Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.12.2020, Qupperneq 33

Fréttablaðið - 10.12.2020, Qupperneq 33
Ólöf Breiðfjörð, menningarfull­ trúi í Garðabæ, og Sigurbjörn Helgason fugla­ smiður í vinnu­ stofu Hönn­ unarsafnsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Ólöf Breiðfjörð, menningar-fulltrúi Garðabæjar, hóf störf í júní á þessu ári svo hún hefur frá upphafi þurft að laga starfið að COVID-takmörkunum. Í samstarfi við Menningar- og safnanefnd Garðabæjar ákvað hún í upphafi þriðju bylgju farald- ursins að senda út rafræna þætti með ýmsu listafólki sem tengist Garðabæ á einn eða annan hátt. Þættirnir eru birtir á Vimeo-rás og Facebook-síðu Garðabæjar og kallast Menning í Garðabæ. Síðasti þátturinn fer í loftið í dag rétt fyrir hádegi. „Þættirnir hafa margir tengst bæjarlistamönnum Garðabæjar sem eru til dæmis rithöfundar og óperusöngvarar. Við ljúkum þátt- unum í dag með mjög hátíðlegum jólaþætti þar sem Guðfinna Dóra Ólafsdóttir, fyrrverandi kórstjóri, tónmenntakennari og söngkona, syngur með manninum sínum, Rúnari Einarssyni, börnum þeirra og barnabörnum í Vídalínskirkju,“ útskýrir Ólöf. „Guðfinna fékk eitt sinn heiðurs- viðurkenningu Garðabæjar fyrir sín störf og mér fannst því tilvalið að fá hana í þáttinn. Hún ól fjögur börn upp hér í bænum, sem öll voru í Skólakór Garðabæjar hjá mömmu sinni, en þau starfa öll við tónlist í dag. Hallveig Rúnars- dóttir er ein af okkar þekktustu og bestu óperusöngkonum og systir hennar Hildigunnur Rúnarsdóttir er tónskáld. Bræðurnir, Þorbjörn og Ólafur, eru svo báðir mjög flottir söngvarar. Guðfinna Dóra og Rúnar, börnin þeirra fjögur og barnabörn syngja saman mjög hátíðlega dagskrá sem er alveg í anda Guðfinnu Dóru en mér fannst mjög mikilvægt að hún og hennar fólk fengju sjálf að ráða efnisskránni. Ég vissi að ég gæti treyst því að við fengjum dásam- lega jólatónlist og draumurinn var að fá eitt lag eftir Hildigunni og það gekk allt eftir.“ Ólöf segir að þar sem fjöl- skyldan telur 13 manns hafi þau sótt um undanþágu til að taka upp í kirkjunni en fengið neitun. Þau gerðu það besta úr því og tóku þáttinn upp í nokkrum bútum og á ólíkum stöðum í kirkjunni þannig að sóttvarnir væru tryggðar. „Við tókum barnabörnin upp alveg sér, þau syngja eitt lag alveg ein og voru allan tímann í sínu horni í kirkjunni. Þau tóku svo upp kórbútana sína sér og foreldrar þeirra, börn Guðfinnu Dóru, voru í sínu sóttvarnahólfi. Þessu var svo öllu skeytt saman,“ útskýrir Ólöf. Aðventudagskráin á netinu Þátturinn er annar jólaþátturinn í þessari rafrænu þáttaröð en í byrjun aðventu var sendur út þáttur sem kom í staðinn fyrir fjöl- skylduskemmtun sem venjulega er haldin þegar kveikt er á jólatré bæjarins. „Við bjuggum til rafrænan þátt þar sem bæjarstjórinn flytur stutta kveðju og svo fóru jóla- sveinar á milli menningarstofnana bæjarins og kynntu þær. Þeir fóru á bókasafnið þar sem skemmtileg pakkainnpökkun var kennd og kíktu á Hönnunarsafnið þar sem var föndursmiðja. Grýla og Leppa- lúði sungu í þættinum í sal Tónlist- arskólans og jólasveinarnir kíktu inn í burstabæinn Krók sem er rétt hjá Garðakirkju. Það er yndislegur staður, en jólasveinarnir rötuðu þangað í leit að bróður sínum Ketkróki. Í þættinum eru sýndir