Fjölrit RALA - 10.09.1978, Page 6
2.
Eftir þessa forkönnun voru síðan hafnar uppþurrkunarframkvæmdir.
Voru um haustið grafnir með skurðgröfu tveir opnir framræsluskurðir
eftir endilöngum mýrarslökkunum beggja vegna holtsins, sem er í miðri
mýrinni. En mýrin þarf að þorna nokkuð, til þess að unnt sé að grafa
í hana fyrirhuguð þverræsi. Verður nú reynt að fylgjast með áhrifum
uppþurrkunar, og er með því hafinn nýr þáttur í rannsóknum á vistfræði
mýrarinnar.
3. Starfsfólk.
Yfirumsjón með rannsóknum þessum hafði dr. Sturla Friðriksson.
Við athuganir störfuðu tveir líffræðingar, Árni Bragason og Guðmundur
Halldórsson. Auk þess tóku ýmsir aðilar þátt í rannsóknum, svo sem
getið er x fundargerð.
Kristbjörn Egilsson líffræðingur greindi mosa mýrarinnar.
Jón Snæbjörnsson, bústjóri á Hesti aðstoðaði við töku vatnssýna
og Derek Mundell gerði efnagreiningar á vatnssýnum.
4. Fundargerð samstarfsnefndar Keldnaholti 5. 10. 1977.
Fundarefni: Vistfræðiathuganir RALA.
Fundarmenn: Frá Búnaðarfélagi íslands:
Björn Björnsson,
Haraldur Árnason,
öttar Geirsson.
Frá Bændaskólanum á Hvanneyri:
Árni Snæbjörnsson.
Frá Landgræðslu ríkisins:
Stefán Sigfússon.
Frá Náttúrufræðistofnun íslands:
Eyþór Einarsson.
Frá Veðurstofu Islands:
Flosi Sigurðsson.