Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Page 21
KYNNING 21DV 27. NÓVEMBER 2020 K ynlífstækjaverslunin Herm­osa.is býður upp á eitt vandað-asta úrval af leiktækjum ástalífsins á Íslandi í dag. Verslunin býður upp á ókeypis heimsendingar- þjónusta, almennt lágt verð og vel valdar vörur sem hafa sýnt sig og sannað. Hermosa er besta vinkona þeirra sem langar að kynna sér unað kynlífstækjanna á þægilegan, auðveldan og síðast en ekki síst, skemmtilegan máta. Svartur föstudagur og Cyber mánudagur Hermosa tekur þátt í afsláttagleðinni í kringum svartan föstudag og staf- rænan mánudag og mun gefa allt að 50% afslátt af öllum vörum í vef- versluninni. Afslátturinn gildir frá svörtum föstudegi, yfir helgina og út stafrænan mánudag. „Á hverjum degi yfir þetta tímabil munum við birta eina leynivöru sem verður þá á 50% afslætti út daginn, sem er virkilega góður díll. Við treystum á að áhugasamir séu spenntir að kíkja á síðuna og sjá hvaða vara er í boði hvern dag fyrir sig,“ segir Vilhjálm- ur Þór Gunnarsson, annar stofnenda Hermosa.is. Samdægurs sendingarþjónusta „Við vinnum sífellt að því að bæta þjónustuna hvar sem hægt er, en viðskiptavinir okkar hafa kunnað vel að meta góða verðið, fríu heimsend- inguna og hvað vefsíðan er þægileg og einföld í notkun. En okkar mark- mið hefur alltaf verið að einskorða úrvalið við fyrsta flokks vörur. Eins og við segjum oft, þá nennir enginn að skoða 300 dildóa í leit að þeim eina rétta. Við erum búin að leggjast í rannsóknarvinnuna til að einfalda þér lífið. Nú bjóðum við upp á samdægurs heimsendingu alla virka daga, eða kost á að sækja samdægurs í vöruhús eða á valdar N1 stöðvar á leið heim úr vinnu. Ef pantað er fyrir hádegi þá geturðu fengið vöruna heimsenda samdægurs. Þetta er í raun engu flóknara en að panta pitsu. Þú færð sms þegar varan fer í bílinn og svo annað þegar það eru 15-20 mínútur í að hún komi til þín. Það þarf því ekki að bíða heima í heilan dag eftir heim sendingu. Ef fólk vill sækja þá er hægt að sækja sendingar frá kl. 17 og fram á kvöld á allar N1 stöðvar. Þessi kostur hentar mörgum sem vilja kippa pakkanum með sér heim úr vinnu og vilja ekki þurfa að vera heima. Einnig er hægt að sækja sjálfur í vöruhúsið fyrir kl. 17.00 á daginn. Svo höfum við bætt við lifandi spjalli á síðunni okkar. Þá geta við- skiptavinir náð í okkur á næstum hvaða tíma sólarhringsins sem er. Við erum nánast alltaf við því við getum hvort heldur er svarað í tölvunni eða símanum.“ Góð verð og enginn aukakostnaður Frá upphafi var áherslan lögð á að hafa lágt verð og kaupferlið sem einfaldast. „Hluti af því er að enginn aukakostnaður bætist við vöruna. Það er því enginn sendingarkostn- aður eða annar kostnaður sem bætist við í kaupferlinu. Verðin á síðunni eru verðin sem þú færð vöruna á. Umsagnirnar frá viðskiptavinum hafa einnig verið fram úr hófi já- kvæðar hvort sem um ræðir vörur eða þjónustu. Allar þessar frábæru umsagnir hvetja okkur til að vera á tánum og leita sífellt nýrra leiða til að auka þjónustuna enn frekar gagn- vart okkar frábæru viðskiptavinum. Umsagnir fjalla í mörgum tilfellum Allt að 50% afsláttur hjá Hermosa fram á mánudag Hermosa gefur allt að 50% afslátt á öllum leikföngum ásta- lífsins frá svörtum föstudegi og út Cyber mánudag. Á hverjum degi er sérstök vara kynnt sem verður á aukaafslætti út daginn. um þau markmið sem við höfum sett okkur, þ.e. gott verð, fría heimsend­ ingu og þægilega vefsíðu. Að auki er fólk himinlifandi yfir þjónustunni, en við bjóðum til dæmis upp á 30 daga skilafrest, í stað hinna lögbundnu 14 daga.“ n Hermosa vill einskorða úrvalið við fyrsta flokks vörur sem hafa sýnt sig og sannað. MYND/VALLI SATISFYER MONO FLEX er fallegur titrari með tveimur mótorum sem hægt er að stjórna sitt í hvoru lagi og veita kröftuga örvun á sníp og í leggöng. Kíktu við á hermosa.is og skoðaðu úrvalið. Facebook: Hermosa.is Instagram: hermosaisland SATISFYER MEN CLASSIC er frábær múffa án titrings. Inni í henni er einstakt munstur sem þrýstir vel að og veitir kraftmikla örvun. DÆMI UM VÖRUR SEM VERÐA Á GÓÐUM AFSLÆTTI ÚT MÁNUDAGINN SATISFYER CURVY sogtækið er hannað sérstaklega til þess að veita djúpa og kraftmikla örvun á snípinn. Tækið líkir eftir munnmökum með tveimur mótorum, annar fyrir sog og hinn fyrir titring.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.