Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR 27. NÓVEMBER 2020 DV KVÍÐA JÓLUNUM Í HJÓLHÝSI Á tjaldsvæðinu í Laugardalnum býr fólk allan ársins hring. Rakinn frá sundlauginni ýtir undir nístingskulda og flughált er á svæðinu. Við- mælandi DV segir enga óreglu á svæðinu en að fólk eigi oft lítinn mat. Máni Snær Þorláksson manisnaer@dv.is M aðurinn sem blaða-maður ræddi við var í kringum fimm- tugt og hafði unnið lengi og var orðinn nánast skuldlaus þegar hann fékk hjartaáfall fyrir nokkrum árum. Líf hans breyttist við það til muna. Hann varð óvinnufær með öllu og er í dag öryrki. Hann sá að hann gat ekki haldið hús- inu sínu á örorkubótunum og því ákvað hann að kaupa sér hjólhýsi og setjast að í því. „Ég var heppinn að ég átti pening þegar ég veiktist og gat keypt þetta hjólhýsi. Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði verið nýbúinn að kaupa mér íbúð, ég væri bara kominn á ennþá dýpri lista í skuldum og húsnæðislaus,“ segir viðmælandinn. Óvissan bíður þeirra Lífið hefur ekki alltaf verið dans á rósum fyrir fólkið sem býr í hjólhýsunum, en síðan Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur, eða ÍTR, tók við rekstrinum á svæðinu, hefur það þó orðið betra. Maðurinn sem DV ræddi við hrósar ÍTR í hástert fyrir þeirra aðkomu að svæðinu. Farfuglaheimilið í Laugar- dalnum sér alla jafna um reksturinn á tjaldsvæðinu og leigir svæðið af borginni. ÍTR gerði samkomulag við Far- fuglaheimilið um að sjá um svæðið þar til í maí, en ekki er vitað hvað mun gerast þegar það samkomulag rennur út. Ekkert nema óvissan bíður því fólksins sem býr í hjól- hýsunum. DV ræddi bæði við Þorstein Jóhannesson, framkvæmda- stjóra Farfuglaheimilisins, og Ómar Einarsson, sviðsstjóra ÍTR, en hvorugur þeirra hafði nein svör varðandi framtíð svæðisins. Þorsteinn vildi lítið tjá sig um málið en Ómar sagði að það væri á vegum annarra í borginni að finna lausn á málinu. „Við vitum ekkert hvað verð- ur, hvert eigum við að fara í maí?“ spyr maðurinn. „Við erum þyrnir í augum annarra tjaldsvæða. Ef það fréttist að við höfum búið í Laugar- dalnum þá er bara vesen að komast inn á önnur tjaldsvæði því þau halda að þau losni ekki við okkur,“ segir hann. „Borgin þarf bara að fara að sjá sóma sinn í því að opna svona varanlegt pláss. Það er engin óprýði af þessu, það er engin ölvun eða vesen eða læti hérna eða neitt svoleiðis. Þetta er mjög rólegt og fínt hérna,“ segir hann og undirstrikar að engin neysla sé á svæðinu. Matur af skornum skammti Líkt og maðurinn eru flestir hinir sem búa í hjólhýsunum öryrkjar. Örorkubæturnar eru ekki háar og duga varla til framfærslu. Fólkið þarf að borga fyrir veru sína á svæð- inu auk gjalds fyrir notkun á þvottavélum og þurrkara. „Við fáum ekki örorkubætur og förum svo að kaupa okkur hamborgaratilboð,“ segir mað- urinn og bendir á að þau, líkt og aðrir, þurfa að borga trygg- ingar og annan fastan kostnað. Reyndar má ekki vera á svæð- inu nema allt sé tryggt. Þegar búið er að borga allt sem þarf að borga þá er lítið eftir af bótunum í mat og annað. Ef upp kemur óvæntur kostnaður, til dæmis vegna skemmda eða bilana, þá getur það sett stórt strik í reikning- inn. Þegar bíllinn hjá mann- inum bilaði fyrr á árinu tók það verulega á fjárhaginn. „Ég varð náttúrulega að láta laga hann. Það kostaði mig það að ég varð að lifa á... tja, ég keypti mér slatta af skyri og svo drakk ég vatn og kaffi.“ Fljúgandi hálka og myrkur Hjólhýsin eru upphituð með blásurum og ofnum en þó get- ur orðið virkilega kalt í þeim þegar illa viðrar. „Þegar það kemur mikið frost hérna þá er skítkalt hjá okkur,“ segir viðmælandinn og bendir á að vegna rakans frá sundlaug- inni sé yfirleitt meira frost hjá þeim en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. „Þá getur maður ekki leyft sér þann lúxus að sofa með opinn gluggann. Þetta er ekki gott fyrir heilsuna, en ég myndi frekar vilja búa í þessu heldur en að leigja íbúð og geta ekki átt fyrir mat,“ segir hann. Þá skapar kuldinn annað vandamál, hálku. Mikil hálka er á svæðinu auk þess sem það er engin almennileg lýsing þar. „Við erum vaðandi hérna í fljúgandi hálku og myrkri. Við skulum átta okk- ur á einu, burtséð frá þessu úrræði þá er þetta tjaldsvæði Reykjavíkur, höfuðborgar Íslands. Þetta er ábyggilega eini vegurinn á höfuðborgar- svæðinu sem er ekki malbik- aður.“ Fólk einangrast Þrátt fyrir að veðrið og kostnaðurinn geri fólkinu á svæðinu lífið leitt þá er það ekki eina vandamálið sem það glímir við. „Fólk getur einangrast ofboðslega hérna. Það er enginn að koma hingað. Þessi hjálparsamtök, Rauði krossinn, Hjálpræðisherinn, það er enginn að koma hingað og athuga hvernig við höfum það. Þetta getur bara farið illa með fólk og það getur dottið í þunglyndi og hver hefur efni á að fara til sálfræðings?“ spyr maðurinn. „Þetta hefur alveg slegið fólk niður en það sem maður horfir á er að maður hefur þak yfir höfuðið og getur sofið.“ Þannig verða jólin mín Jólin eru mörgum erfið og fólkið í hjólhýsunum er engin undantekning á því. „Það kvíð- ir alla fyrir jólunum hérna. Ég segi fyrir mig, ég get ekki horft á nein jól hér nema jú, við höfum jólaljós og við höf- um hvert annað hérna,“ segir maðurinn sem ætlar sér að eiga malt og appelsín og eina dollu af Mackintosh-konfekti um jólin. „Svo vona ég bara að það verði eitthvað skemmtilegt í sjónvarpinu. Þannig verða jól- in mín. Ég er ekki að fara að fá hamborgarhrygg, bayonne- skinku eða neitt svoleiðis því ég get ekki eldað þetta, hér er engin eldunaraðstaða. Það er hvergi hægt að setjast niður og koma saman. Það er bara súpa á gasinu, þú eldar enga steik hérna,“ segir maðurinn, sem þrátt fyrir slæma stöðu sína hugsar um að aðrir hafi það verra en hann sjálfur. „Ég veit vel að ég get farið til Hjálpræðishersins og fengið mér að borða. En ég tel bara marga vera í verri stöðu en mig. Þau þurfa á hjálpinni að halda og það þarf bara að vera svoleiðis.“ n 14 hjólhýsi eru á svæðinu en lítið viðhald virðist vera á tjaldsvæðinu sjálfu. MYND/STEFÁN Jólin koma líka í hjólhýsa- hverfinu. Fólk hefur hengt upp jólaseríur og reynir að gera svæðið vistlegt. MYND/MÁNI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.