Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2020, Blaðsíða 45
Þ essa vikuna er spáð fyrir Arnaldi Ind-riðasyni metsölurithöfundi okkar Ís-lendinga. Hans nýjasta bók heitir
Þagnarmúr, sem vert er að kynna sér nánar.
Arnaldur er fæddur 28. janúar, sem gerir
hann að Vatnsbera. Við fræðumst hér nánar
um persónuleika þeirra. Vatnsberinn er alltaf
skemmtilega skrítinn og ófeiminn við að vera
hann sjálfur, hann fer ekki endilega hefð-
bundnar leiðir. Ég persónulega hugsa alltaf um
myndina Hárið þegar ég hugsa til Vatnsberans,
en þeir eru alltaf innst við hjartað tréknúsarar
sem er annt um jörðina, frelsið og réttlætið.
Þeir eru sagðir vera framsæknir, sjálfstæðir,
greindir og hugsjónaríkir. Helstu gallar gætu
verið óþolinmæði og þeir gætu glímt við skap-
sveiflur af og til.
Þristur í stöfum
Framfarir | Útrás | Framsýni | Tækifæri erlendis
Plön og breytingar, plön og breytingar. Við verðum að
segja það í tvígang því spilið segir það svo sterkt. Þú
veist hvert þú stefnir og þú veist hvernig þú ætlar þang-
að, spennandi og nauðsynlegar breytingar fram undan.
Ég sé þig losa til, hreyfa við munum, þannig að mér finnst
líklegt að flutningar séu í kortunum og þú átt ófáa kassa
og bækur. Breytingar eru svo hollar, þær hrista upp í
orkunni og bjóða nýjum spennandi tímum inn um dyrnar.
Maður sér oft ekki fyrir fram hvað lítil ákvörðun um ein-
hvers konar breytingar gera mikið fyrir mann, einnig sér
maður ekki fyrr en eftir á að maður var jafnvel staðnaður
á þeim stað sem maður var á, áður en þessar breytingar
komu.
Páfinn
Andleg viska | Trúarskoðanir | Samræmi | Hefð
Kortin segja að þú sért korter frá því að fara í svokall-
aða ayahuasca kakó-seremóníu, einhver andleg ferð
er væntanleg hvort sem þetta ferðalag er með aðstoð
suður-amerískra plantna eða bara innra ferðalag sem þú
kemst í með hugleiðslu og náttúru Íslands. En ferðalag
engu að síður. Okkur öllum hefur þetta ár kennt ýmis-
legt og sett hlutina í samhengi. Við virðumst, mörg okkar,
opnari fyrir því að skoða mátt hugans og töfra heimsins.
Skilaboð frá spákonunni
Ef þú ert búinn að bíða eftir svari
þá er svarið „JÁ“. Láttu vaða.
STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Arnaldur Indriðason
SVONA EIGA ÞAU SAMAN
Vikan 20.11. – 26.11.
Andlegt ferðalag
Sjónvarpsstjarna og auglýsingahönnuður
MYND/SIGTRYGGUR ARI
stjörnurnarSPÁÐ Í
S jónvarpsstjarnan og handritahöfundur-inn Björg Magnúsdóttir er komin í sam-band með Tryggva Þór Hilmarssyni aug-
lýsingahönnuði hjá Aton JL. En hvernig ætli
þau eigi saman ef litið er til stjörnumerkjanna?
Tryggvi Þór er Vog og Björg er Hrútur. Þetta
eru afar ólík merki. Vogin er óákveðin og vill
að hlutirnir séu í fullkomnu jafnvægi, á meðan
hrúturinn er ákveðinn og öruggur í öllu sem
hann gerir.
Pörun Hrútsins og Vogarinnar minnir á par
í rómantískri gamanmynd, sem byrjar á því að
þola ekki hvort annað en endar með að elska
hvort annað svo mikið að þau eru tilbúin að
öskra það af fjallstindi. Þetta er tælandi pörun,
merkin eru svo andstæð að það er eiginlega
fullkomið. Vogin heillast af sjálfsöryggi Hrúts-
ins og fær þaðan kjark. Hrúturinn lærir af
glöggu Voginni, sem gefur alltaf svo góð ráð.
Bæði merkin eru rómantísk. Þau sjá bæði
fegurðina í lífinu og staldra bæði við þegar
þau sjá fallegt sólsetur eða nýfallinn snjó. n
Björg Magnúsdóttir
Hrútur
9. apríl 1985
n Hugrökk
n Ákveðin
n Örugg
n Áhugasöm
n Óþolinmóð
n Skapstór
Tryggvi Þór Hilmarsson
Vog
25. september 1981
n Málamiðlari
n Samstarfsfús
n Örlátur
n Félagsvera
n Óákveðinn
n Forðast deilur
MYND/SAMSETT
Hvað kaupir þitt merki á svörtum föstudegi?
Hrútur
21.03. – 19.04.
Þú ert venjulega frekar hagsýnn
og raunsær en það þarf bara örfá
rauðvínsglös og þú ert búinn að
panta silkifjaðraslopp fyrir þig og
systur þína, sinn í hvorum litn um!
