Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2020, Page 46
46 SPORT 433 GLEÐILEGT SÍTT HÁR Hárígræðslur eru alltaf að verða betri og betri og karlmenn sem fá skalla ungir að árum fara í ríkara mæli í slíkar aðgerðir. Aðgerðirnar geta rifið rausn- arlega í budduna en þó eru til ódýrari lausnir fyrir þá sem kjósa þær og eru ekki á atvinnumannalaunum. 27. NÓVEMBER 2020 DV Atvinnumenn í knatt­spyrnu hafa oft tals­verða fjármuni til að spila úr og þeir líkt og aðrir hafa í meira mæli verið að láta græða á sig hár þegar það fer að þynnast. Áætlað er að hár­ ígræðsluaðgerð geti kostað allt að sex milljónum króna en svo þarf að halda henni við. Margir tengja Wayne Roo­ ney, markahæsta leikmann í sögu Manchester United og Englands, við hárígræðslur knattspyrnumanna. Rooney fór í sína fyrstu hárígræðslu árið 2011 og hefur síðan þá farið reglulega til að láta halda hárinu við þegar það fer að þynnast aftur. Hárígræðsla Rooneys þykir hafa tekist vel en hann var ekki orðinn 25 ára gamall þegar hárið var tekið að þynnast allverulega. „Já, ég fór í hárígræðslu. Af hverju ekki?“ tvítaði fótboltamaður­ inn eftir aðgerðina, alsæll með árangurinn. Antonio Conte, þjálfari Int­ er, á eina frægustu greiðsl­ una. Hann missti hárið ungur að árum en er með þykkt og gott hár í dag 51 árs gamall. Aðdáendur fótboltamannsins fyrrverandi fylgdust margir hverjir með hárinu hverfa á nokkrum árum en hann fór frá því að vera nauðasköllóttur í að verða síðhærður á stuttum tíma með hjálp tækninnar. Conte ferðaðist til Vancouver í Kanada og undirgekkst aðgerð þar eftir tvær misheppnaðar tilraunir til að endurheimta hárið á skurðstofu á Ítalíu. Margir velta því svo fyrir sér hvort sjálfur David Beck­ ham hafi látið laga á sér hárið sem þykir grunsamlega þykkt ennþá en það hefur aldrei fengið staðfest. Hugsanlega eru góð gen þar að verki. En nokkuð ljóst er að flestir á þessum lista hafa fengið að­ stoð við að halda í hárið. n Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is WAYNE ROONEY Aldur: 35 ára Þjóðerni: Enskur ANDROS TOWNSEND Aldur: 29 ára Þjóðerni: Enskur DIMITAR BERBATOV Aldur: 39 ára Þjóðerni: Búlgarskur ANTONIO CONTE Aldur: 51 árs Þjóðerni: Ítalskur DAVID SILVA Aldur: 34 ára Þjóðerni: Spænskur DAVID BECKHAM Aldur: 45 ára Þjóðerni: Enskur MYNDIR/GETTY

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.