósent
COVID-19 Valgerður Sigurðardóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
vill að Reykjavíkurborg geri úttekt
á stöðu geðheilbrigðismála hjá borg
inni vegna kórónaveirunnar. Síðan
verði unnin aðgerðaáætlun sem
fylgt verði eftir.
Í greinargerð með tillögu frá Val-
gerði kemur fram að vísbendingar
séu um að kórónaveirufaraldurinn
bitni illa á viðkvæmum hópum.
Bráðabirgðatölur frá Ríkislög-
reglustjóra vegna sjálfsvíga, bendi
til þess að staða geðheilbrigðismála
sé þung. – bþ
Úttekt á stöðu
geðheilbrigðis
Valgerður
Sigurðardóttir,
borgarfulltrúi
REYKJAVÍK Borgarfulltrúar minni-
hlutans vilja skýrari reglur um
úthlutanir styrkja úr Miðborgar-
sjóði og jafnvel leggja fyrirkomu-
lagið af.
Borgarráð úthlutaði á dögunum
20 milljónum króna úr Miðborgar-
sjóði til ýmissa verkefna. Alls bárust
106 umsóknir samtals, upp á 159
milljónir króna. Miðborgarsjóður
hefur starfað frá árinu 2017.
Fulltrúar meirihlutans í borgar-
ráði fögnuðu fjölda umsókna, sem
séu til marks um mikla grósku í
menningarlífi borgarinnar.
Fulltrúar minnihlutans voru ekki
á sama máli. Borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisf lokksins sögðu að leggja
þyrfti áherslu á gagnsæi við útdeil-
inguna og tryggja að reglur um
úthlutun væru skýrar. Undir þetta
tók Vigdís Hauksdóttir, borgar-
fulltrúi Miðflokksins, sem sagði að
leggja þyrfti kerfið sem fyrst af. – bb
Vilja skýrar
sjóðsreglur
Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi.
N ÁT T Ú R U VÁ F lut n i ng a sk ipið
Francisca missti 33 gáma útbyrðis
á laugardag í miklu aftakaveðri við
Skotland á leið sinni frá Straums-
víkurhöfn til Rotterdam. Skipið
er í eigu hollenska skipafélagsins
Longship B.V. í Groningen, en siglir
fyrir ThorShip á Íslandi og álverið
Rio Tinto.
Samkvæmt Bjarna Hjaltasyni,
sem starfar í sölu og ráðgjöf hjá
ThorShip, urðu blessunarlega engin
slys á fólki. „Það skiptir mestu máli,“
segir hann. Áhöfnin er erlend og er
henni stýrt af hollenska félaginu.
Einnig að gámarnir sem fóru í
sjóinn hafi verið tómir og álið sjálft
sé geymt niðri í lestinni. Efstu gám-
arnir í skipunum eru tómir vegna
þess að innf lutningur er meiri til
landsins en útflutningur.
„Það á eftir að koma í ljós. Við
erum að vinna í þessu núna og
skoða hvert tjónið er. Það er alltaf
eitthvað tjón í þessu,“ segir Bjarni.
Allur gangur sé á því hvort farmur
sé tryggður í sjóferðum milli landa.
Í gær var skipið enn á ferð við
norðau st u r st rönd Skot la nd s,
sigldi fram og til baka til að reyna
að forðast storminn, sem eru leifar
fellibylsins Zetu. Dráttarskip hefur
siglt nálægt Franciscu til varúðar.
„Þetta er eitthvað sem getur gerst
í siglingum,“ segir hann. „Bless-
unarlega höfum við verið laus við
þetta hingað til. Það hefur augljós-
lega verið mjög slæmt veður þarna.“
– khg
Tugir gáma útbyrðis í miklu aftakaveðri á leið frá Straumsvík
Francisca flytur ál frá Íslandi til Rot-
terdam. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
3 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð