Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Síða 8
EKKERT HALLÆRISLEGRA
EN „FEIK“ FYLGIHLUTIR
Lektor í fatahönnun segir grafalvarlegt að verslun í Kringlunni selji
eftirlíkingar af hönnunarvörum. Eigandi verslunarinnar segir af og
frá að um eftirlíkingar sé að ræða heldur fallegt blómamynstur.
D V barst ábending þess efnis að í versluninni Cosmo í Kringlunni
væru til sölu vörur þar sem
líkt er eftir þekktum hönn
unarmerkjum á borð við Louis
Vuitton og Gucci. Margir hafa
séð eftirlíkingar af þekktum
vörum á mörkuðum erlendis
en slíkt hefur ekki verið al
gengt hér á landi.
Blaðamaður leitaði álits hjá
Lindu Björg Árnadóttur, dós
ent í fatahönnun við Listahá
skóla Íslands og eiganda Scint
illa, en hún er menntuð bæði
sem fatahönnuður og textíl
hönnuður með sérhæfingu
í munsturhönnun. „Þetta er
algjörlega hönnunarstuldur,“
segir hún eftir að hafa séð
myndir af treflum sem eru til
sölu í Cosmo.
Lítill skilningur á
hugverkarétti
„Eftirlíkingar á hönnunarvör
um er stórt vandamál í heim
inum og sífellt er verið að gera
slíkar vörur upptækar um
allan heim. Fyrirtæki eins og
Louis Vuitton og Gucci hverra
vörur eru hvað vinsælastar
þegar kemur að eftirlíkingum
hika ekki við að eyða tíma og
peningum í málaferli á móti
þeim sem framleiða og dreifa
slíkum vörum,“ segir Linda
og bendir á að árið 2008 hafi
eBay verið dæmt fyrir að hafa
milligöngu um sölu á eftirlík
ingum á vörum LVMH, sem á
meðal annars Louis Vuitton,
fyrir alls 38,6 milljónir evra
eða ríflega 6 milljarða króna
á gengi dagsins í dag.
„Það að núna sé verslun í
Kringlunni að selja eftirlík
ingar af hönnunarvörum, frá
þessum fyrirtækjum, sýnir
hvað það er lítill skilningur á
hugverkarétti á Íslandi. Það er
ekki einu sinni verið að reyna
að fela þetta,“ segir Linda.
Bara fallegir kasmírtreflar
Lilja Hrönn Hauksdóttir, eig
andi Cosmo, kemur af fjöllum
spurð um líkindi vara sem
hún er að selja og þekktra
hönnunarvara. „Þetta er alls
ekki eins og Louis Vuitton eða
Gucci. Þetta er keypt frá lög
legri heildsölu í London og er
bara blómamynstur,“ segir
hún. Þegar blaðamaður segir
Lilju að hann hafi borið þetta
undir lektor í fatahönnun við
LHÍ sem segir klárlega um
eftirlíkingu að ræða ítrekar
hún fyrri orð sín: „Nei, þetta
er allt öðruvísi. Þetta eru bara
fallegir kasmírtreflar með
blómamynstri. Mynstrið núna
er þetta og svo kannski eftir
hálfan mánuð fæ ég annað
blómamynstur,“ segir hún.
Þá tekur Lilja fram að ekk
ert lógó sé á treflunum hennar.
„Varan er ekki merkt eins og
maður sér oft á götumörk
uðum. Ég er ekki að selja hluti
hér og segja við fólk að þetta
sé Louis Vuitton,“ segir hún.
„Ef þú kaupir Marc Jacobs
eftirlíkingu á götumarkaði þá
stendur Marc Jacobs á henni.
Ég er ekki með neinn götu
markað hérna,“ segir Lilja.
Þá sendir hún blaðamanni
meðfylgjandi mynd af ekta
Louis Vuittontrefli sem hún
á til að sýna hvernig þeir eru
merktir. „Ég er búin að reka
verslun í 34 ár og myndi aldr
ei gera svona lagað,“ segir hún.
„Ekki Kringlunni til sóma“
Linda Björg er þó ekki í nein
um vafa. „Það er mögulegt,
þegar kemur að treflum sem á
eru með ákveðin munstur sem
að tilheyra þessum fyrirtækj
um og eru þeirra einkenni, að
ef það er ekki lógó viðkom
andi fyrirtækis á vörunni og
munstrunum er raðað aðeins
öðruvísi upp þá sé hægt að
komast upp með þetta á sum
um landsvæðum,“ segir hún.
„Það breytir því ekki að
þetta er stuldur á hugverkum
og sýnir algert virðingar
leysi gagnvart hönnuðum og
verkum þeirra. Fyrir utan
það auðvitað að ekkert er
hallærislegra heldur en að
vera með „feik“ fylgihlut eða
„feik“ vöru frá þekktum fyrir
tækjum. Svo er þetta Kringl
unni ekki til sóma að þar sé
verið að selja stolna hönnun,“
segir Linda og bætir við: „Ég
vona að lögregluyfirvöld at
hugi þetta mál. Þetta þykir
alvarlegur glæpur úti í heimi
og ég vona að það sé það hérna
heima líka.“ n
Lilja Hrönn
Hauks-
dóttir, eigandi
Cosmo, segir
engar eftir-
líkingar seldar
í versluninni.
MYND/HEIÐA
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
Linda Björg
Árnadóttir
dósent í
fatahönnun
T r e f l a r n i r
sem eru til
sölu í Cosmo.
Á ý m s u m
vörum f rá
G u c c i e r
svipuð græn
og rauð rönd
auk þess sem
mynstrið er
áþekkt.
Mynd frá Lilju af alvöru Louis
Vuitton-trefli sem hún á, sem er
svipaður og þessi til hægri.
Mynd sem birtist í vikunni á Face-
book-síðu Cosmo. Taska sem líkist
mjög Gucci-tösku í bakgrunni.
Gucci-taska sem kostar 225 þús-
und krónur í vefverslun.
MYND/GUCCI.COM
MYND/LOUISVUITTON.COM
MYND/AÐSEND
MYND/AÐSEND
8 FRÉTTIR 20. NÓVEMBER 2020 DV