Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1976, Side 29
ÍSL. LANDBÚN.
j. agr. res. icel, 1976 8, 1-2: 27-47
Vinnurannsóknir í fjósum
Grétar Einarsson
Rannsóknastofnun landbúnaðarins,
Búteeknideild, Hvanneyri.
YFIRLIT
Á vegum Bútæknideildar Rannsóknastofnunar landbúnaðarins voru veturinn 1974—75 gerðar
vinnumælingar á nautgripahirðingu á 20 bæjum. Ætlunin var einkum að kanna þær vinnuaðferðir,
sem beitt er, með tilliti til vinnumagns.
Miðað við íslen2kar aðstæður voru þau býli, er völdust í þessa athugun, fremur stór. Meðalfjöldi
var 47 kýr, 25 geldneyti og 8 mjólkurkálfar. Mælt var í tvö mál á hverjum bæ (einn sólarhring)
og einungis sú vinna, er sinna þarf daglega um innistöðutímann.
Helztu niðurstöður eru:
1. Heildarvinnutíminn skiptist þannig að meðaltali: mjaltir 63,9%, heyfóðrun 16,7%, hreinsun
9,6% og önnur vinna 9,8 %.
2. Mælingar á vinnu við mjaltir sýndu eftirfarandi meðaltöl:
karlmanns-
mín/kú/dag
vélfötur, ekki handhreytt ................. 10,0
rörmjaltakerfi, ekki handhreytt ............ 7,2
rörmjaltakerfi, handhreytt ................. 9,7
mjaltabás, ekki handhreytt, 2 menn . . 7,3
mjaltabás, ekki handhreytt, 1 maður . . 5,0
mjaltabás, handhreytt, 2 menn .............. 8,0
Milli afkasta mælt í mín/1. (y) og mín/kú/dag (x) fékkst eftirfarandi samhengi:
y = -f- 0,03 + 0,1 Ox,
en af þessari líkingu má hafa not við val á kerfum með tilliti til afkastagetu.
3. Vinna við þurrheysfóðrun er mjög breytileg eftir aðstæðum og heyformi, frá um 4 til um 25
mín/100 kg. Sé heyið bundið, tekur fóðrunin að meðaltali 6,8 mín/100 kg, með laust þurrhey
og góðar aðstæður um 6—10 mín/100 kg, en við slæmar aðstæður um og yfir 20 mín/100 kg.
Samhengið á milli heildarvinnu (y, mín/100 kg) og flutningavegalengdar (x, metrar) virtist vera:
y — 6,11 + 0,40x.
4. Við votheysfóðrun er heildarvinnan að meðaltali um 4,5 mín/100 kg, sé heyið tekið úr turni, úr
flatgryfjum með svipaða vélvæðingu um 3,2 mín/100 kg, en sé losunin vélvædd úr flatgryfju,
er heildarvinnan um 2,3 mín/100 kg.
5. Kjarnfóðurgjöf í mjaltabás með þar til gerðum búnaði er nær sjálfvirk og tekur því hverfandi
tíma. Kjarnfóðurgjöf á fóðurgang, þá oftast úr börum, tekur 2—6% af heildarvinnunni við
gripahirðinguna. Þessi tími er oft um 1 mín á 10 kg af kjarnfóðri.