Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Page 27
Uppáhaldsdrykk-
urinn hennar Dom-
inique frá Kom-
bucha Iceland er
glóaldinadrykkur-
inn. Dominique er
einnig afar hrifin
af krækiber ja-
dr y k k num f r á
Kombucha Icel-
and, en krækiberin
gefa sæta, súra og
beiska bragðtóna
sem henni líka vel.
KYNNING 9DV 20. NÓVEMBER 2020
E ftir að hafa búið í Noregi og Danmörku í tíu ár sneri Dom-inique aftur heim og tók þá
ríkan þátt í að færa vínmenninguna
á Íslandi upp á hærra plan. „Ég kom
aftur árið 1993. Vínmarkaðurinn á
Íslandi var að taka stakkaskiptum
og það varð í raun alger sprenging.
Stærsta breytingin var að veitinga-
stöðum var nú heimilt að flytja inn
vín án milligöngu ÁTVR. Því fórum
við nokkur saman út í að stofna
vínþjónasamtök á Íslandi,“ segir
Dominique.
Dominique hefur rekið Vínskólann í
um 15 ár. „Skólann stofnaði ég vegna
þess að menntunin sem þjónarnir
fengu í þjónaskólanum dugði ekki á
vínsviðinu. Um leið og þjónarnir voru
orðnir vel að sér varð almenningur
forvitinn og vildi fá fræðslu. Það fór
því svo að ég bauð upp á námskeið
fyrir almenning líka.“
Hreifst samstundis við fyrsta sopa
Dominique hefur verið viðriðin vín-
bransann í hartnær 20 ár og tekið að
sér að þjálfa keppnislið í alþjóðlegum
vínsmökkunarkeppnum. En þessi
vínsérfræðingur ber ekki bara skyn-
bragð á gott vín heldur er hún einnig
hrifin af kombucha, þá sérstaklega
af Glóaldin kombucha og Krækiberja
kombucha frá íslenska fyrirtækinu
Kombucha Iceland.
„Ég man þegar ég smakkaði kom-
bucha í fyrsta sinn fyrir um 3-4 árum
á matarmarkaði í Hörpu. Manuel og
Ragna voru að kynna vörurnar sínar
frá Kombucha Iceland. Ég hafði smá
heyrt af þessu tískufyrirbæri sem
virtist vinsælt vestanhafs. Á þessum
tíma var virkur hópur íslenskra fram-
leiðenda að byrja ýmsa spennandi
framleiðslu og þau Ragna og Manuel
voru í þessum hópi með íslenskt kom-
bucha. Þegar ég tók fyrsta sopann
fann ég að þau voru alveg með þetta.
Þetta var einstaklega vel gert hjá
þeim og ég hreifst samstundis. Ég
fann að þetta virkjaði bragðlaukana á
skemmtilegan hátt. Manuel hljóp svo
til mín hinum megin við kynningar-
borðið, opnaði flösku með nýju bragði
og beið fullur eftirvæntingar eftir að
ég smakkaði nýja bragðið. Síðan þá
hafa þau verið dugleg að leita til mín
þegar þau þróa nýjar bragðtegundir.“
„Ég vil ekki ganga svo langt að
segja að kombucha sé eins og vín, en
get þó fullyrt að það séu ákveðnir
samnefnarar. Líkt og vín þá virkjar
kombucha frá Kombucha Iceland
öll skynfærin. Þú drekkur það ekki
bara með munninum heldur líka með
augunum og nefinu. Sama gildir með
sýrnina. Það verður að vera sýrni í
víni til að jafnvægið rétt sé og það er
eins í kombucha. Kombucha og vín
eiga það líka sameiginlegt að það þarf
að smakka nokkrum sinnum til þess
að kunna að meta, og þegar það er
komið þá er erfitt að snúa aftur.
Sjálf trúi ég og tengi sterklega við
allt sem er í nánd við mann, hvort
sem það er matur, vín eða annað. Ég
hef enga þörf á að sækja vín langar
leiðir heldur vil ég helst að þetta komi
úr moldinni sem maður stendur á.
Ást og alúð í hverjum skammti
Dominique Plédel Jónsson hefur starfað í vínbransanum í rúm 20 ár og er einn af frum-
kvöðlum vínmenningar á Íslandi. Auk þess er hún mikil áhugamanneskja um kombucha.
lifað án náttúrunnar og hún ver sig
ekki gegn okkur. Því verðum við að
hlúa að henni.
Sjálf er ég langhrifnust af Glóaldin
kombucha frá Kombucha Iceland.
Drykkurinn er í súrari kantinum sem
hentar mér vel, því ég sæki í súrt. Það
er jafnvægi í bragðinu og ég elska
líka nafnið, glóaldin. Einnig er ég
hrifin af krækiberjadrykknum frá
Kombucha Iceland. Bragðið er í fínu
jafnvægi og krækiberin bjóða upp á
flókna bragðpallettu af sætu, sýrni og
beiskju.“
Getur ekki án þess verið
Dominique segist hvorki vilja vera án
kombucha né góðs súrdeigsbrauðs.
„Ég sendist glöð milli bæjarhluta til
þess að komast í bæði. Ég bý í Árbæ
og hef nokkrum sinnum farið alla leið
í Kópavog að ná mér í áfyllingu af
kombucha. Sama gildir um uppáhalds-
súrdeigsbrauðið, það gengur ekki
hvað sem er á mínu heimili. Þetta
snýst allt um að það sé ást og alúð í
hverjum skammti og í hvert sinn sem
ég fæ mér sopa af kombucha þá hugsa
ég til Rögnu og Manuels. Því ég veit
að þau framleiða drykkina sína af ein-
lægni, metnaði og alúð.“ n
Dominique
Plédel Jónsson
átti stóran þátt í
að færa vínmenn-
inguna á Íslandi
upp á hærra stig á
síðustu öld. Ásamt
því að vera sér-
fræðingur í víni þá
er hún líka mikill
aðdáandi kom-
bucha frá Kom-
bucha Iceland.
MYND/SILJA RUT
THORLACIUS
Eftirfarandi aðilar í Reykjavík eru meðlimir í
Kombucha Iceland-fjölskyldunni
Krónan| Melabúðin| Fjarðarkaup| Heilsu-
húsið| Matarbúðin Nándin| Brauð og co. og
nú nýlega fáanlegt í Heimkaup. Einnig fæst
Kombucha Iceland í BioBorgara| Kaffihúsi
Vesturbæjar| Le Kock| Kaffi Laugalæk|
Mr.Joy| Mamá| Te og Kaffi| Systrasamlaginu
og á fleiri stöðum.
Einnig eru nokkrir sölustaðir úti á landi:
Vistvera á Selfossi| Ljómalind í Borgarnesi|
Fisk kompaní á Akureyri| Hús handanna á
Egilsstöðum og Kaja Organic á Akranesi.
Kombucha frá þeim Rögnu og Manuel
uppfyllir þessa nálgun því þetta er
íslensk framleiðsla.“
Góð áhrif á heilsuna
Dominique segir einnig forvitnilegt
hvernig kombucha verður til. „Þetta
er í raun gerjað te. Á meðan ég var
í burtu frá Íslandi var mikið rætt á
neikvæðum nótum um mansjúríu-
sveppinn sem tröllreið öllu. Voru því
margir fordómafullir í garð kom-
bucha þegar það komst aftur í tísku.
Ég missti sem betur fer af þessu
tali og var fullkomlega fordómalaus
þegar ég smakkaði kombucha fyrst.
Svo hefur það komið á daginn að
kombucha gerir mér afar gott hvað
varðar heilsuna. Ég er með sykursýki
og þarf að taka ýmis meðöl sem fara
mörg hver illa með meltingarveginn.
Eftir að ég byrjaði að neyta kom-
bucha að staðaldri tók ég eftir því
að meltingarvandamálin löguðust.
Ég veit að ég er ekki ein um þetta
og þetta er fullkomlega rökrétt, því
það sem er gerjað með þessu móti,
það fer vel í meltingarveginn, súrsað
grænmeti, súrkál eða annað. Fyrri
kynslóðir geymdu mat með þessu
aðferðum og nutu góðs af gerlunum
sem mynduðust við gerjun. Okkar
kynslóð hefur smám saman gleymt
þessu. Með því að taka þetta upp
aftur komum við jafnvægi á kerfið
okkar. Við uppfyllum eitthvað sem
hefur vantað. Kombucha frá Kom-
bucha Iceland uppfyllir þessa vöntun.
Svo er þetta líka svo hentugt. Það
er mun auðveldara að drekka tvö
glös af kombucha á dag en að neyta
heillar súrkálskrukku. Kombucha er
ekkert töframeðal enda trúi ég ekki
á slíkt. En það hefur raunveruleg
áhrif. Það er líka ótrúlegt hvað kom-
bucha býður upp á mikla fjölbreytni
í bragði og öðru. Það hefur sýrnina
en það er líka hægt að bragðbæta það
með ávöxtum.“
Svalandi drykkur
Dominique segist drekka kombucha
allt árið, þó meira á sumrin. „Enda er
þetta ofboðslega svalandi drykkur.
Ætli ég drekki ekki svona tvö glös
og upp í eina flösku á dag. Ég er með
þrjár flöskur sem ég fylli á hjá ein-
hverjum af þeim áfyllingarstöðum
sem Kombucha Iceland býður uppá.
Það hentar mér ágætlega því ég er
alltaf að leita að leiðum til þess að
huga að umhverfinu. Við getum ekki
MYNDIR/DANI GUINDO