Fréttablaðið - 10.12.2020, Side 36

Fréttablaðið - 10.12.2020, Side 36
Hafnarfjörður er þekktur jólabær en líka fyrir Hafnarfjarðarbrandara. Í f lestum löndum tíðkast að henda gaman að íbúum ein-stakra héraða og bæja sem þykja á einhvern hátt skera sig úr. Af þessu spretta skondnar sögur um fólk sem ekki þykir stíga í vitið eða er á einhvern hátt sérkennilegt. Nú er svo komið fyrir Hafnfirðingum að athafnir þeirra og tilsvör virðast ætla að verða óþrjótandi nægta- brunnur gárunga og spéfugla um land allt. Auðvitað taka Hafn- firðingar þessu létt og hafa gaman af. Margir kunna reiðinnar ósköp af Hafnarfjarðarbröndurum og ekki er verra að hafa þá á tak- teinum þegar vinir Hafnarfjarðar og aðrir góðir landsmenn hefja skothríðina! Allir sem koma til Hafnarfjarðar eru hvattir til að læra nokkra Hafnarfjarðarbrandara svo þeir eigi auðveldara með að aðlagast þessu litríka samfélagi. Hér er einn í veganesti: Hvers vegna setja Hafnfirðingar stól út á svalir þegar degi tekur að halla? Svar: Auðvitað til að sólin geti sest! Heimild: hafnarfjordur.is Brandarabærinn Hafnarfjörður Það eru mörg gömul og falleg hús í Hafnarfirði. FRÉTTBLAÐIÐ/STEFÁN Hafnarfjörður státar af stærstu samfelldu byggð bárujárnsklæddra timbur- húsa á landinu. Er talsvert eftir af hinu upphaflega byggðamynstri bæjarins þar sem hús voru byggð á heppilegum stöðum í hrauninu en götur lagðar síðar. Tilvalið er að rölta um Vesturbæinn, heim- sækja Austurgötuna og Hverfis- götu. Einnig er nauðsynlegt að kíkja á Byggðasafnið þar sem eru skemmtilegar sýningar í gangi. Í Pakkhúsinu eru að öllu jöfnu þrjár sýningar í gangi í einu, fasta- sýning um sögu bæjarins, leik- fangasýning og þemasýning. Í Sívertsen-húsi er sýnt hvernig yfirstéttarfjölskylda í Hafnarfirði bjó í byrjun 19. aldar, auk þess sem varpað er ljósi á sögu Bjarna Sívertsen og fjölskyldu hans. Siggubær er varðveittur sem sýnishorn af heimili verkamanns og sjómanns í Hafnarfirði frá fyrri hluta 20. aldar. Í Beggubúð er verslunarminja- safn Byggðasafns Hafnarfjarðar. Húsið, sem byggt var árið 1906, stóð áður við aðalverslunargötu bæjarins en var flutt á lóð safnsins, gert upp og opnað sem sýningahús árið 2008. Gömlu húsin í Hafnarfirði Tilvalið í jólapakkann Gjafabréf á RIF 578-0100 2.HÆÐ - FJÖRÐUR VERSLUNARMIÐSTÖÐ | RIF.IS 8 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RHAFNARFJÖRÐUR OG GARÐABÆR Garðabær og Hafnarfjörður bjóða upp á frábæra golfaðstöðu. Golfvellir Golfklúbbs Kópa-vogs og Garðabæjar og Golf-klúbbsins Keilis í Hafnarfirði eru meðal bestu golfvalla landsins. GKG er með tvo golfvelli, Leir- dalsvöll, sem er 18 holur, og Mýr- ina, sem er níu holur. Leirdalsvöllur liggur frá Vetrarmýrinni í Garðabæ og upp í Leirdalinn í Kópavogi og aftur til baka og er krefjandi fyrir golfara á öllum stigum. Mýrin liggur í Vetrarmýrinni í Garðabæ og er á köflum krefjandi fyrir alla golfara og hentar vel þegar ekki gefst tími fyrir 18 holur. Hjá GKG er líka að finna stærsta TrackMan svæði innanhúss sem finnst í heiminum og klúbburinn býður upp á öflugt starf fyrir allar gerðir golfara. Golfklúbburinn Keilir í Hafnarfirði býður líka upp á öflugt íþróttastarf og er með Hvaleyrar- völl, sem hefur lengi þótt einn besti golfvöllur landsins og hefur fengið alþjóðlegar viðurkenn- ingar, eins og að vera valinn á meðal fimmtán bestu golfvalla Norðurlandanna af golftímaritinu Golf Digest. Fyrri níu holurnar, Hraunið, eru lagðar í hraunbreiðu sem getur reynst kylfingum afar erfið viðureignar missi þeir boltann út af brautum. Seinni níu holurnar, Hvaleyrin, eru af ætt links-golfvalla, þar sem sjórinn og djúpar sandglompur koma mikið við sögu. Frábær aðstaða fyrir golfara

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.