Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Side 26
8 AÐVENTAN 20. NÓVEMBER 2020 DV Ketó súkkulaðibitakökur með appelsínudropum Matarbloggarinn og rithöfundurinn Hanna Þóra segir að lykilatriðið í að baka góm- sætar ketó-vænar uppskriftir sé að velja rétt sætuefni í stað hefðbundins sykurs. Hanna Þóra hvetur fólk til að prófa ketó-væna uppskrift um jólin. MYNDIR/ERNIR H anna Þóra Helgadóttir hefur fylgt ketó mataræði undan­farin tvö og hálft ár. Hún er matarbloggari og deilir uppskriftum á Instagram @hannathora88 og hanna­ thora.is. Hún var að gefa út sína fyrstu bók fyrir jólin, KETÓ – Uppskriftir – Hugmyndir – Skipulag. Smekkur manna misjafn Í stuttu máli gengur ketó út á að borða lítið sem ekkert af kolvetnum, þar af leiðandi hvorki sykur né hveiti. Að­ spurð hvað sé leyndarmálið á bak við góðan ketó bakstur segir Hanna Þóra besta leyndarmálið vera að velja sætu­ efni sem hentar þér og þínum. „En smekkur manna er afar misjafn í þeim flokki. Sumir finna aukabragð af sætuefnum sem aðrir finna ekki, en það er afar misjafnt á milli tegunda. Úrvalið er sífellt að aukast og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og sleppt venjulegum sykri.“ Þegar kemur að því að breyta hefð­ bundinni uppskrift svo hún verði ketó, segir Hanna Þóra það vera lítið mál. „Lykilatriðið er að velja gott sætu­ efni til að nota í staðinn fyrir sykur. Ég nota mest möndlumjöl og kókos­ hveiti í staðinn fyrir venjulegt hveiti, en það er lægra í kolvetnum og laust við glútein,“ segir hún. „Ef um pönnukökur eða smákökur er að ræða er gott að hafa í huga að hafa hverja og eina ekki of stóra þar sem glútein er ekki til staðar, sem er bindiefni, og þær brotna frekar ef þær eru mjög stórar, en bragðið er ekki verra.“ Ketó-vænar smákökur með kaffinu Skemmtilegast þykir Hönnu Þóru að baka eitthvað með börnunum í kring­ um hátíðirnar og skapa þannig sam­ verustund í leiðinni. „Ég hef gert mikið af kókoskúlum og möndluklösum sem þarf ekki að baka í ofni og það slær ávallt í gegn heima hjá mér. Allir fá að skella í nokkrar jólalegar kókoskúlur og smakka. Súkkulaðibitakökur eru nýjasta æðið en það er lítið mál að baka ketó­vænar smákökur og hafa með kaffinu,“ segir Hanna Þóra. „Jólin eru fram undan með öllum þeim kræsingum sem þeim fylgja. Með öllum ketó­vænu uppskriftunum er leikur einn að fara samviskubits­ laust í gegnum hátíðirnar, njóta alla leið og borða góðan mat án kolvetna. Bökum eitthvað gott og njótum með okkar nánustu. Það að uppskrift sé ketó þýðir að hún sé sykur­ og hveiti­ laus, það eru innihaldsefni sem margir eru til í að sleppa með tilheyrandi blóð­ sykursjöfnun og vellíðan í kjölfarið.“ n Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is Ketó súkkulaðibitakökur með appelsínudropum 100 g smjör við stofuhita 80 g sæta 2 tsk. vínsteinslyftiduft Nokkur saltkorn 1 egg 2 dl möndlumjöl Sykurlaust súkkulaði, saxað 2 tsk. appelsínudropar/sykurlaust djúsþykkni Þeytið vel smjör, egg, sætuefni og appelsínu- dropa. Bætið næst lyftidufti og möndlumjöli saman við. Saxið sykurlaust súkkulaði og hrærið varlega saman við. Bakið við 180 gráður þar til kökurnar eru orðnar gulllitaðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.