Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Síða 30
12 AÐVENTAN 20. NÓVEMBER 2020 DV
10 ráð til að komast í jólaskap
1 Haltu jólaboð – strax Þetta er ekki grín og það
dugar að það sé einn gestur.
Það sem verður að vera á
boðstólum er jólatónlist,
sparilegur klæðnaður, kerti,
dúkur, jólaöl, piparkökur,
flatbrauð með hangikjöti og
konfekt.
2 Jólatónlist Gerðu jólalagalista
á Spotify og leyfðu þér að
hlusta á hann daglega.
3 Jólamynd Horfðu á jólamynd eða
þátt. Nýtt efni hrúgast nú
inn á efnisveiturnar. Love
Actually og Home Alone
standa svo alltaf fyrir sínu
og norsku þættirnir Home
for Christmas á Netflix eru
æði.
4 Bakstur Bakaðu smákökur og
drekktu ískalda mjólk.
5 Jólaljós Hengdu upp jólaljós.
Meira er betra.
6 Föndur Föndur hvers konar er
alltaf jólalegt. Hægt er að
kaupa ýmsa föndurkassa til
að gera sápur, kerti og bað
bombur á urd.is eða grípa í
eitthvað einfaldara og föndra
jólamerkimiða.
7 Jólaskraut Keyptu þér eitt nýtt
jólaskraut og stilltu því upp á
góðan stað.
8 Ilmkerti Kveiktu á jólalegu ilm
kerti eða kveiktu í kanilstöng
og leggðu í eldfast mót. í Body
Shop fást líka dásamlegir ilm
olíubrennarar og dropar.
9 Keðjupakkaleikur Startaðu keðjupakka
leik. Settu lítinn glaðning
á tröppurnar hjá vini eða
vinkonu og skoraðu á viðkom
andi að gera það sama fyrir
einhvern annan.
10 Góðgerðarmál Pakkaðu inn pakka
og gefðu til góðgerðarmála. Jólabjór, mandarínur og piparkökur koma manni langt. MYND/TM
GILBERt ÚRSMIÐUR
LAUGAVEGUR 62, 101 RVK
www.GILBERT.IS
Sími: 551 4100
J S
WA
T C H
C O . R E Y K J AV K
ARC-TIC úr
Með leðuról
29.900.-
Úrvalið af úrum hefur
aldrei verið meira
og ættu flestir að
geta fundið íslenskt
úr við sitt hæfi en
úrvalið má skoða á
www.gilbert.is
Hjá Gilbert úrsmið
sérhæfum við okkur
í úrsmíði, hönnun
og framleiðslu úra.
Áratuga reynsla,
metnaður og
fagmennska.
ARC-TIC úr
Með STÁLÓL
34.900.-