Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Síða 23
AÐVENTAN 5DV 20. NÓVEMBER 2020
Jólagott
Hérna kemur uppskrift af döðlugotti sem
að ég ákvað að útfæra á jólalegan máta.
400 gr döðlur
250 gr smjör
125 gr púðursykur
2 bollar rice crispies
100 gr kókosflögur með karamellu og sjávar-
salt (nýung frá H- berg)
100 gr trönuber
200 gr suðusúkkulaði til að hjúpa
30 gr kókosflögur krófar til að skreyta
Gróft Maldon salt til að skreyta með
Byrjið á því að skera dölurnar smátt.
Setjið smjörið, döðlurnar og púðursykurinn
saman í pott og blandið vel saman við vægan
hita og þangað til að döðurnar eru farnar að
mýkjast vel.
Bætið rice crispies, trönuberjum og karamellu
kókosflögum saman við blönduna.
Blandan fer því næst í form með bökunarpapp-
ír undir, þrýstið blöndunni vel niður í formið.
Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði, hellið yfir
blönduna og stráið grófu salti og kókosflögum
yfir súkkulaðið.
Kælið, skerið niður í litla bita og berið fram.
Jólaís með kaffi & After eight súkkulaði
Þessi gamli góði klassíski heimagerði ís með
kaffibragði & After eight súkkulaði.
500 ml rjómi
2 msk sykur
6 stk eggjarauður
1 tsk vanilludropar
5 msk kaffi
300 gr After Eight súkkulaði
Byrjið á að þeyta rjóma og leggið til hliðar.
Þeytið saman eggarauður og sykur, þannig
blandan verður létt og ljós og blandið varlega
saman við rjómann.
Bætið vanilludropunum saman við ásamt kaffi,
passið að kaffið sé kælt áður en því er bætt
saman við.
Saxið um 250gr After Eight súkkulaði og
blandið varlega saman við rjómablönduna.
Hellið í form og frystið í um 6-7 klst.
Takið 50gr After Eight súkkulaði og bræðið yfir
vatnsbaði, látið aðeins kólna.
Takið ísinn úr frysti eftir 6-7 klst og hellið
bræddu After Eight súkkulaði yfir hann.
Njótið vel !
Jólaostakaka
Þessi ostakaka sem inniheldur Bailey’s líkjör,
ferskan appelsínusafa og börk, súkkulaði og
kanil fullkomnar jólin að mínu mati. Bæði er
hægt að útfæra ostakökuna í eitt stórt form
eða setja hana í minni skalar eða glös.
260 gr hafrakex
60 gr smjör bráðið
400 gr rjómaostur
200 gr rjómi
100 gr flórsykur
50 ml Bailey’s
1 tsk kanill
Safi úr ½ appelsínu
Rifinn appelsínubörkur
Fín saxað suðusúkkulaði
Byrjið á því að setja hafrakex í matvinnsluvél
og blandið saman við bráðið smjör.
Þeytið rjóma, blandið saman við hann rjóma-
osti, kanil, flórsykri. Hellið appelsínusafa og
líkjörnum saman við. Saxið appelsínubörk og
dreifið yfir með súkkulaðispænum.
Ef þið setjið kökuna í eitt form er hafrakex-
blandan sett á botninn, rjómablandan næst
og að lokum er appelsínubörk og súkkulaði
dreift yfir. Ef að setja á kökuna í skálar eða
glös er flott að lagskipta kökunni þeas, hafra-
kex, rjómablanda til skiptis og skreyta svo að
lokum með appelsínuberki og súkkulaði.