Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Blaðsíða 2
Kötturinn í sekknum
Í slendingar eru annálaðir tækifærissinnar. Svartur föstudagur er gott dæmi
um það. Hér höfum við um
árabil heyrt sögur frá ná-
grönnum okkar fyrir vestan
í Bandaríkjunum um þennan
brjálaða tilboðsdag sem hald-
inn er eftir þakkargjörðar-
hátíðina. Kaninn dröslar sér
útþaninn af kartöflumús og
kalkúni til að standa í löngum
þröngum biðröðum til að
næla sér í takmarkað upplag
af einhverri neysluvörunni á
grín-verði. Æsingurinn er svo
mikill að fólk og starfsmenn
í búðum eru í stórhættu og
margir slasast í troðningnum.
En eins og kjaftasaga sem
gengur manna á milli hefur
mikið þynnst úr þessum til-
boðsdegi þegar hann nemur
land hér á landi. Svarthöfði er
alltaf hrifinn af góðum tilboð-
um. En honum finnst frekar
asnalegt þegar íslensk fyrir-
tæki eru að auglýsa aumingja-
legan 15 prósenta afslátt sem
einhver „Black-Friday“ kosta-
kjör. Þetta er bara bull og vit-
leysa og ekkert merkilegra en
hefðbundnir sófadagar í Ilvu.
Engu að síður missa Íslend-
ingar sig alveg jafn mikið og
Kaninn. Fyrir þennan líka
ómerkilega afslátt. Þetta gerir
það að verkum að við kaupum
og kaupum í einhverri bilaðri
maníu drasl sem við hefðum
aldrei keypt ef við hefðum
haft heila hugsun. En þegar
afsláttur er kynntur, og tíma-
bundinn í þokkabót, þá þýðir
ekkert að stoppa og hugsa.
Maður gæti misst af frábær-
um díl.
Aumingja frænkurnar og
frændurnir sem sitja uppi með
drasl í jólagjöf sem þurfti að
bjóða 20% afslátt af svo nokk-
ur fengist til að kaupa þetta.
Svo er svarti föstudagurinn
hér á landi enginn föstudagur.
Flestir buðu bara upp á afslátt
í heila viku. Varla er þetta heil
vika af föstudögum. Af hverju
getum við ekki bara búið til
eitthvert íslenskt nafn yfir
þetta. Jólabóla – Maníuvika
– eða eitthvað sem er ekki að
vísa í hefð erlendis sem við
erum ekki einu sinni að apa
rétt eftir?
Svarthöfði er samt að fara
að taka þátt í þessu. Hann
slær ekki hendinni á móti því
að kaupa jólagjafirnar á af-
sláttarverði. En hins vegar
væri hann til í að sjá ríkara
eftirlit með þessari fram-
kvæmd. Hver er að tryggja
að verslanir séu ekki að
hækka verð í aðdragandanum
og blekkja okkur? Annað eins
hefur nú gerst. Svarthöfði
hefur hvorki þolinmæði né
tíma til að gera stöðugan verð-
samanburð í október, nóvem-
ber og desember. Auk þess
sem sumir söluaðilar geta
verið ansi kræfir í að spinna
blekkingavefinn.
Það fæðist nýr hálfviti á
hverri mínútu, er orðtak sem
er eignað sirkusstjóranum
P. T. Barnum. Hvernig getur
Svarthöfði tryggt að hann
sé ekki einn af þessum hálf-
vitum? Og hvernig ætlar þú
að gera það? Gleymum ekki
að beita gagnrýnni hugsun og
vantreysta öllum. Það hefur
sýnt sig að það mun borga sig
á endanum enda eru allir að
reyna að svindla á þér og eng-
inn er með þér í liði nema þú
sjálfur. Það er ekkert gaman
að kaupa köttinn í sekknum,
jafnvel þótt hann sé á af-
slætti. n
SVART HÖFÐI
Aðalnúmer: 550 5060
Auglýsingar: 550 5070
Ritstjórn: 550 5070
FRÉTTA SKOT
550 5070
abending@dv.is
Vond hugmynd
Þ
að kannast margir við tilfinninguna
að bæta sér eitthvað upp. Bæta sér upp
takmarkanir sem settar hafa verið á
þjóðfélagið með því að gera betur við
sig á öðrum sviðum. Með súkkulaði,
rauðvíni eða óhóflegum internet-inn-
kaupum.
Þegar afslættir bætast við „uppbótar“-ástandið
getur skapast viss manía. Svo eru auðvitað að koma
jól sem gera maníuna að einhverju leyti „leyfilega“.
