Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Síða 36
BÆÐI ÓLÍKAR
OG MARGSLUNGNAR
Katla Ársælsdóttir heldur úti hlaðvarpinu Beðmál
um bókmenntir. Henni finnst dásamlegt hvernig
bækur virkja ímyndunaraflið.
Flórída
eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur
Útgáfuár: 2017
Ljóðin í Flórída mynda eins konar
sögu, af kynnum ljóðmælanda
af fyrrum pönk-rokk-stjörnunni
Flórída. Svo virðist sem eitthvað
hafi komið fyrir Flórídu, því bráð-
lega kemur í ljós að ljóðmælandi
er í einhvers konar yfirheyrslu hjá
manni sem nefnist Herr Fleischer.
Undarlegt er að spyrja mennina
eftir Nínu Björk Árnadóttur
Útgáfuár: 1968
Árið 1965 kom út fyrsta ljóðabók
Nínu Bjarkar, Ung ljóð, sem vakti
mikla athygli og var fljótlega þýdd
á dönsku. Undarlegt er að spyrja
mennina var hennar önnur ljóða-
bók. Auk fjölda ljóðabóka gaf hún
út tvær skáldsögur og nokkur leik-
rit. Nína Björk fékk ýmsar viður-
kenningar fyrir skáldskap sinn og
var borgarlistamaður í Reykjavík
árið 1985.
Sögur og ljóð
eftir Ástu Sigurðardóttur
Útgáfuár: 1985
Þetta er safn allra smásagna sem
vitað er til að Ásta hafi að fullu
lokið við, auk úrvals ljóða hennar.
Sögurnar eru enn ferskar og ögr-
andi eins og þær voru þegar þær
komu fyrst út snemma á sjötta
áratugnum. Þær voru gríðarlega
mikilvægar fyrir þróun íslenskrar
sagnagerðar í átt að módernisma
og ekki síður fyrir aukinn hlut
kvenna í rithöfundastétt.
Wuthering Heights
eftir Emily Brontë
Útgáfuár: 1847
Bókin Wuthering Heights eftir Em-
ily Brontë kom út í íslenskri þýðingu
Sigurlaugar Björnsdóttur árið 1951
og nefndist þá Fýkur yfir hæðir. Í
nýrri þýðingu Silju Aðalsteinsdóttur
frá 2006 heitir hún hins vegar það
sama og á frummálinu.
Þetta er ein frægasta ástar- og
örlagasaga allra tíma. Bókin fjallar
um ungan og fátækan pilt, Heath-
cliff, sem er tekinn í vist af hinni
ríku Earnsworth-fjölskyldu. Á milli
hans og heimasætunnar, Catherine,
myndast brátt náinn vinskapur sem
á eftir að þróast í ástarsamand með
ófyrirsjáanlegum og alvarlegum af-
leiðingum.
Tímaþjófurinn
eftir Steinunni Sigurðardóttur
Útgáfuár: 1986
Alda er glæsileg nútímakona,
tungumálakennari við Mennta-
skólann í Reykjavík. Hún er af
góðum ættum og býr einhleyp við
ágætan efnahag. Líf hennar virð-
ist í traustum skorðum þar til ástir
takast með henni og einum sam-
kennara hennar. Samband þeirra
gerbreytir lífi hennar og verður að
lokum sá tímaþjófur sem ekkert
fær við ráðið.
24 FÓKUS
K atla Ársælsdóttir byrj-aði nýverið með hlað-varpsþættina Beðmál
um bókmenntir sem fjalla,
eins og nafnið gefur til kynna,
um bókmenntir. „Við leggjum
áherslu á fjölbreytilega um-
ræðu um heim bókmennta og
viljum sýna fram á hvað bæk-
ur geta verið ólíkar og marg-
slungnar. Umfjöllunarefnin
eru af alls konar toga, allt frá
sjálfshjálparbókmenntum til
klassískra verka Jane Austen.
Við skoðum einnig muninn á
bókum og kvikmyndaaðlög-
unum, tökum viðtöl við ólíkt
fólk og kynnum okkur bók-
menntastefnur sem við höfum
ef til vill ekki skoðað áður.“
Katla nemur bókmennta-
fræði við Háskóla Íslands
en er auk þess blaðamaður
á Stúdentablaðinu og oddviti
Hugvísindasviðs í Stúdenta-
ráði Háskóla Íslands.
Hún segir að það fallega
við bókmenntir sé hvernig
þær draga lesanda inn í alls
konar heima. „Það eru ólíkir
þættir bóka sem geta heillað
hvern og einn, hvort sem það
er ritstíll höfunda, lýsingar
á umhverfi og því um líkt.
Bækur virkja ímyndunar-
aflið á einstakan máta. Tveir
aðilar geta lesið sömu bókina
en sögusviðið sem þau ímynda
sér getur verið af mjög ólík-
um toga. Mér þykir það ótrú-
lega fallegt og í raun frekar
magnað, að reynsluheimur
hvers og eins hefur áhrif á
ímyndunaraflið og þar af leið-
andi á lestur textans. Það er
líka eitthvað svo yndislegt við
þá tilfinningu að lesa bók sem
erfitt er að leggja frá sér,“
segir hún. n
Umsögn: Með prósaljóðum og
söguljóðum segir Bergþóra sögu
tveggja kvenna í bókinni. Frásögn-
in er bæði drungaleg og falleg en
hún heldur lesanda vel við efnið.
Umsögn: Að mínu mati er Nína
Björk Árnadóttir eitt vanmetn asta
skáld Íslands. Ljóð hennar eru oft
persónuleg og hún er óhrædd við
að lýsa tilfinningum ljóðmælanda
með sterkum lýsingum. Nína
lýsir samskiptum kynjanna, ást
og girnd.
Umsögn: Umfjöllunarefni Ástu
eru ólík þeim hefðbundnu um-
ræðuefnum sem sjást hjá öðrum
skáldum á ritunartímanum, sér í
lagi kvenna. Sögurnar og ljóðin
eru djörf og oft óþægileg. Þessi
bók heillaði mig gífurlega.
Umsögn: Þessi ástarsaga eftir
Emily Brontë er bæði drungaleg
og spennandi. Það er auðvelt að
hrífast með í frásögninni, einna
helst með ástarsambandi Heath-
cliffs og Cathy.
Umsögn: Hér á ferð er ljóðrænn
tilfinningarússíbani um óendur-
goldna ást. Þessi bók er algjör-
lega einstök að mínu mati. Ég fæ
ekki nóg af henni. Enda tala ég
um fátt annað en hvað ég dýrka
þessa bók mikið.
Katla Ársælsdóttir fjallar jafnt um sjálfshjálparbækur og klassísk verk í nýjum hlaðvarpsþáttum. MYND/VALLI
20. NÓVEMBER 2020 DV
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is