Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Page 26
8 AÐVENTAN 20. NÓVEMBER 2020 DV
Ketó súkkulaðibitakökur
með appelsínudropum
Matarbloggarinn og rithöfundurinn Hanna Þóra segir að lykilatriðið í að baka góm-
sætar ketó-vænar uppskriftir sé að velja rétt sætuefni í stað hefðbundins sykurs.
Hanna Þóra hvetur fólk til að prófa ketó-væna uppskrift um jólin. MYNDIR/ERNIR
H anna Þóra Helgadóttir hefur fylgt ketó mataræði undanfarin tvö og hálft ár. Hún er
matarbloggari og deilir uppskriftum
á Instagram @hannathora88 og hanna
thora.is. Hún var að gefa út sína fyrstu
bók fyrir jólin, KETÓ – Uppskriftir –
Hugmyndir – Skipulag.
Smekkur manna misjafn
Í stuttu máli gengur ketó út á að borða
lítið sem ekkert af kolvetnum, þar af
leiðandi hvorki sykur né hveiti. Að
spurð hvað sé leyndarmálið á bak við
góðan ketó bakstur segir Hanna Þóra
besta leyndarmálið vera að velja sætu
efni sem hentar þér og þínum.
„En smekkur manna er afar misjafn
í þeim flokki. Sumir finna aukabragð
af sætuefnum sem aðrir finna ekki, en
það er afar misjafnt á milli tegunda.
Úrvalið er sífellt að aukast og því ættu
allir að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi og sleppt venjulegum sykri.“
Þegar kemur að því að breyta hefð
bundinni uppskrift svo hún verði ketó,
segir Hanna Þóra það vera lítið mál.
„Lykilatriðið er að velja gott sætu
efni til að nota í staðinn fyrir sykur.
Ég nota mest möndlumjöl og kókos
hveiti í staðinn fyrir venjulegt hveiti,
en það er lægra í kolvetnum og laust
við glútein,“ segir hún.
„Ef um pönnukökur eða smákökur
er að ræða er gott að hafa í huga að
hafa hverja og eina ekki of stóra þar
sem glútein er ekki til staðar, sem er
bindiefni, og þær brotna frekar ef þær
eru mjög stórar, en bragðið er ekki
verra.“
Ketó-vænar smákökur með kaffinu
Skemmtilegast þykir Hönnu Þóru að
baka eitthvað með börnunum í kring
um hátíðirnar og skapa þannig sam
verustund í leiðinni.
„Ég hef gert mikið af kókoskúlum og
möndluklösum sem þarf ekki að baka
í ofni og það slær ávallt í gegn heima
hjá mér. Allir fá að skella í nokkrar
jólalegar kókoskúlur og smakka.
Súkkulaðibitakökur eru nýjasta æðið
en það er lítið mál að baka ketóvænar
smákökur og hafa með kaffinu,“ segir
Hanna Þóra.
„Jólin eru fram undan með öllum
þeim kræsingum sem þeim fylgja.
Með öllum ketóvænu uppskriftunum
er leikur einn að fara samviskubits
laust í gegnum hátíðirnar, njóta alla
leið og borða góðan mat án kolvetna.
Bökum eitthvað gott og njótum með
okkar nánustu. Það að uppskrift sé
ketó þýðir að hún sé sykur og hveiti
laus, það eru innihaldsefni sem margir
eru til í að sleppa með tilheyrandi blóð
sykursjöfnun og vellíðan í kjölfarið.“ n
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Ketó súkkulaðibitakökur með appelsínudropum
100 g smjör við stofuhita
80 g sæta
2 tsk. vínsteinslyftiduft
Nokkur saltkorn
1 egg
2 dl möndlumjöl
Sykurlaust súkkulaði, saxað
2 tsk. appelsínudropar/sykurlaust djúsþykkni
Þeytið vel smjör, egg, sætuefni og appelsínu-
dropa.
Bætið næst lyftidufti og möndlumjöli saman
við.
Saxið sykurlaust súkkulaði og hrærið varlega
saman við.
Bakið við 180 gráður þar til kökurnar eru
orðnar gulllitaðar.