Fréttablaðið - 10.12.2020, Síða 28
Hluti af ágóðanum
af sölunni verður
notaður til að styðja við
íþróttastarf á fátækum
svæðum.Nýja vörulínan heitir Curry Brand og fór í sölu 1. desember síðastliðinn, en
Curry hefur starfað með vöru-
merkinu Under Armour árum
saman. Með þessari nýju línu
vill Under Armour veita Michael
Jordan vörulínunni frá Nike sam-
keppni, en sú lína hefur skapað
Nike stjarnfræðilegar tekjur.
Línan inniheldur skó, fatnað og
aukahluti sem bera merki Currys
og hluti af ágóðanum af sölunni
verður notaður til að styðja við
íþróttastarf á fátækum svæðum,
samkvæmt tilkynningu frá Under
Armour. Peningana á að nota
til að búa til að minnsta kosti
20 örugg leiksvæði, styðja 125
íþróttafélög ungmenna og þjálfa
15 þúsund nýja þjálfara fyrir árið
2025.
Curry er 32 ára gamall og hefur
tvisvar verið valinn verðmætasti
leikmaður NBA-deildarinnar
og þrisvar unnið titilinn með
liði sínu, Golden State Warriors.
Hann er þekktur fyrir einstaka
skothæfni og sumir vilja meina
að hann hafi valdið byltingu í
körfuboltanum með því að hvetja
lið til að nýta þriggja stiga skot í
auknum mæli.
Hann er sonur NBA-leikmanns-
ins Dell Curry, sem var sjálfur
duglegur við góðgerðarstarf og
Stephen Curry rekur líka stofnun-
ina Eat. Learn. Play., sem hjálpar
ungmennum, með eiginkonu
sinni Ayesha.
„Curry Brand snýst um að láta
gott af sér leiða í öllu sem við
gerum... Ég hef reynt að hafa það
að leiðarljósi og ég held að það sé
líka eitthvað sem aðrir geta stutt,
sama hvar þeir eru í lífinu eða
hvaða markmið þeir hafa,“ sagði
Curry í yfirlýsingu. „Við getum
haft áhrif á næstu manneskju og
gefið af okkur á einhvern hátt og
það er mikilvægara nú en nokkru
sinni fyrr.“
Curry í samkeppni við Jordan
NBA-stjarnan Stephen Curry var að setja á markað nýja línu af íþróttafatnaði í samstarfi við Under
Arm our. Línan styður við góðgerðarstarf og á að veita vörulínu Michael Jordan frá Nike samkeppni.
Körfubolta
stjarnan
Stephen Curry
er nú komin
með sína eigin
íþróttavörulínu
í samstarfi
við fyrirtækið
Under Armour.
Línan á að veita
vörulínu Mich
ael Jordan frá
Nike samkeppni
ásamt því að
styðja við góð
gerðarstarf.
Curry er 32 ára gamall og ein skærasta stjarna NBAdeildarinnar, en hann hefur tvisvar verið valinn verðmætasti
leikmaður hennar. Hann rekur líka stofnunina Eat. Learn. Play., sem hjálpar ungmennum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Curry hefur þrisvar unnið NBAtitilinn með liði sínu, Golden State Warriors, og er þekktur fyrir einstaka skothæfni.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Miklir peningar í spilinu
Samkvæmt lista Forbes yfir arð-
bærustu skósamninga NBA-leik-
manna er samningur Currys
við Under Armour í 4. sæti á
eftir samningum Kevin Durant,
Lebron James og Michael Jordan.
Samningur Currys er 20 milljóna
Bandaríkjadala virði árlega, en
bara skórnir frá merki Michael
Jordan eru 130 milljóna Banda-
ríkjadala virði á ári. Í heild seldust
vörur úr línu Jordans fyrir yfir
þrjá milljarða Bandaríkjadala á
árinu 2019. Under Armour vill nú
fá stærri hluta af þessari köku.
Ekkert var gefið upp um hvers
virði þessi nýi samningur er fyrir
Curry, en fyrir samninginn var
hann í áttunda sæti í NBA-deild-
inni yfir tekjur frá stuðningsað-
ilum og fékk 42 milljónir Banda-
ríkjadala á ári frá þeim.
Árið 2015 samþykkti Curry að
framlengja samninginn við Under
Armour til ársins 2024, en á sama
tíma byrjaði sala á körfuboltas-
kóm að dala og þeir eru orðnir
lítill hluti af heildarmarkaðnum
fyrir strigaskó í dag. Verðbréf
Under Armour hafa líka lækkað í
virði á árinu en á síðasta ársfjórð-
ungi batnaði sala fyrirtækisins
verulega. Nú vonast það til að fara
í sókn.
LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
ALLTAF EITTHVAÐ NÝTT OG SPENNANDI
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R