Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Síða 4
MEST LESIÐ
Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST...
Kastljós í kastljósi
Einar Þorsteinsson fjölmiðlamaður tók viðtal við Má Krist-
jánsson, yfirlækni smitsjúkdóma á Landspítala, í Kastljósi á
mánudag. Gekk hann hart eftir svörum og var harðlega gagn-
rýndur í kjölfarið, meðal annars af Helgu Völu Helgadóttur,
þingmanns Samfylkingarinnar. Líflegar umræður sköpuðust
í kjölfarið um hlutverk fjölmiðla og um nauðsyn þess að finna
sökudólg í stóra hópsmitinu á Landakoti. Margir kollegar
Einars stigu fram honum til varnar sem og formaður Blaða-
mannafélags Íslands.
Allir í lagningu
Hárgreiðslustofur máttu hefja starfsemi að nýju á miðviku-
dag, landsmönnum til mikillar gleði enda margir komnir með
sóttkvíar-makka sem engin prýði var af. Símalínur hjá hár-
greiðslustofum voru rauðlogandi í aðdragandanum og ljóst
að færri komust að en vildu. Eins geta nú sumir framhalds-
skólanemar snúið aftur í skólann, íþróttastarf barna á leik- og
grunnskólaaldri fór aftur af stað og grímuskylda nemenda í
5.-7. bekk var afnumin.
Seðlabankinn lækkar vexti
Seðlabanki Íslands lækkaði meginvexti sína um 0,25 prósent á
miðvikudag og eru þeir nú lægstu sögulegu vextir hér á landi
eða 0,75 prósent. Á sama tíma eru Íslandsbanki og Landsbanki
búnir að boða vaxtahækkun sem hefur mætt nokkurri and-
stöðu í samfélaginu, einkum vegna efnahagskreppunnar og
COVID-19 faraldursins.
Nýjar vendingar í togarasmitsmálinu
Skipverjar á togaranum Júlíusi Geirmundssyni, þar sem kom
upp COVID-19 smit þegar skipið var í túr, hafa lýst yfir van-
trausti á skipstjórann, Svein Geir Arnarsson. Sveinn greindi
frá því um síðustu helgi að hann hefði stöðu sakbornings í
rannsókn lögreglu á hópsmitinu og sakaði hann stéttarfélag
sitt og áhöfn um að ætla að halda „sýndarréttarhöld“ yfir
honum með sjóprófi. Skipið hélt áfram veiðum í þrjár vikur
þátt fyrir að skipverjar hefðu farið að veikast fljótlega eftir
að lagt var úr höfn.
Bensínsprengja í Úlfarsárdal
Bensínsprengju var kastað á svalir fjölbýlishúss í Úlfarár-
dal og hefur myndband af atvikinu gengið manna á milli á
netinu. Eigandi íbúðarinnar birti um helgina myndband af
sér að ganga í skrokk á öðrum manni og fór það myndband
einnig á mikið flug áður en það var fjarlægt. Maðurinn var
handtekinn eftir að hann birti myndbandið af slagsmálunum
um helgina en sleppt að lokinni skýrslutöku. Hann var þó ekki
heima þegar bensínsprengjunni var varpað á svalir hans. Úr
varð nokkur eldur en gekk slökkvistarf vel og lauk á innan
við klukkustund.
Tap gegn Englandi
Íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu tapaði gegn enska
landsliðinu á miðvikudag. Stað-
an í leikslok var 4-0 fyrir Eng-
landi. Nóvember hefur reynst
íslenska liðinu erfiður en það
missti af sæti á Evrópumeist-
aramótinu þegar liðið tapaði á
móti Ungverjum. Leikurinn á
miðvikudag markaði tímamót
hjá landsliðinu okkar þar sem
Erik Hamrén er hættur sem
þjálfari liðsins.
1 Halldór skammaðist sín þegar hann komst að því hver
kærastinn var í raun og veru –
„Síðan barst talið að því hvað hann
gerði” Halldór Armand Ásgeirsson
röflaði um söngleiki við mann sem
hann hafði nýlega hitt. Seinna gerði
hann sér grein fyrir að maðurinn var
einn frægasti söngleikjahöfundur
nútímans.
2 Þetta eru hæst og lægst launuðu störfin á Íslandi Hag-
stofa Íslands uppfærir talnaefni um
laun fullvinnandi launamanna árið
2019. DV tók saman það helsta.
3 Maður svaf úti á Laugaveg-inum í nístingskulda í vikunni
– Mikið ofbeldi og þvinguð kynlífs-
vinna Heimilislausir eru í hræðilegri
stöðu í COVID-19 og hefur fjölgað
mikið.
4 Hjúkrunarfræðingur undrast dýrar gjafir til starfsmanna
ÁTVR – „Furða mig á í hvað skatt-
peningar almennings fara.” Starfs-
menn ÁTVR fengu veglega nóvem-
bergjöf frá vinnuveitanda sínum.
Hjúkrunarfræðingur furðaði sig á að
vinnuveitandinn, ríkið, legði áherslu á
starfsmenn vínbúða fremur en fram-
línustarfsmenn.
5 Fyrrverandi heróínfíkill birti sláandi myndir – Svona lítur
hún út í dag Það er ótrúlegt hvernig
neysla getur breytt útliti fólks. Ung
kona birti sláandi fyrir og eftir myndir
af sér til að sýna hvernig hún leit út
í neyslu og hvernig hún lítur út heil-
brigð.
6 Hversu vel þekkir þú þessi íslensku orð? – Taktu prófið!
Á degi íslenskrar tungu skellti DV
í skemmtilegt próf með gömlum
íslenskum orðum og nokkrum
dönskuslettum sem hafa ratað inn í
tungumálið.
7 Þetta eru aukaverkanir bólu-efnisins við Covid-19 frá Pfizer
– Líkir því við fyrri heimsstyrjöldina
Aukaverkanir af væntanlegu bóluefni
Pfizer geta haft nokkrar aukaverkanir,
meðal annars aukaverkanir sem
minna á timburmenn.
Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra
barnabóka auglýsa eftir handriti að
skáldsögu fyrir börn til að keppa um
Íslensku barnabókaverðlaunin 2021.
Skilafrestur er til og með 8. janúar 2021.
Allar upplýsingar á www.forlagid.is
4 FRÉTTIR 20. NÓVEMBER 2020 DV