Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1976, Qupperneq 82
80 ÍSLENZKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
9. tafla. Table 9.
Efnainnihald lambalifra.
Analysis of lamb livers.
Flokkur - Groups
I II III IV
% burrefni DM 31,00 31,40 31,22 30,70
% Hrápróteín Crude protein 71,40 68,60 71,30 6 5,40
% Fita Fat 4,40 6 ,40 5,27 3,45
% Aska Ash 5,41 4,78 6,37 6,50
Kopar, ppm Cu, ppm 27,25 81,25 18,12 22,37
í I. og II. fl., og í IV. fl. ern þeir rúmlega
tvöfalt þyngri en í samanburðarflokkunum.
Raunhæfnisútreikningar sýna, að hér er
greinilegur munur á lambaflokkunum.
Efnainnihald lambalifranna er sýnt í 9. töflu.
Lítill sem enginn munur er á þurrefnismagni
lifranna, sem er á bilinu 30,7—31,4% þe. í
öllum flokkunum. Aftur á móti var lítið eitt
minni fita og próteín í lifrunum úr IV. fl., en
aska var lítið eitt minni í samanburðarflokk-
unum. Koparmagn lifranna var langmest í
II. fl., 81,2 ppm, en minnst í III. fl., 18,1
ppm. Athyglisvert er, hve koparforði lifranna
er mikill miðað við I. fl., sem fargað var
4/10. Þá hefur IV. fl. lítið eitt meira kopar-
magn í lifrunum en III. fl.
/. Bragðgœdi lifra.
Tutmgu og tveir nemendur, piltar og stúlkur
í Bændaskólanum á Hvanneyri, gáfu ein-
kunnir fyrir bragðgasði lifra úr I. tilrauna-
flokki (samanburðarfl.) og III. (fóðurkálsfl.).
Notaður var einkunnastiginn frá 1—5 við
einkunnagjöfina, og táknaði 5 mest hugsan-