Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Blaðsíða 25
KYNNING 7DV 20. NÓVEMBER 2020
Þ egar kóvidkvíði og vetrar-kuldi sækir að með tilheyrandi þurrkablettum og húðvanda-
málum er gott að leita á náðir góðra
krema til að endurnæra húðina og
veita raka. Það er ómetanleg til-
finning að líða vel í húðinni og góðar
húðvörur með fyrsta flokks virkum
innihaldsefnum skila sér í heilnæm-
ari húð og ekki síður heilbrigðari sál.
Íslenska vefverslunin SANA –
umhverfisvænar vörur er nýleg
netverslun sem sérhæfir sig í
húð- og hárvörum frá frá flottum
asískum merkjum frá Japan og
Suður-Kóreu. Það hefur varla farið
fram hjá neinum sem fylgist með
húðumhirðu iðnaðinum að vörur frá
þessum menningarsvæðum vekja
gríðarlega athygli. Því einmitt á
þessu svæði er aldagömul hefð fyrir
víðtækri húðumhirðu sem byggir
bæði á nýjum uppfinningum og
margreyndum fornum austurlensk-
um aðferðum. Á skömmum tíma
hefur SANA borist fjöldi jákvæðra
umsagna frá viðskiptavinum. Margir
þekkja vörurnar eftir að hafa búið
erlendis og eru ánægðir að komast í
þær hér og aðrir eru fyrst að kynn-
ast þessum frábæru vörum núna.
Heilandi fyrir huga og húð
Merkin sem eru í boði hjá SANA
heita AROMATICA, SIORIS, COKON
LAB og RUHAKU. Húðvörurnar
frá SANA eru hágæða húðvörur. Öll
innihaldsefni, allt ferli og umbúðir
eru eins náttúrulegar, hreinar og
umhverfisvænar og hægt er. Vör-
urnar frá SANA henta öllum kynjum
og er hægt að finna vörur sem henta
öllum húðgerðum, hvort heldur er
þurri, feitri, viðkvæmri, blandaðri,
ungri sem aldinni húð.
Geggjaðir jólapakkar á afslætti
Sana vefverslun, www.sana.is, ætlar
að gefa 15% afslátt af öllum fjórum
jólapökkunum inni á vefsíðu SANA ef
notaður er afsláttarkóðinn: Sana. n
GUÐDÓMLEGAR VÖRUR
FYRIR HÚÐ OG HUGA
Húðin er stærsta líffæri líkamans og við þurfum að huga að henni
líkt og öllum öðrum líffærum. Umhverfisvænar og góðar húðvörur
frá SANA eru því ein hugulsamasta jólagjöf sem hugsast getur.
A R O M A T I C A :
A n d l i t h r e i n s i r,
tóner, serum, and-
litskrem og augn-
krem.
Ný og spennandi vörumerki sem standast
kröfur SANA munu bætast við fljótlega í vef-
verslunina sana.is og áhugasamir eru hvattir
til þess að fylgjast með SANA á Instagram:
Sana_vefverslun og á Facebook: SANA vef-
verslun.
Nánari upplýsingar á www.sana.is
RUHAKU jólapakkinn
Inniheldur andlitshreinsiolíu, andlitsolíu
og dagkrem. Ruhaku býr að framúrskar-
andi náttúrulegum efnum frá japönsku
eyjunni Okinawa. Vörurnar innihalda virk
efni eins og retinol sem er algert undra-
efni fyrir þreytta húð. Ilmkjarnaolíur úr
gettou-laufi og jarðbundinn ilmur hefur
róandi og heilandi áhrif á hugann.
• Andlitshreinsiolía: Náttúruleg upp-
spretta AHA úr fimm extröktum gerir
húðina geislandi og silkimjúka.
• Andlitsolía: Rík af E-vítamíni og argan-
olíu. Kemur í veg fyrir oxun húðarinnar.
• Andlitskremið: Róar húð og huga með
tveimur ilmum. Andoxunaráhrif gettau-
laufsins stuðla að heilbrigðri húð.
