Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Page 8
EKKERT HALLÆRISLEGRA EN „FEIK“ FYLGIHLUTIR Lektor í fatahönnun segir grafalvarlegt að verslun í Kringlunni selji eftirlíkingar af hönnunarvörum. Eigandi verslunarinnar segir af og frá að um eftirlíkingar sé að ræða heldur fallegt blómamynstur. D V barst ábending þess efnis að í versluninni Cosmo í Kringlunni væru til sölu vörur þar sem líkt er eftir þekktum hönn­ unarmerkjum á borð við Louis Vuitton og Gucci. Margir hafa séð eftirlíkingar af þekktum vörum á mörkuðum erlendis en slíkt hefur ekki verið al­ gengt hér á landi. Blaðamaður leitaði álits hjá Lindu Björg Árnadóttur, dós­ ent í fatahönnun við Listahá­ skóla Íslands og eiganda Scint­ illa, en hún er menntuð bæði sem fatahönnuður og textíl­ hönnuður með sérhæfingu í munsturhönnun. „Þetta er algjörlega hönnunarstuldur,“ segir hún eftir að hafa séð myndir af treflum sem eru til sölu í Cosmo. Lítill skilningur á hugverkarétti „Eftirlíkingar á hönnunarvör­ um er stórt vandamál í heim­ inum og sífellt er verið að gera slíkar vörur upptækar um allan heim. Fyrirtæki eins og Louis Vuitton og Gucci hverra vörur eru hvað vinsælastar þegar kemur að eftirlíkingum hika ekki við að eyða tíma og peningum í málaferli á móti þeim sem framleiða og dreifa slíkum vörum,“ segir Linda og bendir á að árið 2008 hafi eBay verið dæmt fyrir að hafa milligöngu um sölu á eftirlík­ ingum á vörum LVMH, sem á meðal annars Louis Vuitton, fyrir alls 38,6 milljónir evra eða ríflega 6 milljarða króna á gengi dagsins í dag. „Það að núna sé verslun í Kringlunni að selja eftirlík­ ingar af hönnunarvörum, frá þessum fyrirtækjum, sýnir hvað það er lítill skilningur á hugverkarétti á Íslandi. Það er ekki einu sinni verið að reyna að fela þetta,“ segir Linda. Bara fallegir kasmírtreflar Lilja Hrönn Hauksdóttir, eig­ andi Cosmo, kemur af fjöllum spurð um líkindi vara sem hún er að selja og þekktra hönnunarvara. „Þetta er alls ekki eins og Louis Vuitton eða Gucci. Þetta er keypt frá lög­ legri heildsölu í London og er bara blómamynstur,“ segir hún. Þegar blaðamaður segir Lilju að hann hafi borið þetta undir lektor í fatahönnun við LHÍ sem segir klárlega um eftirlíkingu að ræða ítrekar hún fyrri orð sín: „Nei, þetta er allt öðruvísi. Þetta eru bara fallegir kasmírtreflar með blómamynstri. Mynstrið núna er þetta og svo kannski eftir hálfan mánuð fæ ég annað blómamynstur,“ segir hún. Þá tekur Lilja fram að ekk­ ert lógó sé á treflunum hennar. „Varan er ekki merkt eins og maður sér oft á götumörk­ uðum. Ég er ekki að selja hluti hér og segja við fólk að þetta sé Louis Vuitton,“ segir hún. „Ef þú kaupir Marc Jacobs­ eftirlíkingu á götumarkaði þá stendur Marc Jacobs á henni. Ég er ekki með neinn götu­ markað hérna,“ segir Lilja. Þá sendir hún blaðamanni meðfylgjandi mynd af ekta Louis Vuitton­trefli sem hún á til að sýna hvernig þeir eru merktir. „Ég er búin að reka verslun í 34 ár og myndi aldr­ ei gera svona lagað,“ segir hún. „Ekki Kringlunni til sóma“ Linda Björg er þó ekki í nein­ um vafa. „Það er mögulegt, þegar kemur að treflum sem á eru með ákveðin munstur sem að tilheyra þessum fyrirtækj­ um og eru þeirra einkenni, að ef það er ekki lógó viðkom­ andi fyrirtækis á vörunni og munstrunum er raðað aðeins öðruvísi upp þá sé hægt að komast upp með þetta á sum­ um landsvæðum,“ segir hún. „Það breytir því ekki að þetta er stuldur á hugverkum og sýnir algert virðingar­ leysi gagnvart hönnuðum og verkum þeirra. Fyrir utan það auðvitað að ekkert er hallærislegra heldur en að vera með „feik“ fylgihlut eða „feik“ vöru frá þekktum fyrir­ tækjum. Svo er þetta Kringl­ unni ekki til sóma að þar sé verið að selja stolna hönnun,“ segir Linda og bætir við: „Ég vona að lögregluyfirvöld at­ hugi þetta mál. Þetta þykir alvarlegur glæpur úti í heimi og ég vona að það sé það hérna heima líka.“ n Lilja Hrönn Hauks- dóttir, eigandi Cosmo, segir engar eftir- líkingar seldar í versluninni. MYND/HEIÐA Erla Hlynsdóttir erlahlyns@dv.is Linda Björg Árnadóttir dósent í fatahönnun T r e f l a r n i r sem eru til sölu í Cosmo. Á ý m s u m vörum f rá G u c c i e r svipuð græn og rauð rönd auk þess sem mynstrið er áþekkt. Mynd frá Lilju af alvöru Louis Vuitton-trefli sem hún á, sem er svipaður og þessi til hægri. Mynd sem birtist í vikunni á Face- book-síðu Cosmo. Taska sem líkist mjög Gucci-tösku í bakgrunni. Gucci-taska sem kostar 225 þús- und krónur í vefverslun. MYND/GUCCI.COM MYND/LOUISVUITTON.COM MYND/AÐSEND MYND/AÐSEND 8 FRÉTTIR 20. NÓVEMBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.