Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Blaðsíða 41
Andabringur með appelsínusósu & sellerírótarmús
Ég var búin að mikla það fyrir mér
að elda önd, þetta er smá vinna en
alls ekki flókið og bara ekta eld-
hússkemmtun fyrir fólk að hittast,
elda saman með vínglas við hönd
og hafa það huggulegt.
Fyrir 3
2 andabringur (um 700 gr)
Salt & pipar
6-7 greinar ferskt timían
1 skalottlaukur
Ólífuolía
Smjör til steikingar
Byrjið á að skera nokkrar rendur í
fitulagið á bringunum.
Saxið ferskt timían, rífið skalott-
laukinn og blandið saman.
Veltið bringunum upp úr ólífuolíu,
salti, pipar og timíanblöndunni.
Setjið góða smjörklípu á pönnu,
hitið pönnuna vel og steikið
bringurnar á pönnunni, byrjið á að
steikja fitulagið á bringunum fyrst
þar til fituröndin er orðin dökkbrún
að lit, lækkið hitann örlítið á pönn-
unni og steikið svo hinar hliðarnar
á bringunum.
Setjið bringurnar í ofn við 180
gráður í um það bil 10-15 mínútur,
matsatriði hversu vel eldað þið viljið
hafa kjötið. Passið að halda eftir
soðinu sem myndast af bringunum
til þess að fullkomna sósuna.
Takið bringurnar út úr ofninum og
látið þær standa í um 15 mínútur
áður en skorið er í þær og þær
bornar fram.
Kampavíns-appelsínusósa
Má tvöfalda fyrir sósusjúka.
1dl kampavín
Safi úr 1 appelsínu
2 tsk. hunang
½ blaðlaukur
Smjör til steikingar
2 dl soð
Byrjið á að steikja blaðlauk upp úr
smjöri og brúnið hann aðeins. Setj-
ið laukinn til hliðar. Hann er borinn
fram með matnum sem meðlæti.
Blandið saman kampavíni, safa úr
appelsínu og hunangi við vægan
hita og hrærið vel í blöndunni.
Raspið smá appelsínubörk út í og
hellið soðinu af andabringunum
saman við og leyfið að malla aðeins
við vægan hita svo sósan þykkni.
Berið fram með bringunum, bæði
gott að hella sósunni yfir bringurnar
og eins er gott að hafa sósuna til
hliðar til að dýfa kjötinu ofan í.
Sellerírótarmús
1 væn sellerírót
3 cm af piparrót
Salt
Smjör
Afhýðið sellerírótina og skerið
hana niður í nokkra minni bita.
Sjóðið rótina þar til hún er orðin
mjúk.
Sigtið vatnið frá og maukið sellerí-
rótina í potti við vægan hita og rífið
piparrótina út í með fínu rifjárni og
að lokum er salti og smjöri bætt
saman við að vild.
Berið fram með öndinni og leggið
steikta blaðlaukinn ofan á.
Verði ykkur að góðu.
Una í eldhúsinu
Brownies með bismark &
Irish coffe heslihnetum
250 g smjör
3,5 dl sykur
2 dl kakó
4 tsk. vanillusykur
4 egg
3 dl hveiti
100 g heslihnetur með Irish coffee
bragði (frá H-berg)
50 g bismark brjóstsykur
Stillið ofninn á 180 gráður.
Bræðið smjör í potti og leyfið því
aðeins að kólna.
Sykri, kakói, vanillusykri og eggjum
er bætt út í pottinn og hrært saman.
Loks er hveiti sigtað saman við og
hært vel í blöndunni.
Hellið deiginu í ferkantað form, og
setjið inn í ofn í um 15 mínútur.
Á meðan eru hneturnar hakkaðar
ásamt brjóstsykrinum.
Takið kökuna úr ofninum og stráið
hnetum og brjóstsykri yfir og
setjið kökuna aftur inn í ofn í um
10 mínútur.
Leyfið kökunni að kólna áður en
að hún er skorin í bita og borin
fram.
Una Guðmunds ræðst ekki
á garðinn þar sem hann er
lægstur. Hún mælir með
þessum hátíðlega rétti til að
koma sér í jólaskap og jafnvel
„reynsluaka“ jólamatinn í fá-
mennum en góðmennum hópi.
MYNDIR/AÐSENDAR
OnePortal er
vefgátt sem gerir
fyrirtækjum og sveitar-
félögum kleift að veita íbúum
þjónustu allan sólahringinn, allt
árið um kring. Rafrænir innri ferlar
eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa
eða viðskiptavini, þar sem þeir
Gæða-
stjórnun á
stór n þátt í góðum
árangri fyrirtækja.
OneQuality er lausn sem
OneSystems bjóða heildarlausn
í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga
og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra
Hagkvæmar lausnir
með áherslu á rekjanleika,
auðveldan aðgang og gagnsæi.
OneRecords er öug lausn sem auðveldar
fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan
um mál sem eru í gangi á hverjum tíma.
Stjórnendur hafa yrsýn yr gang mála
innan fyrirtækisins og notendur
geta á einfaldan máta sótt
lista yr þau mál sem þeir
bera ábyrgð á.
Vilt þú koma
skjalamálunum
í lag?
VELJUM
ÍSLENST - VELJUM
ÍS
LE
NS
KT
-V
EL
JUM
ÍSLENSKT -
Recor s
Mála- og skjalakerfi
Self-Service
www.one.is
OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is
www.one.is . one@one.is
sími: 660 8551 . fax: 588 1057
MATUR 41DV 27. NÓVEMBER 2020