Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Byltingarsinnaði
bakarinn
É g er með lágt verð á heilanum,“ segir Þórarinn Ævarsson
við blaðamann þar sem við
sitjum á skrifstofu hans á
pitsustaðnum Spaðanum í
Kópavogi. Það vakti athygli
fyrir rúmu ári þegar tilkynnt
var að Þórarinn hefði sagt
starfi sínu sem framkvæmda-
stjóri IKEA lausu, eftir 14 ár
í starfi. IKEA hafði þó djúp-
stæð áhrif á hann. Bæði má
merkja það af skrifstofu hans,
þar sem má finna klassískar
IKEA-gersemar á borð við
Billy-bókahilluna sem og í
hugmyndafræðinni sem hann
þróaði fyrir Spaðann – ein-
faldleiki, lágt verð og gott
samband við viðskiptavininn.
Skref niður á við
Þórarinn er menntaður bak-
ari, en fyrir tæpum tuttugu
árum ákvað hann að söðla um
og tók við starfi hjá nýjum
pitsustað á Íslandi, Domino’s.
Fyrst sem rekstrarstjóri
og síðar sem framkvæmda-
stjóri. Á þeim tíma þótti það
mikið skref niður á við fyrir
menntaðan bakara að fara að
starfa við pitsubakstur. Þórar-
inn fékk þó rými til að koma
góðum hugmyndum í fram-
kvæmd, hugmyndum sem enn
í dag setja mark sitt á fyrir-
tækið.
„Þegar GSM-símarnir voru
orðnir útbreiddir þá var Dom-
ino’s að nota tölvukerfi þar
sem pantanir birtust á skjá.
Um leið og búið var að gera
pöntunina þurfti að slá hana
af skjánum með því að ýta á
biltakkann á lyklaborðinu. Ég
fékk þá hugmynd hvort ekki
væri hægt að skrifa forrit
þannig að þegar pöntunin er
slegin af skjánum þá fengju
viðskiptavinir SMS um að
pitsan þeirra væri í ofninum.
Á þessum tíma var venjulega
umferðaröngþveiti fyrir utan
Domino’s. Sumir voru að koma
of snemma að sækja pitsur en
aðrir of seint á meðan pitsan
þeirra var að kólna. Þetta
var eiginlega bara ófremdar-
ástand og lítið hægt að gera
í því. Eftir að sms-in fóru af
stað þá breyttist þetta. Þjón-
ustustigið gjörbreyttist og
batnaði með nánast engum
tilkostnaði.“ Eins er Þórar-
inn maðurinn á bak við hina
frægu Megaviku á Domino’s
sem hefur án efa létt undir
með mörgum fjölskyldum í
landinu.
Sagt upp í fæðingarorlofi
Árið 2005, þá í fæðingarorlofi,
ákvað Þórarinn að segja starfi
sínu lausu eftir að nýir eigend-
ur tóku við Domino’s. Meðal
eigenda var félagið fræga
Baugur, sem Þórarinn hafði
illar bifur á. Hann tilkynnti
því eigendum að hann ætlaði
ekki að snúa aftur til starfa að
fæðingarorlofi loknu. Eigend-
urnir brugðust þá við með því
að reka Þórarinn.
„Sem er kolólöglegt og þetta
endaði með því að ég varð að
fara með málið fyrir Hæsta-
rétt, en vann það þar. En
þarna þegar fæðingarorlofi
mínu er við það að ljúka er
mér boðin vinna hjá IKEA
sem þá var niðri í Holtagörð-
um. Mér leist í raun ekkert á
það, enda þekkti ég húsgagna-
bransann ekki neitt. Ég hafði
reyndar alveg áhuga á hús-
gögnum og því að hafa fínt í
kringum mig en ég taldi mig
ekki rétta manninn í starfið.