AROMATICA jólapakkinn
Inniheldur andlitshreinsi, tóner, serum,
andlitskrem og augnkrem. Aromatica
er þekkt fyrir hreint framleiðsluferli og
framúrskarandi innhaldsefni sem henta
viðkvæmri húð. Heilandi fyrir huga og húð
með heillandi ilm.
• Reviving Rose Infusion: Rjómakenndur
andlitshreinsir er rakagefandi og hreinsar
án þess að þurrka húðina. Rósavatn,
damask, aloe og marigold næra húðina og
vernda.
• Reviving Rose Infusion Treatment tóner:
Alkóhólfrítt andlitsvatn fyrir viðkvæma
húð. 99% náttúrulegt og hefur tvöfalda
virkni til að læsa rakann inni í húðinni. 200
ml.
• Rose Infusion serum: Unnið úr blöndu af
lífrænu rósavatni og rósar-ilmkjarnaolíu.
Mjög rakagefandi og vinnur að þéttingu
og raka húðarinnar.
• Reviving Rose Infusion andlitsraka-
krem: Ríkt af andoxunarefnum eins og
rósar-ilmkjarnaolíu og djúpnærir húðina.
Stuðlar að náttúrulegri mýkt og hjálpar til
við að lyfta og slétta andlitslínur. 50 ml.
• Rose Absolute augnkrem: Lýsir upp
dökka bletti. Lífrænt shea-smjör gefur við-
kvæmri húð raka og kemur í veg fyrir fínar
línur. 20g.
COKON LAB jólapakkinn
Inniheldur hand- og líkamssápu og líkams-
krem. Chokon Lab leggur einnig áherslu á að
nota hrein og flott innihaldsefni sem henta
viðkvæmri húð. Framleiðendur gefa mýktinni
sérstakan gaum en vörurnar eru unnar úr
silki. Þá er ilmurinn afar heilandi og róandi.
• Sápa og líkamskrem: Koma í tveimur
ilmum. Annar er léttur og sætur ilmur
ávaxtatrjáa og heitir Woody Citrus. Hinn
er unninn úr náttúrulegum ilmkjarnaolíum
og gefur hugarró með ferskum ilmi og
kallast Floral Woody Nat. Blanc Plume og
Reve Blanc. 480 ml.
SIORIS jólapakkinn
inniheldur andlitshreinsi, serum,
dagkrem, næturkrem, rakasprey og
ampoule. Einföld hönnun og hrein
innihaldsefni sem henta viðkvæmum
húðgerðum. Einkennandi fersk sítrus-
lykt vekur skynfærin á dimmum vetrar-
morgnum.
• Cleanse Me Softly Milk andlitshreinsir:
Mildur og góður og hentar öllum húð-
gerðum.
• Bring the Light serum: Mjög endurnær-
andi og tilvalið fyrir þreytta húð. Þetta
ofur-serum er algjör næringabomba.
• Stay With Me dagkrem: Djúpnærandi og
róandi rakakrem. Gott fyrir allar húðgerðir
en sérstaklega þurra og viðkvæma húð.
• You Look So Young næturkremið: endur-
stillir og endurnærir húðina. Kremið inni-
heldur tamanu-olíu og hjálpa innihaldsefni
kremsins við að styrkja húðina, auka
framleiðslu á kollageni, rétta af litarefni
og jafna húðlit.
• Time Is Running Out rakasprey:
Olíu-raka sprey sem virkar sem and-
litsvatn. Nærandi uppskrift vörunnar
samanstendur af 78% lífrænu rakagefandi
ávaxtavatni.
• A Calming Day ampúlan: Tilvalin fyrir
viðkvæma húð. Bólgueyðandi omija-
ávaxta extrakt og bólgueyðandi Calen-
dula- og Centella Asiatica þykkni (5%)
sem er stútfullt af andoxunarefni. Varan
er gerð til að róa húðina.