Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Side 26
296 KÍLÓA HEIMABAR Í KÓPAVOGI
Þorvaldur Gísli Kristinsson tók í gegn forláta peningaskáp sem hafði verið í eigu
tengdaföður hans í áratugi. Skápurinn vóg heil 600 kíló en Gísli, eins og hann er
kallaður, lét það ekki stoppa sig í að finna honum hlutverk á heimili þeirra hjóna.
K onan mín, Heiðdís Björnsdóttir, gat engan veginn hugsað sér að
láta skápinn fara svo ég lagði
höfuðið í bleyti í leit að hlut
verki fyrir hann og þetta var
útkoman,“ segir Gísli. Hann
segist illa hafa getað hugsað
sér að smella skápnum inn í
stofu eins og hann var enda
töluvert flykki hér á ferð.
Sex pokar af ryki
Skápurinn var upprunalega í
eigu tengdaföður hans, Björns
Eiríkssonar. „Tengdafaðir
minn heitinn rak bókaútgáf
una Skjaldborg og hefur hann
flutt þennan skáp með sér í
nær 30 ár á milli einna fimm
staða. Hann eignaðist skáp
inn með húsnæði sem hann
kaupir af Brimborg í Ármúla
að ég held,“ segir Þorvaldur
en verkefnið áratuga gamall
peningaskápur verður bar var
ekki fljótlegt en útkoman er
vel þess virði.
„Ég hef ekki séð neitt þessu
líkt áður sjálfur. Skápurinn
var upprunalega 600 kíló
enda tvöfalt stál í þessu og
fullur af eins konar sements
ryki. Það var stórt rykský
yfir Kópavogi þegar ég var
að saga þetta allt úr honum
hér fyrir utan hjá mér. Það
fóru sex svartir ruslapokar
á Sorpu af dufti þann daginn.
Ég skipti út öllu stálinu sem
var inni í honum fyrir parket
og gler sem er mun léttara en
stálið og fallegra líka. Í dag
er hann 296 kíló,“ segir Gísli.
Hann fékk svo vin sinn Ella
krana til að hífa skápinn inn
á heimili þeirra hjóna.
Kostaði lítið
Hin handlagni bareigandi
segir kostnaðinn við verkið
hafa verið lítinn. „Þetta var
spegillinn, glerhillurnar og
parketið sem kostaði kannski
30.000 krónur. Ég notaði slípi
rokk en fór reyndar með ein
ar sjö skurðarskífur því þær
spændust upp eins og pappír.“
Aðspurður um hvort læs
ingin á skápnum virki enn
segir hann svo vera. „Hún er
enn nothæf enda tveir ungl
ingar á heimilinu og allur er
varinn góður,“ segir hann og
brosir.
„Svo fékk ég Sigurð Guð
mundsson æskuvin minn til
að sjóða inn í hurðina vín
rekkann.“
Skápurinn er búinn að vera
gæluverkefni hjá Gísla í tvö
ár en nú styttist í uppskeru
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
Gísli dundar
sér mikið í
skúrnum og
afraksturinn
er alls konar
snilld.
MYNDIR/
AÐSENDAR
hátíðina en skápurinn hefur
fengið áletrunina Bjössabar
utan á skáphurðina og er þar
vísað í tengdaföður hans.
Gísli segir mikla tilhlökkun
vera eftir slökunum á sam
komutakmörkunum svo hægt
sé að opna Bjössabar. „Það er
gríðarleg tilhlökkun og ansi
margir sem bíða eftir boði á
Bjössabar.“
Gísli er ekkert lærður og
segist bara fikta sig áfram.
Nýjasta verkefnið er jóla
dagatal handa eiginkonunni.
„Ég á reyndar eftir að skrifa
tölustafina inn,“ segir hann
og viðurkennir að hann hafi
nú þegar fengið fyrirspurnir
um að smíða dagatöl fyrir
fólk úti í bæ. „Það er ekkert
meiningin. Þetta er bara dund
í skúrnum hjá mér,“ segir
hann, hógværðin uppmáluð. n
Skápurinn
var uppruna-
lega 600 kíló
enda tvöfalt
stál í þessu
og fullur af
eins konar
sementsryki.
FLYKKI
Það þur f t i
krana til að
koma skápn-
um inn.
DAGATAL
Gísli er mikill
listamaður í
höndunum og
smíðaði þetta
jóladagatal
handa kon-
unni sinni.
EFTIR
Bjössabar bíður spakur eftir að
samkomutakmörkunum verði af-
létt.
FYRIR
Peningaskáp-
ur inn f yr ir
breytingar.
26 FÓKUS 27. NÓVEMBER 2020 DV