Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Blaðsíða 28
Kraig og Karen kynnt-ust í háskóla þegar Kraig var á lokaárinu
sínu en Karen var busi. Bæði
voru þau metnaðargjörn og
samnemendur þeirra lýstu
þeim sem afar skörpum ein-
staklingum. Tveimur árum
síðar voru þau búin að gifta
sig og eignast fyrsta barnið
sitt, stúlku sem fékk nafnið
Emily. Karen og Kraig virt-
ust vera yfir sig ástfangin og
Karen sagðist njóta þess að
gera eiginmann sinn ham-
ingjusaman.
Nokkru síðar fluttu þau í
Weatherford í Texas eftir að
Kraig var boðið gott starf
þar. Hjónin fluttu ásamt
dóttur sinni í smábæinn og
eignuðust þar tvö börn til
viðbótar, dótturina Lauren
og soninn Sean.
Ekki er allt gull sem glóir
Fjölskyldan varð fljótt vin-
sæl í smábænum. Dæturnar
stofnuðu hljómsveit með vin-
um sínum í bænum og Karen
var sögð skemmtileg og hug-
myndarík. Þá sagði besti vin-
ur Kraig, Victor Holtorf, að
samband Kraig og Karenar
væri það sem allir í bænum
miðuðu sín sambönd við.
Systir Karenar var því
hissa þegar Karen sagði
henni að samband hennar
og Kraig væri ekki jafn gott
og allir héldu. Karen sagði
systur sinni frá öllu því fá-
ránlega sem eiginmaður
hennar bæði hana um. Hún
sagði Kraig krefjast þess
að stunda kynlíf öll kvöld á
slaginu klukkan 8 auk þess
sem hann gaf henni útivistar-
tíma. Þá sagði Karen að kyn-
lífið væri orðið eins og hvert
annað húsverk fyrir henni
og að það væri það sem héldi
hlutunum góðum á heimilinu.
Kraig gaf eiginkonu sinni
vasapeninga og fylgdist
grannt með því í hvað þeir
fóru. Hann krafðist þess að
sjá kvittanir fyrir öllu sem
hún keypti, meira að segja
kvittanir fyrir hversdagsleg-
um hlutum eins og bleyjum
og morgunkorni.
Átti eftir að breyta
lífi hennar
Karen leið eins og hún væri í
fangelsi á sínu eigin heimili.
Í kjölfarið fór hún að stunda
líkamsrækt af krafti til að
fá útrás. Hún vissi að Kraig
myndi ekki láta hana fá pen-
inga fyrir aðild að líkams-
ræktinni og því safnaði hún
sér sjálf fyrir henni með því
að baka og selja kökur.
Karen sló í gegn á líkams-
ræktarstöðinni og var ráðin
sem þjálfari. Kraig sam-
þykkti þetta nýja starf henn-
ar með því skilyrði að hún
kæmi heim á réttum tíma til
að hugsa um börnin.
Á líkamsræktarstöðinni
hitti Karen Sunny Reece,
konu sem átti eftir að breyta
lífi hennar til frambúðar.
Karen og Sunny urðu fljótt
óaðskiljanlegar og ástin var
skammt undan.
Vildu ekki trekant
Það eru ekki allir sammála
um það hvernig samband
þeirra Karenar og Sunny
byrjaði. Sumir vilja meina
að Kraig hafi kynnt þær
fyrir hvor annarri í von um
að stunda trekant með þeim.
Aðrir segja að Kraig hafi ýtt
undir hugmyndir um trekant
þegar hann sá að þær voru
orðnar nánir vinir.
Sunny vill hins vegar sjálf
meina að Kraig hafi gengið
svo langt að senda henni
blóm og skilaboð í von um að
stunda trekant með henni og
Karen. Hún og Karen neit-
uðu þó að taka þátt í trekanti
með honum en á sama tíma
varð samband þeirra tveggja
nánara.
Kraig hélt upphaflega að
konan hans væri að ganga í
gegnum eitthvað tímabil og
að hún myndi fljótlega missa
áhugann á samkynhneigð-
inni. Það gerðist hins vegar
ekki og fannst Kraig það
vera komið úr böndunum.
Kraig ákvað því að taka
málið í sínar eigin hendur og
taldi það vera best að flytja
úr bænum. Karen var ósátt
við að flytja en Kraig var
alveg sama. Að lokum flutti
SAKAMÁL
Máni Snær
Þorláksson
manisnaer@dv.is
búnað í tölvuna hennar. Kra-
ig var hættur að geta hugsað
um vinnuna sína og hann
var því rekinn í kjölfarið.
Þarna var Kraig orðinn 48
ára gamall, búinn að missa
bæði vinnuna og fjölskyldu
sína. Hann neyddist því til að
flytja inn til foreldra sinna.
