Fréttablaðið - 10.12.2020, Blaðsíða 2
Skutu úr fallbyssu til heiðurs Halldóri
Halldór Nellett, skipherra á varðskipinu Þór, lauk tæplega hálfrar aldar ferli hjá Landhelgisgæslunni þegar varðskipið kom til hafnar í Reykjavík
í gær. Halldór tók þátt í tveimur þorskastríðum og var jafnframt í áhöfn varðskipsins Ægis sem kallað var út þegar gos hófst í Heimaey 23. janúar
1973. Áhafnir Þórs og Týs stóðu heiðursvörð og þremur púðurskotum var skotið úr fallbyssu honum til heiðurs. MYND/LANDHELGISGÆSLA ÍSLANDS
SAMFÉLAG „Ég er ótrúlega þakklát
því þrátt fyrir allt sem er í gangi
þetta árið er ég búin að blómstra,“
segir leikkonan og handritshöf-
undurinn Dóra Jóhannsdóttir sem
útskrifaðist úr Hússtjórnarskól-
anum í vikunni.
Þó að margir séu búnir að hafa
það skítt hefur Dóra blómstrað
svo eftir hefur verið tekið. Hún fór
í meðferð í Svíþjóð og missti þannig
af fyrstu bylgju COVID hér á landi
og Hússtjórnarskólinn hélt uppi
starfsemi í haust. Næst á dagskrá eru
svo sketsaskrifa-námskeið á netinu
hjá Improv skólanum þar sem nem-
endur læra aðferðir við að vinna í
höfundaherbergi og skrifa sketsa.
Hún kann jú að gera góða brandara
en hún var yfirhandritshöfundur
Áramótaskaupsins 2017 og 2019.
„Ég er búin að ganga með það í
kollinum síðan ég var mjög ung að
fara í Hússtjórnarskólann. Ég er
að fara inn á veikleikana mína því
ég hef aldrei fundið mig við heim-
ilisstörf eða eldamennsku eða neitt
slíkt. Mér fannst það valda mér
kvíða og vera alveg ógeðslega erfitt
þannig að ég ákvað að styrkja mig
þar sem ég er ekki sterk,“ segir hún.
Dóra útskrifaðist með mjög góðar
einkunnir, lægsta þó í matreiðslu, en
hún viðurkennir að vera með ein-
hverja ólæknandi meinloku þegar
kemur að eldamennsku. Hún biður
því fólk að spara væntingarnar
þegar hún getur boðið í matarboð
eftir COVID. „Ég fæ þó tækifæri til
að nota útsaumuðu svuntuna sem
ég eyddi mörgum vikum í að gera.“
Hún segir að námið sé bæði
rólegt og hörkupuð. Það hafi þó
verið þannig að hún vaknaði alltaf
með bros á vör, tilbúin að mæta í
skólann. „Þetta er frá átta til fimm
á daginn og hörkuvinna og í raun
miklu meira álag en ég hefði getað
ímyndað mér. Þetta er bara ein önn
en ég hefði verið til í að vera þrjú ár
þarna. Það er svo dásamlegur andi
þarna inni og þetta er algjör dem-
antur. Að vera að læra að búa eitt-
hvað til í höndunum er svo gefandi,
róandi og nærandi.“
Hún segir að önnin hafi liðið
hratt. Of hratt enda var gleðin við
völd. „Ég held að það hafi komið
mörgum á óvart að ég hafi farið
í þetta nám en þetta er ein besta
ákvörðun lífs míns.
Það var mikil gleði hjá okkur í
vetur. Ég reyndar veit varla hvernig
aðrir nemendurnir líta út því við
vorum alltaf með grímu en það voru
allir svo yndislegir. En þetta er búið
að vera svo gott ár og ekkert nema
ást og hamingja á mínu heimili,“
segir Dóra.
benediktboas@frettabladid.is
Skólavistin líklega ein
besta ákvörðun lífsins
Dóra Jóhannsdóttir, leikkona og handritshöfundur, útskrifaðist nýverið úr
Hússtjórnarskólanum. Hún vonast til að geta frumsýnt svuntu sem hún gerði
í matarboði þegar COVID er búið. Fékk sér hund í útskriftargjöf frá sjálfri sér.
