Fréttablaðið - 10.12.2020, Page 12
✿ Kortavelta í veitingageiranum frá mars til október
2020 á föstu verðlagi
í milljörðum króna
2017 20172018 20182019 20192020 2020
H
EI
M
IL
D
: S
AM
TÖ
K
AT
VI
N
N
U
LÍ
FS
IN
S
50
40
30
20
10
0
n Innlend kortavelta
n Erlend kortavelta
-9%
-82%
Kortavelta veitinga-geirans, sem COVID-19 hefur leikið grátt, dróst saman um 22 milljarða að raun-virði frá mars til
október á milli ára, þar af um nær
19 milljarða frá erlendum ferða-
mönnum. Erlend kortavelta í veit-
ingum dróst saman um 82 prósent
á tímabilinu og sú innlenda um níu
prósent. Þúsundir starfa hafa glat-
ast í veitingageiranum þrátt fyrir
hin ýmsu úrræði yfirvalda til að
stemma stigu við auknu atvinnu-
leysi. Þetta leiðir greining Samtaka
atvinnulífsins (SA) í ljós.
Anna Hrefna Ingimundardóttir,
forstöðumaður efnahagssviðs Sam-
taka atvinnulífsins, segir að um
þriðjungur tekna veitingageirans
undanfarin ár hafi komið frá erlend-
um ferðamönnum. Reksturinn sé
því nokkuð háður komu erlendra
ferðamanna enda megi flokka starf-
semina sem hluta af ferðaþjónustu.
„Við sjáum því glögglega áhrif
takmarkana á landamærum en frá
því faraldurinn hófst hefur erlend
kortavelta á veitingastöðum ein-
ungis verið um fimmtungur af því
sem hún var á sama tímabili í fyrra,”
segir hún.
Í greiningu SA segir að frá upp-
hafi heimsfaraldursins hafi ferða-
vilji dregist saman en ljóst þyki að
takmarkanir á landamærum hafi
fækkað erlendum ferðamönnum
enn frekar þar sem merkja mátti
snarpan samdrátt í komu þeirra í
kjölfar hertra komuskilyrða á landa-
mærum.
Það sem af er ári hafa erlendir
ferðamenn einungis verið um 27
prósent af þeim fjölda sem sótti
Velta í veitingum niður um 22 milljarða
Störfum í veitingageiranum hefur fækkað um fjórðung á milli ára. Ofan á mikið tekjutap hafa veitingamenn þurft að glíma við
mikinn ófyrirsjáanleika í rekstrinum vegna sóttvarnaaðgerða. Um 40 prósent veitingastaða voru rekin með tapi á síðasta ári.
Ísland heim á seinasta ári og 23 pró-
sent þess fjölda sem var á sama tíma
árs 2018 þegar ferðamannastraumur
hingað til lands náði hámarki.
Anna Hrefna segir að ofan á mikið
tekjutap hafi veitingamenn þurft að
glíma við mikinn ófyrirsjáanleika
í rekstrinum. „Ítrekað hafa verið
gerðar breytingar á fyrirkomulagi
sóttvarna innanlands með skömm-
um fyrirvara frá því faraldurinn
hófst. Það hefur því reynst erfitt að
halda utan um bókanir, aðfanga-
kaup og starfsmannahald með þá
óvissu sem er uppi um aðgerðir
hverju sinni. Þetta kemur auðvitað
niður á rekstrinum.“
Margir veitingamenn hafa ekki
séð sér fært annað en að hætta
rekstri á meðan aðrir hafa gripið til
hagræðingaraðgerða sem fækkað
hafa störfum í greininni.
Frá mars til september á þessu
ári hafa staðgreiðsluskyld laun í
veitingasölu og -þjónustu dregist
saman um næstum sjö milljarða
króna milli ára. Í september fengu
um 2.700 færri einstaklingar greidd
laun í greininni en á sama tíma í
fyrra. Samdrátturinn er 25 prósent
á milli ára.
Anna Hrefna segist hafa heyrt
frá veitingamönnum að úrræði svo
sem hlutabótaleiðin og tekjufalls-
styrkir hafi verið verulega til bóta
fyrir marga og væri staðan því enn
verri ef til slíkra aðgerða hefði ekki
komið.
Hún bendir á að rekstur veit-
ingastaða hafi þegar verið orðinn
strembinn á seinasta ári þegar
ferðamönnum hafði tekið að fækka
og launahlutfallið hélt áfram að
hækka. „Miðað við gögn úr árs-
reikningum 2019 voru nær 40 pró-
sent fyrirtækja veitingastaða rekin
með tapi í fyrra – áður en faraldur-
inn skall á – þannig að það er óhætt
að segja að svigrúmið í rekstrinum
hafi verið lítið fyrir. Það má leyfa sér
að vona að horfurnar fyrir næsta ár
séu betri með tilkomu bóluefnis
svo landsmenn og ferðamenn geti
áfram notið þess fjölbreytta úrvals
veitingastaða sem byggst hefur upp
með ferðamannastraumnum,“ segir
Anna Hrefna.
Í greiningunni er varpað ljósi á að
skuldahlutfall greinarinnar sé um
70-80 prósent „og því ekki mikið
svigrúm til aukinnar skuldsetningar
í yfirstandandi kreppu“.
helgivifill@frettabladid.is
Margir vonuðust
eftir tilslökunum
„Margir veitingamenn höfðu
eflaust vonast til að einhverjar
tilslakanir yrðu gerðar á sótt-
varnaaðgerðum svo jólaver-
tíðin gæti bjargað því sem
bjargað verður á árinu,“ segir
Anna Hrefna Ingimundardóttir,
forstöðumaður efnahagssviðs
Samtaka atvinnulífsins. „Ekki er
útlit fyrir mikið bjartari tíma í
veitingarekstri nú yfir hátíðirnar
þar sem ekki var tilkynnt um
miklar rýmkanir á fyrirkomulagi
sóttvarna. Það verður líklega
erfitt fyrir flesta veitingastaði
að ná endum saman, þrátt fyrir
ýmsar efnahagsaðgerðir yfir-
valda, í ljósi nýlega tilkynntra
aðgerða sem standa munu fram
á næsta ár. Veitingamenn hafa
þegar neyðst til að grípa til upp-
sagna,“ segir hún.
BMW X7 M50d
Nýskr. 7/2019, ekinn 11 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 22.900.000 kr.
Rnr. 420505.
RANGE ROVER VOUGE TDV6
Nýskr. 2/2016, ekinn 106 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 13.690.000 kr.
Rnr. 147619.
RANGE ROVER SPORT HSE Dynamic P400e
Nýskr. 11/2018, ekinn 40 þús. km,
bensín/rafmagn, sjálfskiptur.
Verð 13.890.000 kr.
Rnr. 130313.
JAGUAR - LAND ROVER
Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík
525 6500 / jaguarlandrover.is
Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum
gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla.
Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag.
NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR
LAND ROVER Discovery Sport HSE R-dynamic
Nýskr. 11/2019, ekinn 15 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 9.990.000 kr.
Rnr. 147678.
JAGUAR I-PACE SE EV400
Nýskr. 3/2019, ekinn 27 þús. km,
rafmagn, sjálfskiptur.
Verð 9.990.000 kr.
Rnr. 420515.
JAGUAR E-PACE SE 150D
Nýskr. 11/2019, ekinn 11 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 7.890.000 kr.
Rnr. 147607.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
0
3
6
2
5
J
a
g
u
a
r
6
s
t
k
n
o
t
a
ð
ir
5
x
2
0
1
0
d
e
s
SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6
MARKAÐURINN
1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð