Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Side 25
KYNNING 7DV 20. NÓVEMBER 2020 Þ egar kóvidkvíði og vetrar-kuldi sækir að með tilheyrandi þurrkablettum og húðvanda- málum er gott að leita á náðir góðra krema til að endurnæra húðina og veita raka. Það er ómetanleg til- finning að líða vel í húðinni og góðar húðvörur með fyrsta flokks virkum innihaldsefnum skila sér í heilnæm- ari húð og ekki síður heilbrigðari sál. Íslenska vefverslunin SANA – umhverfisvænar vörur er nýleg netverslun sem sérhæfir sig í húð- og hárvörum frá frá flottum asískum merkjum frá Japan og Suður-Kóreu. Það hefur varla farið fram hjá neinum sem fylgist með húðumhirðu iðnaðinum að vörur frá þessum menningarsvæðum vekja gríðarlega athygli. Því einmitt á þessu svæði er aldagömul hefð fyrir víðtækri húðumhirðu sem byggir bæði á nýjum uppfinningum og margreyndum fornum austurlensk- um aðferðum. Á skömmum tíma hefur SANA borist fjöldi jákvæðra umsagna frá viðskiptavinum. Margir þekkja vörurnar eftir að hafa búið erlendis og eru ánægðir að komast í þær hér og aðrir eru fyrst að kynn- ast þessum frábæru vörum núna. Heilandi fyrir huga og húð Merkin sem eru í boði hjá SANA heita AROMATICA, SIORIS, COKON LAB og RUHAKU. Húðvörurnar frá SANA eru hágæða húðvörur. Öll innihaldsefni, allt ferli og umbúðir eru eins náttúrulegar, hreinar og umhverfisvænar og hægt er. Vör- urnar frá SANA henta öllum kynjum og er hægt að finna vörur sem henta öllum húðgerðum, hvort heldur er þurri, feitri, viðkvæmri, blandaðri, ungri sem aldinni húð. Geggjaðir jólapakkar á afslætti Sana vefverslun, www.sana.is, ætlar að gefa 15% afslátt af öllum fjórum jólapökkunum inni á vefsíðu SANA ef notaður er afsláttarkóðinn: Sana. n GUÐDÓMLEGAR VÖRUR FYRIR HÚÐ OG HUGA Húðin er stærsta líffæri líkamans og við þurfum að huga að henni líkt og öllum öðrum líffærum. Umhverfisvænar og góðar húðvörur frá SANA eru því ein hugulsamasta jólagjöf sem hugsast getur. A R O M A T I C A : A n d l i t h r e i n s i r, tóner, serum, and- litskrem og augn- krem. Ný og spennandi vörumerki sem standast kröfur SANA munu bætast við fljótlega í vef- verslunina sana.is og áhugasamir eru hvattir til þess að fylgjast með SANA á Instagram: Sana_vefverslun og á Facebook: SANA vef- verslun. Nánari upplýsingar á www.sana.is RUHAKU jólapakkinn Inniheldur andlitshreinsiolíu, andlitsolíu og dagkrem. Ruhaku býr að framúrskar- andi náttúrulegum efnum frá japönsku eyjunni Okinawa. Vörurnar innihalda virk efni eins og retinol sem er algert undra- efni fyrir þreytta húð. Ilmkjarnaolíur úr gettou-laufi og jarðbundinn ilmur hefur róandi og heilandi áhrif á hugann. • Andlitshreinsiolía: Náttúruleg upp- spretta AHA úr fimm extröktum gerir húðina geislandi og silkimjúka. • Andlitsolía: Rík af E-vítamíni og argan- olíu. Kemur í veg fyrir oxun húðarinnar. • Andlitskremið: Róar húð og huga með tveimur ilmum. Andoxunaráhrif gettau- laufsins stuðla að heilbrigðri húð. AROMATICA jólapakkinn Inniheldur andlitshreinsi, tóner, serum, andlitskrem og augnkrem. Aromatica er þekkt fyrir hreint framleiðsluferli og framúrskarandi innhaldsefni sem henta viðkvæmri húð. Heilandi fyrir huga og húð með heillandi ilm. • Reviving Rose Infusion: Rjómakenndur andlitshreinsir er rakagefandi og hreinsar án þess að þurrka húðina. Rósavatn, damask, aloe og marigold næra húðina og vernda. • Reviving Rose Infusion Treatment tóner: Alkóhólfrítt andlitsvatn fyrir viðkvæma húð. 99% náttúrulegt og hefur tvöfalda virkni til að læsa rakann inni í húðinni. 200 ml. • Rose Infusion serum: Unnið úr blöndu af lífrænu rósavatni og rósar-ilmkjarnaolíu. Mjög rakagefandi og vinnur að þéttingu og raka húðarinnar. • Reviving Rose Infusion andlitsraka- krem: Ríkt af andoxunarefnum eins og rósar-ilmkjarnaolíu og djúpnærir húðina. Stuðlar að náttúrulegri mýkt og hjálpar til við að lyfta og slétta andlitslínur. 50 ml. • Rose Absolute augnkrem: Lýsir upp dökka bletti. Lífrænt shea-smjör gefur við- kvæmri húð raka og kemur í veg fyrir fínar línur. 20g. COKON LAB jólapakkinn Inniheldur hand- og líkamssápu og líkams- krem. Chokon Lab leggur einnig áherslu á að nota hrein og flott innihaldsefni sem henta viðkvæmri húð. Framleiðendur gefa mýktinni sérstakan gaum en vörurnar eru unnar úr silki. Þá er ilmurinn afar heilandi og róandi. • Sápa og líkamskrem: Koma í tveimur ilmum. Annar er léttur og sætur ilmur ávaxtatrjáa og heitir Woody Citrus. Hinn er unninn úr náttúrulegum ilmkjarnaolíum og gefur hugarró með ferskum ilmi og kallast Floral Woody Nat. Blanc Plume og Reve Blanc. 480 ml. SIORIS jólapakkinn inniheldur andlitshreinsi, serum, dagkrem, næturkrem, rakasprey og ampoule. Einföld hönnun og hrein innihaldsefni sem henta viðkvæmum húðgerðum. Einkennandi fersk sítrus- lykt vekur skynfærin á dimmum vetrar- morgnum. • Cleanse Me Softly Milk andlitshreinsir: Mildur og góður og hentar öllum húð- gerðum. • Bring the Light serum: Mjög endurnær- andi og tilvalið fyrir þreytta húð. Þetta ofur-serum er algjör næringabomba. • Stay With Me dagkrem: Djúpnærandi og róandi rakakrem. Gott fyrir allar húðgerðir en sérstaklega þurra og viðkvæma húð. • You Look So Young næturkremið: endur- stillir og endurnærir húðina. Kremið inni- heldur tamanu-olíu og hjálpa innihaldsefni kremsins við að styrkja húðina, auka framleiðslu á kollageni, rétta af litarefni og jafna húðlit. • Time Is Running Out rakasprey: Olíu-raka sprey sem virkar sem and- litsvatn. Nærandi uppskrift vörunnar samanstendur af 78% lífrænu rakagefandi ávaxtavatni. • A Calming Day ampúlan: Tilvalin fyrir viðkvæma húð. Bólgueyðandi omija- ávaxta extrakt og bólgueyðandi Calen- dula- og Centella Asiatica þykkni (5%) sem er stútfullt af andoxunarefni. Varan er gerð til að róa húðina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.