Dóra í lopapeysu sem hún prjónaði sjálf. Hún hefur þegar fengið símtöl frá
vinkonum ráð um hvernig hægt sé að fjarlægja kertavax. MYND/AÐSEND
Þetta er frá átta til
fimm á daginn og
hörkuvinna og í raun miklu
meira álag en ég hefði getað
ímyndað mér. Þetta er bara
ein önn en ég hefði verið til í
að vera þrjú ár þarna.
Dóra Jóhannsdóttir
Nú einnig á selected.is
Jólafötin og fallegar gjafir
MENNTAMÁL 158 nemendur í einum
áfanga Háskóla Íslands skrifuðu
undir lista þar sem staðprófi sem
haldið var á þriðjudag var mótmælt.
Þetta voru um 40 prósent allra nem-
enda í áfanganum, STÆ105G/108G,
en heildarfjöldinn er 336.
Með undirskriftalistanum fylgdu
upplýsingar um stöðu nemendanna.
Ellefu þeirra eru sjálfir í áhættuhópi,
67 umgangast daglega fólk í áhættu-
hópi og 52 reglulega. Það eru alls 38
prósent. Var listinn sendur á bæði
kennara námskeiðsins og nemenda-
þjónustu verkfræði- og náttúruvís-
indasviðs, síðan almannavarnir og
menntamálaráðuneytið, en prófið
fór samt fram samkvæmt áætlun.
Nemendur gagnrýna að misjafnt
sé hversu vel tveggja metra reglunni
hafi verið sinnt sem og grímuskyldu.
„Við höfum heyrt í fleiri nemend-
um sem lýsa einfaldlega yfir hræðslu
við að mæta á prófstað og sú stað-
reynd að hópsmit í prófatíð sé mögu-
leiki, þrátt fyrir að sóttvarnareglum
sé fylgt, ætti einfaldlega að vera nóg
til þess að endurskoða þetta fyrir-
komulag,“ segir í bréfi með listanum.
Róbert Haraldsson, sviðsstjóri
kennslumála, segir fyrirmælum um
sóttvarnir fylgt í hvívetna. Hvergi
séu leyfðir fleiri en 30 manns í stofu
og gætt að tveggja metra reglunni.
Starfsmenn fasteignasviðs reikna
út lengdina milli borða, öxl í öxl.
Sérstaklega sé gætt að öllum þrifum.
Róbert segir staðpróf hafa verið
framkvæmd allt haustmisserið og
það hafi gengið vel. „Ekkert smit
hefur komið upp og ekki er vitað um
neinn sem hefur lent í sóttkví vegna
staðprófa,“ segir Róbert.
Prófatímabilið er nú hálfnað og
hvetur Róbert nemendur til að hafa
samband hafi þeir áhyggjur. Háskól-
inn hafi boðið nemendum í áhættu-
hópum að þreyta próf í sérstökum
stofum með strangari sóttvörnum.
– khg
Áhyggjufullir
yfir sóttvörnum
í próftöku
Prófatíð stendur yfir í háskólum
landsins þessa dagana.
Ekkert smit hefur
komið upp í tengsl-
um við staðpróf og ekki er
vitað um neinn sem hefur
lent í sóttkví vegna stað-
prófa.
Róbert Haraldsson, sviðsstjóri
kennslumála
COVID -19 Ákvæði þau sem fram
koma í reglugerðinni sem tekur
gildi í dag um fjöldatakmörkun,
nálægðartakmörkun og grímu-
skyldu taka ekki til þeirra barna
sem fædd eru 2005 og síðar.
Reglum um grímuskyldu í Strætó
hefur þar af leiðandi verið breytt á
nýjan leik og þurfa nú börn undir 15
ára aldri ekki að bera grímur þegar
þau ferðast með strætisvögnum.
Áður gilti reglan um grímuskyldu
í strætisvögnum um börn sem eru
fædd 2011 eða síðar, það er að segja
níu ára og eldri.
Breytt reglugerð tekur gildi í dag
og nær hún til allra vagna Strætó
á höfuðborgarsvæðinu sem og á
landsbyggðinni.
Enn fremur kemur fram í þeim
reglum sem taka gildi í dag að allt
að 100 börn sem fædd eru 2005 eða
síðar megi frá og með deginum í
dag mæta í leikhús, bíó eða á aðra
menningaviðburði. – la
Ungmenni
þurfa nú ekki
grímu í strætó
1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð