Fréttablaðið - 10.12.2020, Page 31
Hafnarfjörður státar meðal annars af heillandi hafnar-svæði, lifandi miðbæ og
ævintýralegu upplandi. Í Hafnar-
firði má finna fjölbreyttar versl-
anir, fallegar hönnunar- og hand-
verksbúðir ásamt huggulegum
kaffihúsum og veitingastöðum.
„Allir hafa þessir staðir mikinn
sjarma sem draga að sér bæði íbúa
bæjarins og gesti annars staðar frá.
Hafnarfjörður hefur allt til alls og
því nokkuð auðvelt að leggja upp
góðan dag í Firðinum fagra sem
felur í sér upplifun, skemmtun,
útivist og heilan helling af fersku
sjávarlofti fyrir alla fjölskylduna,“
segir Árdís Ármannsdóttir, sam-
skiptastjóri Hafnarfjarðarbæjar.
Allar helgar á aðventunni er
Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnar-
firði opið. Heimsókn í Jólaþorpið
og í litlu jólahúsin til að grípa
fallega gjöf og góðgæti er orðinn
ómissandi hluti af aðventunni hjá
mörgum. Jólasveinarnir koma í
heimsókn á laugardögum og Grýla
er á vappi um bæinn á sunnu-
dögum. Í ár var ákveðið að „fram-
lengja“ jólagleðina og stemning-
una yfir í Hellisgerði en þar hefur
risið jólaævintýraland í þessum
nær 100 ára gamla lystigarði
Hafnfirðinga sem sagt er að hýsi
álfa og huldufólk. Við inngang í
garðinn hefur risið stórt jólahjarta
og síðan tekur við ævintýraveröld
ljósa sem gleðja augað og andann.
Álfabúðin í Hellisgerði er opin
aðventuhelgarnar frá kl. 12-17 en
þar er hægt að kaupa fallegt hand-
verk, álfakakó og piparkökur.
„Við höfum lagt áherslu á það
þessa óvenjulegu aðventu að búa
til umhverfi og möguleika til
upplifunar, útivistar og samveru
með nánustu fjölskyldunni eða
„jólakúlunni“ eins og þríeykið
segir. Undirtónn hátíðarhalda í
Hafnarfirði þetta árið er ljósa-
dýrð og skreytingar því við viljum
að sem flestir og helst allir geti
notið aðventunnar af öryggi og án
hópamyndana,“ upplýsir Árdís og
nefnir sérstaklega að grímuskylda
ríki í Jólaþorpinu og alls staðar
þar sem ekki er hægt að tryggja
að minnsta kosti tveggja metra
fjarlægð milli óskyldra aðila. Árdís
gefur hér nokkrar hugmyndir að
upplifun og skemmtun í Hafnar-
firði á aðventunni:
n Bakarí eða kaffihús
Mörg skemmtilega ólík kaffihús og
bakarí prýða Hafnarfjörð og það
um allan bæ. Heimabakað góðgæti
og ferskir drykkir.
n Miðbær
Miðbæinn er ánægjulegt að
upplifa fótgangandi. Njóta jóla-
ljósanna, meðtaka og draga inn
bæjarandann og skoða litrík og
falleg hús sem eru einkennandi
fyrir Hafnarfjörð.
n Verslun og þjónusta
Hlýja, fjölbreytileiki og fegurð
einkenna hafnfirska verslun og
þjónustu í öllum hverfum bæjar-
ins. Listir og menning blómstra
í bænum með íslenskri hönnun,
handverki og hágæðavöru. Að
minnsta kosti ein heimsókn í
Jólaþorpið í Hafnarfirði er nánast
skilyrði á aðventunni.
n Hafnarsvæði
Afslappandi göngutúr eftir Strand-
stígnum og um höfnina er hin
besta núvitund. Þessi heillandi
gamla höfn er meðal annars
heimili listafólks og vinnustofa
sem sýna og selja íslenska list og
hönnun. Á Strandstígnum má
svo finna ljósmyndasýningu um
dagleg störf og sögu fólksins sem
bæinn byggði.
n Söfn
Öll söfn Hafnarfjarðarbæjar eru
staðsett í hjarta Hafnarfjarðar,
sjálfum miðbænum en þar er hægt
að upplifa sögu, menningu og list
eftir leiðandi listamenn í fortíð,
nútíð og framtíð. Kaffi og innlit í
blöð og bækur á bókasafni er einn-
ig tilvalið. Aðgangur er ókeypis á
öll söfnin!
n Hellisgerði
Þessi nær 100 ára gamli lystigarður
Hafnfirðinga er sannkallaður
ævintýraheimur sem kallar á
opinn hug og trú á álfa og huldu-
fólk. Teppi, hlý föt og nesti eru
staðalbúnaður í Hellisgerði. Og
heimsókn í litlu krúttlegu Álfa-
búðina.
n Hvaleyrarvatn
Vatnið liggur í lítilli kvos skammt
ofan við Hafnarfjörð. Umhverfið í
kringum vatnið er mjög fallegt og
vel gróið. Skemmtilegar og ævin-
týralegar gönguleiðir, að vatni og
inn á milli trjáa, eru á svæðinu.
n Helgafell
Gönguferð á Helgafell er fullkomin
fyrir fjallageiturnar en gangan
upp er nokkuð klettótt og brött
og kallar á góðan búnað. Fallegt
útsýni frá toppi.
n Víðistaðatún
Fallegt og fjölskylduvænt úti-
vistarsvæði umkringt hrauni með
nægu leiksvæði, aparólu, frisbí-
golfvelli og útilistaverkum.
n Veitingastaðir
Ást og metnaður liggja að baki
matseðlum, hráefni, umhverfi og
þjónustu fjölbreyttra veitinga-
staða í Hafnarfirði. Tilvalið að
verja hádegi eða enda daginn á vel
völdum veitingastað og upplifa
notalega stund.
n Gisting
Ef dagurinn dugar ekki í öll þessi
ævintýri og upplifun þá eru gisti-
möguleikar í Hafnarfirði fjöl-
margir og ólíkir. Fjörukráin – The
Viking Village – er einn þeirra með
sitt vestnorræna þema og herbergi
í anda víkinga.
Hafnarfjörður tekur vel á móti þér!
Sjá nánar á hafnarfjordur.is
Komdu og upplifðu fallega
Hafnarfjörð á aðventunni
Hafnarfjörður er heillandi og líflegur sjávarbær með litríkum húsum innan um víðfeðmt hraun
og fallega náttúru. Hafnarfjörður er bær sem hvetur til heilsueflingar og nú hefur hann breyst í
sannkallaðan jólabæ með fallegum jólaljósum og skreytingum sem skapa sannan jólaanda.
Í Hellisgerði hefur risið jólaævintýraland á aðventunni. Þarna er hægt að eiga góðar stundir með álfum og huldufólki í jólalegu umhverfi. MYNDIR/AÐSENDAR
Hafnarfjörður er heillandi bær með litríkum og fallegum húsum. Álfabúðin í Hellisgerði er opin um helgar líkt og Jólaþorpið í Hafnarfirði.
Smábátahöfn og skapandi samfélag á heillandi
hafnarsvæði. Þarna er gaman að ganga og skoða.
Uppland Hafnarfjarðar býður upp á endalaus
ævintýri. Hér má sjá Helgafellið í fjarska.
Árdís hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar
til að fara úr náttfötunum og í útivistargallann.
KYNNINGARBLAÐ 3 F I M MT U DAG U R 1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 HAFNARFJÖRÐUR OG GARÐABÆR