Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Side 22
4 AÐVENTAN 22. NÓVEMBER 2020 DV Sörur Mitt uppáhald yfir hátíðirnar eru sörur. Ég baka þær á hverju ári og hef útfært þær á marga mismunandi vegu. Ég baka yfirleitt frekar smáar kökur svona eins og konfekt- mola og ég set gjarnan Baily‘s eða Grand í kremið. Stundum hjúpa ég þær að utan með appelsínusúkkulaði. Endilega látið hugan reika og prófið að breyta til og gera ykkar eigin útgáfu sem ykkur þykir best. Hérna kemur uppskrift að klassíkum góðum sörum með venjulegri fyllingu og bailys fyll- ingu. Botnar 6 stk eggjahvítur 500 gr flórsykur 450 gr möndlumjöl Krem 5 stk eggjarauður 250 gr smjör Mjúkt 200 gr flórsykur 3 msk kakóduft 50 ml bailys líkjör Val 400 gr Suðusúkkulaði til að hjúpa Byrjið á að setja 6 stk eggjahvítur í skál og þeytið þær þar til þær fara aðeins að freyða. Bætið flórsykrinum saman við og hrærið fyrst í um 1 mínútu á meðal hraða og setjið svo mik- inn hraða í um 6 mínútur / þær eiga að verða að nokkurskonar marengs. Blandið möndlumjölinu saman við og hrærið varlega með sleif, passið að blanda öllu vel saman. Leggið bökunarpappír á bökunarplötur og myndið litlar kökur með deiginu, gott að miða hverja köku við teskeið eða nota sprautupoka og sleppa því að nota stút á hann. Bakið við 165 gráðu hita í um 11-13 mínútur. Takið úr ofninum og látið kólna. Blandið saman eggjarauðum, mjúku smjöri (mikilvægt að það sé mjúkt), flórsykrinum og hrærið vel saman. Sigtið kakóduft út í blönd- una og bætið einnig bailys saman við ef þið viljið hafa það í kreminu. Smyrjið kreminu á botnana og kælið. Hjúpið næst kremið og kælið. Marengs krans Þennan mjúka marengs má útfæra á mismun- andi vegu, til að mynda er hægt að hafa hann svona eins og ég sýni hér á myndinni, einnig er hægt að setja allskonar ber og ávext á milli hæðanna nú eða kókosbollur svo eitthvað sé neft. Látið hugann reika og töfrið fram fal- legan og góðan hátíðareftirrétt ! 4 stk eggjahvítur 2 dl sykur 1 tsk vanilludropar 1 peli rjómi Askja af rifsberjum 150 gr after eight súkkulaði Brætt Byrjið á að stífþeyta eggjahvíturnar og bætið svo sykrinum rólega saman við í smá skömmt- um. Þegar sykurinn er uppleystur er vanillu- dropunum bætt saman við og hrært varlega í blöndunni. Setjið marengsblönduna í sprautupoka, ég nota krem stút frá Wilton 2D ( fæst í Hagkaup) til þess að sprauta fallega tvo hringi jafna á bökunarpappír. Mikilvægt er að hringirnir séu jafnir áður en þeir bakast, því þeir leggjast svo saman að lokum með rjómanum. Bakið hringina í ofni við 150 gráður í um 45 mínútur, takið hringina úr ofninum og leyfið þeim alveg að kólna og harðna aðeins í um 20 mínútur. Leggið fyrri hringinn á kökudisk, sprautið þeyttum rjóma á milli ásamt bræddu after eight súkkulaði. Leggið seinni hringinn ofan á, skreytið að ofan með rifsberjum og bræddu after eight súkkulaði. Geymið kökuna í kæli þangað til að hún er borin fram.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.