Öll rök fljúga út um glugg ann og
tilhlökkunin til að fá tilkynningu um
póstsendingu lífgar upp á vikuna.
Naut
20.04. – 20.05.
Einhleypt eður ei þá nýttir þú þér
afsláttinn á einhleypa deginum
til þess að kaupa þér nýjasta og
heitasta kynlífstækið. Aðeins of
margir takkar en þú er spennt engu
að síður. En þessi kaup duga þér
í bili þannig að þú kaupir líklega
ekkert á næstu útsölu.
Tvíburi
21.05. – 21.06.
Tvíburinn nennir aldrei sérstak-
lega að pæla í peningum og á þar
af leiðandi alltaf meira í huganum
en í raun og veru. Hann kaupir því
oft allt sem hann langar í og pælir
lítið í að næla sér í einhvern afslátt.
Tvíburinn mun kaupa sér einhvern
óþarfa daginn eftir „Black friday.“
Krabbi
22.06. – 22.07.
Elsku Krabbinn er svo mikill kósý
krútthaus. Hann á pottþétt eftir að
kaupa sér einhvern dekurpakka
eða nýja sæng og kodda. Og þessi
koddi mun gleðja þig meira en
nokkuð annað. Það er yndislegt
hvað þú ert nægjusamur.
Ljón
23.07. – 22.08.
Ljónið vill alltaf skapa góða
stemningu. Ef þú kaupir ekki „lava“
lampa þá áttu eftir að kaupa þér
skjávarpa eða ljós sem skiptir um
lit eða jafnvel lítinn arinn. Eitthvað
sem skapar stemningu og eitthvað
sem þú hlakkar til að sýna gestum.
Meyja
23.08. – 22.09.
Meyjan er ágætlega nísk á sjálfa
sig en ef það hefur eitthvað að gera
með praktík þá er hún sko alveg til.
Þú átt pottþétt eftir að kaupa þér
löngu fram í tímann dagbók fyrir
2021 og einhverja skrítna skipu-
lagseiningu sem þér einni er lagið.
Litakóðað enn þá betra!
Vog
23.09. – 22.10.
Þú hefur þörf til að réttlæta kaupin
þín því þú ert mikill safnari og elsk-
ar smámuni. Sem betur fer er mikil
nostalgía í þér og því kaupir þú þér
sjaldan eitthvað nýtt og það er ekki
oft sem nytjamarkaðir taka þátt í
„svörtum föstudegi“ þannig að þú
eyðir ekki miklu þessa vikuna.
Sporðdreki
23.10. – 21.11.
Sporðdrekinn býr yfir miklum
klassa. Hann kann að meta vand-
aða hluti hvort sem hann hefur efni
á þeim eða ekki. Hann elskar fín
ilmvötn, kavíar og kampavín. Spá-
konan spáir því að Sporðdrekinn
kaupi sér merkjavöru þessa vikuna.
Bogmaður
22.11. – 21.12.
Það er mikil hætta á ferð þegar
Bog maðurinn heyrir „Útsala!“
Hann er bisness gúrú sem vill mikið
fyrir lítið og elskar að gefa gjafir.
Fallegar og skrítnar gjafir vekja
áhuga hans. Hann mun sannarlega
eyða miklu þessa vikuna.
Steingeit
22.12. – 19.01.
Líkt og Sporðdrekinn þá kann
Steingeitin að meta fallega merkja-
vöru en hún er þó mjög nægjusöm
og líklegri til að eyða í húmor eða
vini sína. Við spáum því að Stein-
geitin kaupi sér fullorðins samfellur
fyrir sig og sína. Eitthvað mjög
ópraktískt en þó fyndið.
Vatnsberi
20.01. – 18.02.
Vatnsberinn kann best að hugsa
vel um sjálfan sig og dekra við
sig. Þú átt eftir að kaupa þér
baðbombur og andlitsmaska sem
er smá í andstöðu við umhverfis-
verndina sem þú berst mikið fyrir.
En æ, maður má stundum leyfa
sér…
Fiskur
19.02. – 20.03.
Fiskurinn er nægjusamur en það
er samt margt á óskalistanum því
hann er líka fagurkeri og vill hafa
fínt og eiga fína hluti. Ólíkt Vatns-
beranum þá er hann þó sannur um-
hverfissinni (haha, ekki móðgast
Vatnsberi góður) og á eftir að gera
samviskusamleg kaup.
Ás í stöfum
Innblástur | Ný tækifæri | Vöxtur | Möguleiki
Við erum heila ævi að læra um okkur sjálf, það er merking
lífsins, þessi stöðuga þróun. Þegar við leyfum okkur að
þroskast og áttum okkur á því að við erum sífellt að læra
og breytast þá opnast fyrir okkur ýmsar dyr. Með þessum
breytingum sem eru í vændum hjá þér, kemur nýr inn-
blástur sem mun skapa af sjálfu sér samstarf og ný tæki-
færi. Það er sannarlega eitthvað að hlakka til.
FÓKUS 33DV 20. NÓVEMBER 2020