Þeir sem buðu mér starfið
voru hins vegar mjög sann-
færandi og sögðu að ég hefði
reynslu af sölu frá Domino’s
og IKEA væri bara önnur teg-
und af sölu. Svo ég sló til og
þarna var ég frá 2005-2019 og
byggði þar upp, ásamt frábæru
fólki, gríðarlega sterkt fyrir-
tæki sem er umtalað í dag fyr-
ir að vera dálítið mikið öðru-
vísi en margir aðrir. Og þarna
gat ég látið alls konar drauma
rætast og fékk að haga mér dá-
lítið eins og óþekkur krakki í
dótabúð.“
Þórarinn gat beitt sér fyrir
málefnum sem brenna á hon-
um, á borð við umhverfismál,
náttúruvernd og jafnréttis-
mál og á meðan Þórarinn var
framkvæmdastjóri varð IKEA
fyrst á Íslandi til að fá jafn-
launavottun.
Þórarinn fékk aftur að koma
góðum hugmyndum í fram-
kvæmd og stóð að baki því að
bakarí var opnað í versluninni
og á heiðurinn af bæði pitsu-
deiginu og smákökudeigi sem
njóta feikilegra vinsælda hjá
fyrirtækinu. Og það eru að-
eins fáein dæmi um arfleifð
Þórarins hjá IKEA.
Gunnari Smára að kenna
Það má segja að brotthvarf
Þórarins úr IKEA og tilurð
Spaðans megi að einhverju
leiti kenna Gunnari Smára
Egilssyni, stofnanda Sósíal-
istaflokksins, um.
„Þú gætir slegið því upp í
fyrirsögn – Helvítis kommún-
istinn Gunnar Smári olli
þessu,“ segir Þórarinn og
hlær þegar talið víkur að
stofnun Spaðans.
„Fyrir um tveimur árum
hafði Gunnar Smári Egilsson
farið mikinn á samfélags-
miðlum út af verði á pitsum.
Þá höfðu dætur hans beðið um
pitsu, hann rétt þeim tvö þús-
und krónur og þær bara hlógu.
Heimi Karls og Gulla Helga
í Bítinu á Bylgjunni fannst
þetta áhugavert, vissu að ég
þekkti pitsubransann nokkuð
vel og buðu mér í viðtal til að
ræða um verðlagningu á pitsu.
Ég settist niður að kvöldi
og verandi hjá IKEA og með
þessi ofboðslegu innkaup sem
IKEA er með, þá taldi ég mig
vita að ég væri með jafn gott
verð og aðrir og því gat ég ná-
mundað mig nokkur veginn
að hráefniskostnaðinum, eða
svona þokkalega nálægt því.
Ég var í það minnsta ekki að
skjóta út í loftið. Svo vissi ég
hvað launin voru mikil. Ég
mætti þarna um morguninn
með sjóðandi upplýsingar um
að það mætti lækka verðið á
pitsum um að minnsta kosti
svona þúsund krónur en samt
haft hagnaðinn í lagi.
Ég sá því frá þessu að það
væri svigrúm fyrir einhvern
að koma inn á markaðinn og
þessi æfing kveikti það mikið
í mér að ég ákvað, þá 54 ára
gamall, að ég vildi gera eitt-
hvað sjálfur og gerði mér
grein fyrir að það væri nú eða
aldrei. Svo ég ákvað að segja
þetta gott hjá IKEA. Mér
fannst líka kominn tími til að
leyfa þessu frábæra fólki sem
var undir mér að vaxa upp. En
það má segja að ég hafi varan-
lega skaddast við það að vinna
fyrir IKEA. Ég er algjör-
lega heillaður af hugmynda-
fræðinni sem þeir hafa verið
með ótrúlega lengi þar sem
þeir hafa ítrekað og stöðugt
lækkað verð til almennings
og aldrei fallið í þá freistni að
fara út fyrir það.“
Eins hafði Þórarinn þarna
nokkra reynslu af því að taka
stór skref út í hið ókunnuga.
„Ég hætti sem bakari – sem
Þórarni
þykir mikil-
vægt að vera
fyrirmynd sem
yfirmaður og
gengur í hvert
það verk sem
þarf að fara í.
MYND/ERNIR
Þórarinn Ævarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri
IKEA, hefur lengi barist fyrir lægra vöruverði hér-
lendis og er óhræddur við að taka slaginn. Í dag
rekur hann pitsastað með sinni beittu hugmynda-
fræði og leggur allt undir, ævisparnaðinn og húsið.
27. NÓVEMBER 2020 DV
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
Íslenski neytand-
inn, ef það á að
lýsa honum, þá
er það að hann
bölvar í hljóði en
kemur aftur eftir
viku.