þeir staðir þar sem venjulega hefðu verið viðburðir fyrir fjölskyldur á aðventunni,“ segir Ólöf. Hún segir Hátíðlegt og hannað í Garðabænum Þrátt fyrir heimsfaraldur blómstrar menningin í Garðabæ. Hún hefur að hluta til færst inn á heim- ili fólks í formi rafrænna þátta en jóladagatalið er á sínum stað í glugga Hönnunarsafnsins. Fjölskylda Guðfinnu Dóru við upptökur í Vídalínskirkju. að COVID hafi kennt fólki að finna lausnir til að geta boðið upp á vandaða viðburði, þrátt fyrir sam- komutakmarkanir. „Ég held að þetta sé að vissu leyti komið til að vera. Það er auðvitað fólk þarna úti sem ekki hefur tök á að mæta á hefðbundnar uppá- komur og ég held að okkur beri skylda til að bjóða áfram upp á raf- ræna viðburði sem fólk getur notið heiman frá sér og horft á aftur og aftur.“ Aðventudagatal Hönnunar­ safnsins er á sínum stað Árið 2014 var fyrsta aðventu- dagatal Hönnunarsafns Íslands í Garðabæ sett upp. Ólöf segir að hugsunin með því hafi verið að færa safneignina nær fólki og tengja saman safnið og búðina. „Aðventudagatalið er staðsett í glugganum á safnbúð Hönn- unarsafnsins. Það þarf því ekki að mæta á opnunartíma til að skoða dagatalið, en gripur dagsins er í glugganum frá hádegi og til hádegis næsta dag þannig að hægt er að skoða gluggann líka eftir að safninu lokar,“ segir Ólöf. „Söfn geta aldrei sýnt allt sem þau varðveita í geymslunum og þess vegna fannst sérfræðing- unum á Hönnunarsafninu mikilvægt að hafa einn mánuð til að sýna fólki alls kyns gripi úr safneigninni sem eru yfirleitt ekki til sýnis.“ Oftast hefur verið eitthvert þema í jóladagatalinu en í ár eru til sýnis verk sem Textílfélag Íslands færði safninu að gjöf. „Þetta eru alls konar verk eftir textíl-listafólk á Íslandi. En núna vegna COVID var safnið lokað í nokkrar vikur og því gafst sér- fræðingum safnsins tækifæri til að sökkva sér ofan í meiri rannsókn- arvinnu en ella og setja saman mjög skemmtilegt dagatal. Frá 1. desember hefur nýtt verk birst í glugganum í hádeginu á hverjum degi. Þeir sem svo ekki komast að glugganum geta bara kíkt á Facebook-síðu safnsins og notið þess að kíkja í gluggann rafrænt.“ Ólöf segir að mörgum þyki texti á sýningum á söfnum frekar alvar- legur og þurr en í dagatalinu hafi textasmiðirnir Þóra Sigurbjörns- dóttir og Ingiríður Óðinsdóttir leikið sér með textann og hann sé því léttur og skemmtilegur. „Það er gaman að brjóta þannig niður múra og sýna að söfn eru ekkert alltaf háalvarleg og allir ættu að geta notið þeirra.“ Hönnunarsafnið hefur nú verið opnað aftur og er opið alla daga nema mánudaga frá klukkan 12-17. „Það er tilvalið að gera sér ferð í Garðabæinn í desember og skoða jóladagatalið og njóta þess að skoða sýninguna 100% Ull. Það er ókeypis aðgangur út árið en á sýningunni eru verk eftir sex íslenska hönnuði sýnd en þeir nota ull á ólíkan máta. Svo er fuglasmiður á safninu að smíða fugla allan daginn og fólk getur fylgst með, keypt fugla og f lotta hönnunarvöru í búðinni.“ Ingiríður Óðinsdóttir og Þóra Sigurbjörnsdóttir hafa veg og vanda af aðventudagatali Hönnunarsafnsins. KYNNINGARBLAÐ 5 F I M MT U DAG U R 1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 HAFNARFJÖRÐUR OG GARÐABÆR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.