Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Qupperneq 2
Fugl í búri
Það er myrkur og það er frost. Svarthöfði situr í eldhúsinu og horfir á
raka safnast saman á eldhús-
rúðunni og breytast í poll.
Hann veit að hann ætti að
opna gluggann og lofta út, en
til hvers? Hvers vegna ætti
loftið hér inni að fá að verða
ferskara heldur en loftið í
samfélaginu í dag?
Við erum öll lokuð inni eins
og þessi raki. Samfélagið
frosið, horfurnar myrkur.
Í nótt fékk Svarthöfði mar-
tröð. Þórólfur Guðnason var
að elta Svarthöfða á Mýrdals-
sandi með sína ísköldu hlekki.
Vildi hann hafa bíllyklana af
Svarthöfða svo að Svarthöfði
væri enn meira innilokaður í
lífinu.
Svarthöfði hrökk upp með
andfælum og þurfti í snatri að
þurrka burt eitt eilífðar smá-
tár áður en frúin sá til hans.
Bankinn er að hækka vexti.
Óvissa á vinnumarkaði held-
ur mörgum andvaka. Ofan
á þetta er farið að dimma
og frysta. Ísköldu hlekkir
veirunnar hafa tjóðrað okkur
föst. Og það er ekkert spenn-
andi í sjónvarpinu.
Það er auðvelt að liggja
undir sæng og velta sér upp
úr sjálfsvorkunninni. Allt
sem við áður höfðum sem
hefur verið tekið af okkur.
Frelsið fótum troðið og efna-
hagurinn myrtur úr launsátri
veirunnar.
Svarthöfði hefði í venjulegu
árferði verið farinn á eyðslu-
fyllerí í útlöndum til að slaka
á og undirbúa jólin. En ekki
í ár. Svarthöfði er lítill fugl í
búri og enginn veit hvar lykl-
arnir eru.
Ó, aumingja Svarthöfði.
Mikið er hans böl.
Svarthöfði fær sér annan
sopa af rótsterku togara-
kaffinu. Nei, nú er komið gott
af þessu væli. Nú er bóluefni
fram undan. Nú er tíminn til
að horfa fram á við og byrja
að hlakka til. Ekki til jólanna
heldur til þess að lifa eðlilegu
lífi aftur.
Kannski ekki alveg eðlilegu
samt. Kannski núna með því
að missa hluta af frelsi sínu
getur Svarthöfði lært að meta
það betur þegar hann fær það
til baka.
Enginn veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur, segja
þeir víst. Það er þó hægt að
gleðjast yfir því að hér hefur
frelsið ekki tapast fyrir fullt
og allt. Við þurftum bara að-
eins að líta af því til að leyfa
fullorðna fólkinu að taka
ákvarðanir fyrir okkur því
við vorum of upptekin af
sjálfum okkur til að gera það
sjálf. Eins og páfagaukar að
rífast við eigin spegilmynd.
Kannski var draumur
Svarthöfða ekkert martröð.
Kannski var þetta bara birt-
ingarmynd af því hvað Svart-
höfði á erfitt með að hafa ekki
stjórn á eigin lífi. Að þurfa
að rétta öðrum bíllyklana.
Það er aldrei auðvelt að vera
farþegamegin í eigin lífi. En
það kennir manni kannski að
kunna betur að meta þau for-
réttindi að fá að keyra.
Við geymum jú fugla í búri
svo þeir fari sér ekki að voða.
Svarthöfði þarf bara að ein-
beita sér að því að vera þolin-
móður og reyta ekki af sér
flugfjaðrirnar í einhverju
sjálfsvorkunnarkasti. Því
sá dagur nálgast óðfluga að
hann fái að hefja sig til flugs
að nýju. n
SVART HÖFÐI
Aðalnúmer: 550 5060
Auglýsingar: 550 5070
Ritstjórn: 550 5070
FRÉTTA SKOT
550 5070
abending@dv.is
Kynþokkafullt kæruleysi
N
ú þýðir lítið annað en að finna hæfilegt
kæruleysi í miðjum faraldri nákvæmra
sóttvarnalaga. Sjálf sveiflast ég á milli
þess að leyfa mér rauðvínsglas og stóra
smá-köku og agressífra útihlaupa um
Vesturbæinn til að fá útrás fyrir streit-
una og hræðsluna við að enda sem Covid-jólakúla.
