Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Blaðsíða 23
FÓKUS 23DV 27. NÓVEMBER 2020
Keppnin í ár var þó óneitan-
lega eftirminnileg hvað varð-
ar grímunotkun keppenda,
hvernig var að æfa og sýna
með slíkan búnað á andlitinu?
„Það var upplifun. Þegar
við vorum á æfingum vorum
við með grímurnar á allan
tímann. Síðan á lokakvöldinu
þurftum við alltaf að vera
tilbúnar með grímurnar á
okkur þar sem það fór eftir
því hversu margar stelpur
voru á sviðinu og fjarlægðar
milli okkar hvort við þurftum
að klæðast grímum eða ekki.
Okkur var skipt í tvo hópa
yfir daginn með tileinkuð
svæði og okkur var haldið í
sundur nema þegar við fór-
um í rennsli með grímurnar
á. Það skemmtilega við þetta
er að vita að við erum eini
hópurinn sem mun þurfa
að halda sýningu klæddur
í grímur. Grímurnar segja
stóra sögu um hvað er búið að
vera í gangi í heiminum þetta
ár og myndirnar frá keppnis-
deginum eru einstök minning
sem ég mun alltaf halda utan
um.“
Flytur út ef COVID leyfir
Sjálf segist Elísabet Hulda
alltaf hafa mikinn áhuga á
leiklist bæði þegar kemur að
kvikmyndum og leikhúsi. Hún
sé sömuleiðis hrifin af ferlinu
baksviðs og þeirri vinnu sem
það taki að glæða atriðin lífi.
„Ég stefni á að sækja um í
leiklistarskólum, en stærsta
áskorunin er sú að áhuga-
málin mín liggja að mestu
leyti í Asíu. Ég er því búin að
vera að skoða leiklistarskóla í
þeim löndum. Þegar ég hugsa
út í framtíðina mína sé ég mig
alltaf vera búsetta einhvers
staðar í Asíu. Ég er ekki með
smáatriðin á hreinu en það
sem skiptir mestu máli er að
ég verði hamingjusöm í því
sem ég er að gera. Markmiðið
mitt er að kunna japönsku,
kóresku og kínversku reip-
rennandi fyrir 25 ára aldur.
Síðan vil ég læra taílensku og
kantónísku og vonandi einn
daginn rifja upp frönskukunn-
áttu mína. En eins og staðan
er í dag er ekki komin föst
dagsetning fyrir Miss Uni-
verse-keppnina, það fer allt
eftir hvernig ástandið mun
vera í heiminum og hvort það
verður möguleiki á að ferðast.
Fram að keppninni mun ég
taka við þeim verkefnum
sem felast í að vera Miss Uni-
verse Iceland og ég vil nota
þennan dýrmæta tíma sem ég
hef til þess að sinna starfinu
vel. Eftir keppnina úti mun
ég síðan fá að fylgjast með
næsta hóp og leiðbeina þátt-
takendum um hvað það sé
að vera Miss Universe Ice-
land og loksins krýna næstu
drottningu. Þegar ég set kór-
ónuna á hilluna mun ég síðan
flytja út ef COVID leyfir. En
eins og er er ég að njóta þess
að vera í núinu þar sem þetta
verður búið áður en ég veit af
því. Framtíðin er í smá óvissu
en það sem ég veit er að hún
verður björt.“ n
Markmiðið mitt er að kunna
japönsku, kóresku og kín-
versku reiprennandi fyrir 25
ára aldur. Síðan vil ég læra
taílensku og kantónísku.