Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Page 21
AÐVENTAN 3DV 20. NÓVEMBER 2020
Bollakökur með piparkökubotni og rjómaostskremi
300 g hveiti
3 egg
50 g sykur
50 g púðursykur
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. kanill
½ tsk. negull
1 tsk. vanilludropar
120 g smjör
1,5 dl mjólk
Byrjið á því að bræða smjör í potti og leyfið því
svo aðeins að kólna.
Þeytið saman sykurinn (bæði hvíta og brúna)
og eggin þar til blandan verður létt í sér.
Blandið restinni af þurrefnunum saman við
ásamt smjörinu, mjólkinni og vanilludrop-
unum.
Næst er komið að því að setja deigið í form, ég
legg gjarnan pappaform ofan í eldfasta, muff-
insforma pönnu svo að kökurnar fletjist ekki
út, þær haldast stífari með þessu móti.
Bakið kökurnar í ofni við 180 gráðu hita í um
15-20 mínútur.
Látið kólna áður en kremið er sett á.
Rjómaostskrem
400 g rjómi, léttþeyttur
200 g hreinn rjómaostur
100 g flórsykur
½ tsk. kanill
Byrjið á að þeyta rjómann í skál, hafið hann
léttþeyttan.
Blandið rjómaostinum saman við rjómann og
hrærið vel saman.
Sigtið flórsykur og kanil saman við blönduna
og blandið öllu vel saman með sleif.
Ég set kremið í sprautupoka og nota krem stút
til þess að sprauta kreminu fallega á kökurnar.
Einnig er hátíðlegt að strá smá kökuglimmer
yfir bollakökurnar eða muldum kanilstöngum
til skreytinga.
Jólaklattar með
trönuberjum og
hvítu súkkulaði
Það jafnast ekkert á við góða hafraklatta.
Ég ákvað að setja smá jólafíling í klassíska
uppskrift og bæta við nokkrum af mínum
uppáhaldshráefnum, kókosmjöli, trönu-
berjum og hvítu súkkulaði. Útkoman var
unaðsleg!
25-30 stk
200 g smjör, mjúkt
160 g púðursykur
160 g hveiti
160 g haframjöl. Ég nota tröllahafra
50 g kókosmjöl
½ tsk. matarsódi
1 tsk. lyftiduft
2 egg
1 tsk. salt
50 g hvítt súkkulaði
100 g trönuber, þurrkuð T.d. frá H-berg
Byrjið á að stilla ofninn á undir/yfirhita, á
180 gráður.
Setjið eggin og púðursykurinn saman í skál
og hrærið vel.
Blandið næst smjörinu (gott að skera það
aðeins niður) setja það svo út í blönduna
bita fyrir bita, næst er hveitinu bætt saman
við og allt þeytt vel saman.
Blandið næst höfrunum, kókosmjölinu, van-
illudropunum,saltinu, matarsódanum og
lyftiduftinu saman og hrærið allt vel saman.
Saxið hvítt súkkulaði niður og setjið út í
deigið ásamt trönuberjunum og blandið
rólega saman.
Myndið litlar kúlur úr deiginu (gott að miða
við matskeið) á bökunarpappír, ættu að
komast um 10 stk. á eina ofnplötu og bakið
í ofni í um 10 -12 mínútur.
Kókoskonfekt
Þessir kókostoppar klikka aldrei, geymast vel
í frysti og tilvalið að skella í tvöfalda uppskrift
og eiga eitthvað gómsætt með kaffinu á að-
ventunni.
500 g kókosmjöl
250 ml kókosrjómi
2 tsk. vanilludropar
1 tsk. möndludropar
30 g smjörlíki
300 g suðusúkkulaði
Byrjið á að bræða smjörlíki og látið aðeins
kólna.
Setjið kókosmjöl í skál og hellið smjörlíkinu
saman við og hrærið saman með sleif.
Bætið kókosrjómanum saman við ásamt van-
illu- og möndludropunum og passið að allt
blandist vel saman.
Myndið litlar kúlur úr deiginu á bökunarpappír,
gott að miða við eina fulla teskeið.
Bakið við 180 gráður í um 15 mínútur, eða þar
til að kókostopparnir eru gullinbrúnir að ofan.
Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og dýfið
hverjum og einum kókostopp ofan í og setjið
þá á bökunarpappír, þannig að þeir standi á
súkkulaðinu. Skreytið svo kókostoppana að-
eins að ofan með bræddu súkkulaði.
Setjið í kæli í um klukkustund og berið svo
fram.