„Ég klúðraði, ég klúðraði“
Þegar þakkargjörðarhátíð
bar að garði seinna á árinu
var Karen hjá systur sinni
ásamt Sunny og dætrum sín-
um. Sean var hins vegar hjá
pabba sínum. Karen vildi að
öll fjölskyldan myndi heim-
sækja ömmu sína um helgina
og því fór hún daginn eftir
að sækja Sean til fyrrver-
andi eiginmanns síns. Karen
fór síðan með öll börnin til
ömmu sinnar.
Um kvöldmatarleytið gekk
Kraig inn til ömmu Karenar,
án þess að láta vita af sér.
Hann skaut fyrrverandi eig-
inkonu sína, ömmu hennar
og dætur sínar tvær. Hann
skaut sjö skotum sem fóru öll
þangað sem þau áttu að fara.
Öll fórnarlömbin létust sam-
stundis fyrir utan ömmuna
sem lést nokkrum dögum
síðar á sjúkrahúsi.
Kraig fannst skömmu síðar
úti í vegkanti þar sem hann
virtist vera illa áttaður. „Ég
klúðraði, ég klúðraði,“ segir
lögregluþjónn að Kraig hafi
sagt eftir að þeir handtóku
hann. Í bílnum hans fundust
meiri skotfæri auk kvíða-
lyfja.
Situr nú á dauðadeild
Fyrir dómi reyndi Kraig
að fá sig úrskurðaðan ósak-
hæfan vegna geðveilu. Rök
hans fyrir því voru sú að
hann hefði misst vitið vegna
ástarsambands Karenar og
Sunny. Þá voru kvíðalyfin
og það að hann reyndi ekki
að hylma yfir morðið einnig
notuð sem sönnun fyrir geð-
veikinni.
Saksóknarinn mótmælti
þessu og sagði að Kraig hefði
skipulagt morðið gaumgæfi-
lega. Hann benti einnig á að
öll skotin sem Kraig skaut
hefðu farið í fólkið. Það að
Kraig drap hvorki sig né
son sinn voru líka rök gegn
því að hann væri í raun geð-
veikur. Saksóknarinn náði
að sannfæra kviðdóminn og
að lokum var Kraig dæmdur
til dauða. Hann situr nú á
dauðadeild og bíður eftir
niðurstöðu áfrýjunar á mál-
inu. n
fjölskyldan til Missouri og
vonaðist Kraig að með því
væri bundinn endi á samband
Karenar og Sunny. Samband
þeirra tók hins vegar ekki
enda heldur hélt það einfald-
lega áfram í gegnum tölvu-
pósta, símtöl og heimsóknir.
Njósnir og skemmdarverk
Í lok ársins sem Kraig og
Karen fluttu til Missouri
fóru þau aftur til Weather-
ford til að fagna nýja árinu
með gömlum vinum. Sunny
var einnig gestur í gleð-
skapnum. Seinna um kvöldið
sáust þær Sunny og Kar-
en kyssast og var samband
þeirra því orðið opinbert
fyrir vinum þeirra og vanda-
mönnum. Kraig skammaðist
sín vegna þessa og reifst
heiftarlega við eiginkonu
sína. Fljótlega eftir veisluna
vildi Karen skilja við eigin-
mann sinn.
Næstu mánuðir áttu eftir
að verða erfiðir. Skilnaður-
inn gekk illa og rifust hjónin
mikið. Kraig var handtekinn
vegna gruns um heimilisof-
beldi og í kjölfarið flutti Kar-
en út og tók börnin þeirra
með sér. Kraig var fljótlega
látinn laus en hann hafði
lítinn áhuga á að hitta dætur
sínar aftur en vildi þó fá son
sinn til að heimsækja sig.
Hann treysti ekki konunum í
fjölskyldunni og fannst þær
vera búnar að svíkja sig.
Á næstu mánuðum varð
Kraig haldinn þráhyggju
gagnvart eiginkonu sinni.
Hann fór að elta hana, njósna
um hana, hleypa loftinu úr
dekkjunum á bílnum hennar
og síðan setti hann njósna-
Þakkargjörðarhátíð dauðans
Í bandaríska smábænum Weatherford í Texas bjuggu þau Kraig og Karen Kahler
við vellystingar og forréttindi. Hjónin áttu nægan pening og voru heillandi og vin-
sæl meðal nágranna sinna. En undir yfirborðinu leyndust óhugguleg vandamál.
Karen hélt að ástin boðaði betra líf.
Karen ásamt dætrum sínum, Emily og Lauren. MYNDIR/ FINDAGRAVE
James Kraig Kahler situr nú á dauðadeild.
28 FÓKUS 27. NÓVEMBER 2020 DV