Í forsíðuviðtali blaðsins í dag ræða Viktoría Her-
manns og Sóli Hólm um óbilandi framkvæmdagleði
Sóla og sérlegt jafnaðargeð Viktoríu. Þau virðast hafa
fundið hæfilega mikið kæruleysi til þess að sætta
sig við sturtuleysi í eitt og hálft ár og þvottavélar-
laust heimili með fjögur börn. Það er auðvitað ekki
þægilegt en þau hafa áttað sig á því að við erum lítið
annað en vaninn og það má vel venja sig á minna án
þess að lifa minna.
Þau hafa heilsuna sína, barnalánið og fljótlega
gröfulausan garð. Ástin er í forgrunni, óhreinatauið og
sparslið í bakgrunni.
Það er ljúfur lærdómur sem vert er að
hafa í huga. Það er fátt minna aðlaðandi
en streita og tilætlunarsemi. Við getum
líklega öll gefið aðeins eftir, sætt
okkur við minna og í staðinn lifað
meira. Tekið aðeins minna til, bakað
aðeins meira. Farið í betri kjólinn af
engri ástæðu og reynt að skilja kvíða
og pirring eftir úti í frostinu.
Við þurfum á allri okkar hjarta-
hlýju að halda.
Eldri kona gaf mér fokkmerki
í Síðumúlanum þar sem ég sá
hana ekki standa við akbraut
þar sem ég kom keyrandi.
Ég var í þungum þönkum
eftir erfiðan dag. Ég átti
auðvitað að stoppa fyrir
henni en fokkmerkið kom
mér samt mikið á óvart.
Það er ekki það sem ég á
við með kæruleysi.
Ég sé frekar fyrir mér
mandarínur og grjónagraut,
jólapeysu og samverustund á
kostnað þrifa og erinda sem þarf
svo kannski alls ekkert að reka.
Faraldurinn hefur þó kennt
manni það að fastar ferðir í Ikea og Costco eru líklega
ekki nauðsynlegar. Eiginlega bara alls ekki. Þó ég vilji
auðvitað taka fram að það sé komið mikið af jóla-
skrauti í Costco og útlensku sælgæti sem fólk alið upp
á eyju verður fimm ára við að komast í tæri við.
Ég er mögulega með kassa af Lindt-súkkulaðihrein-
dýrum úti í bílskúr. Og einhverjum kremum sem ég
veit ekki alveg hvað gera en voru í flottum kassa og á
tilboði. En slík kaup eru þó á undanhaldi.
En ímyndið ykkur ef ég hefði verið í jólapeysu þegar
konan gaf mér fokkmerkið, hlaupið út og sagt: „Ég
veit. Þetta er glatað ástand.“ Gefið henni skrítið krem
eða súkkulaðihreindýr og brunað í burtu. Kannski
væri hún þá alveg hætt að gefa fólki fokkmerki? n
Eldri kona gaf
mér fokkmerki í
Síðumúlanum.
UPPÁHALDS
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is
FRÉTTASTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Sigurbjörn Richter,sigurbjorn@dv.is PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000.
MYND/GETTY
Katrín Edda er véla- og
orkuverkfræðingur sem býr
í Þýskalandi. Hún er einnig
vinsæl á Instagram, @katrin
edda, og æfir CrossFit af
kappi. Hún deilir með okkur
fimm uppáhalds CrossFit-
æfingunum sínum.
1 Snörun
Flókin æfing en þegar maður
kemst upp á lag með tæknina
er svo gaman að ná fram-
förum eins og með aðrar
ólympískar lyftingar.
2 Handstöðuarmbeygjur
Ég elska allt með handstöðu
og vildi helst hafa handstöðu-
armbeygjur í öllum WODum.
3 Double unders
Uppáhalds cardio-æfingin
án efa. Einhvern veginn
áreynslulaust en reynir
samt á.
4 Réttstöðulyfta
Finnst reyndar allar æfingar
með stöng skemmtilegar en
réttstöðulyfta er í ákveðnu
uppáhaldi.
5 Burpees
Mjög auðveld í framkvæmd,
þú ert bara að leggjast á
brjóstkassann og standa upp
og hoppa svo maður getur
einhvern veginn alltaf haldið
áfram. Þetta er svona æfing
sem maður elskar að hata.
CROSSFIT-ÆFINGAR
2 EYJAN 20. NÓVEMBER 2020 DV