Það þekkja án efa einhverjir sælutilfinninguna
sem getur gosið upp við að kaupa sér langþráða flík
úr nætursvörtu sléttflaueli eða fallegt hreindýr sem
passar fullkomlega ofan á píanóið við hliðina á svarta
hnotubrjótnum. Eða það hefur fólk sagt mér – eða ég
lesið einhvers staðar. Fyrir löngu.
Auðvitað þurfum við ekki allt sem við kaupum en
að hafa safnað sér fyrir fallegum hlut og láta það
eftir sér að kaupa hann er oft góð tilfinn-
ing. Ekki eru öll kaup bruðl og ekki allar
konur vondar sem fá gæsahúð við að
eignast nýja skó. Aftur er þetta dæmi
gripið úr lausu lofti, ég þekki enga
þannig konu. Alls ekki.
Að því sögðu er samt svo miklu
skemmtilegra að kaupa eitthvað
sem þörf er fyrir og nýtist vel.
Því mun ég ekki sitja, sveitt á efri
vörinni, á Black Friday og moka
ódýru dóti í körfuna af því að það
er á svo góðu verði. Ég hef gert
innkaupalista yfir hluti sem
vantar og mun aðeins kaupa
það sem er á honum. Hluti
sem ég ætlaði að kaupa
hvort sem er – ekki af því
að þeir eru á afslætti.
Ég er nefnilega búin
að læra mína lexíu.
Allavega í bili. Ég hef
gert alls konar mistök.
Mistökin koma í kössum
nánast daglega.
Ég hef keypt ilmkerti á netinu
í massavís og pantað hótel í
Bandaríkjunum. Áttað mig svo
á því að við komu á hótelið að
hvert kerti er 1 kíló og í glerkrukku sem brotnaði
auðveldlega í ferðatöskunni.
Ég hef setið með ljósakrónu í fanginu í flugi, með
stóran steypujárnspott og verið með veskið fullt af
hurðarhúnum. Ég hef á 40% afsláttardegi mokað í
bræðiskasti ofan í innkaupanetið samstæðum náttföt-
um á alla stórfjölskylduna nema að pabbi fékk óvart
buxur í XXXXL því athygli mín var á yfirsnúningi.
Ég hef sum sé tekið þennan slag. Oftast gert mjög
góð kaup. En stundum ekki.
Það síðasta heimskulega sem ég gerði var að panta
frá Macy’s alls konar hluti sem ég kaupi venjulega
í árlegri Ameríkuferð minni og fást ekki hér. Stutta
útgáfan er sú að eitthvað klikkaði og ég fæ kassa á
hverjum degi. Síðasti kassinn innihélt eitt bindi.
Ding dong. 4.322 krónur, takk. Ding dong. 2.299
krónur, takk. Ding dong. 8.234 krónur, takk.
Ég hef lært mína lexíu eftir að hafa borgað stjarn-
fræðilegan kostnað í sendingargjald.
Ég þarf minna. n
UPPÁHALDS
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is
FRÉTTASTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Sigurbjörn Richter,sigurbjorn@dv.is PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000.
MYND/TM
Karen Kjartansdóttir,
framkvæmdastjóri Sam-
fylkingarinnar og útivistar-
maður, deilir hér með okkur
fimm uppáhalds gulu fyrir-
bærunum sínum.
1 Sósan
Er bernaise-sósa. Ég bý hana
til sjálf og mögulega full oft,
svona miðað við að innihalds-
efnin eru nær aðeins eggja-
rauður og smjör.
2 Hlaupavestið
Gula hlaupavestið mitt heitir
víst fullu nafni Salomon skin
pro 15 og var keypt í fyrra
fyrir þriggja landa hlaupa-
ferð í Ölpunum.
3 Hlaupajakkinn
Ég sá gult hlaupasett í
Fjallakofanum og langaði
samstundis í það. Ég reyndi
samt að stilla mig og hugsað
með mér að enn og aftur
væri guli liturinn að toga
óhóflega í mig. Á endanum
gafst ég upp.
4 Barinn minn
Er auðvitað guli barinn
Hannes boy á Siglufirði. Ekki
skemmir fyrir að hann er
kenndur við mann sem bar
sama nafn og eiginmaður
minn.
5 Kötturinn
Það er Gutti, guli kötturinn
minn. Gutti er mikill hús-
bóndaköttur og vill helst
bara vera hjá mér eða mann-
inum mínum, mun síður en
börnunum.
GULIR HLUTIR
2 EYJAN 27. NÓVEMBER 2020 DV