Fréttablaðið - 10.12.2020, Page 42

Fréttablaðið - 10.12.2020, Page 42
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Ægis Ingvarssonar bifvélavirkjameistara og vélstjóra, sem lést þann 13. október sl. á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri í Ólafsvík. Ásta Dóra Valgeirsdóttir Ingvar Valgeir Ægisson Áslaug Olga Heiðarsdóttir Trausti Ægisson Lilja Ólafardóttir Valgerður Margret Ægisdóttir Hafrún Elvan Vigfúsdóttir og barnabörn. Jóhann Hjálmarsson skáld. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þann 11. desember kl. 15.00. Vegna fjöldatakmarkana er hægt að horfa á athöfnina í streymi: youtu.be/cCQ3yMeK-os Þorri Jóhannsson Dalla Jóhannsdóttir Jóra Jóhannsdóttir og barnabörn. Elsku hjartans móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Guðrún Helgadóttir frá Kollsvík, síðast Brúnavegi 9, Reykjavík, lést að kvöldi 6. desember á Hrafnistu í Reykjavík. Elín G. Guðmundsdóttir Anna Helgadóttir Egon Marcher Sigrún Sjöfn Helgadóttir Óli M. Lúðvíksson Hafdís Helgadóttir Björgvin R. Andersen Kjartan Hrafn Helgason Ástríður Ó. Gunnarsdóttir Helgi Helgason María Baldursdóttir barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, langamma og vinkona, Þórgunnur Rögnvaldsdóttir Ægisgötu 1, Ólafsfirði, lést hinn 6. desember á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Siglufirði. Útför hennar fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 12. desember klukkan 14.00. Vegna fjöldatakmarkana verður athöfninni einnig streymt á facebook.com/groups/419746082730446 Ármann Þórðarson Rögnvaldur Ingólfsson Jörgína Ólafsdóttir Auður Guðrún Ármannsdóttir Sveinn Eyfjörð Jakobsson Þórður Ármannsson Ester Jónasdóttir Sigrún Eva Ármannsdóttir Andri Dan Róbertsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Skúli Rúnar Guðjónsson Strikinu 2, Garðabæ, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, 4. desember. Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju, þriðjudaginn 15. desember kl. 13.00. Í ljósi aðstæðna er athöfnin einungis fyrir fjölskyldu og boðsgesti. Páll Skúlason Agnes Kragh Hansdóttir Jónas Skúlason Elísabet M. Jóhannesdóttir Skúli Rúnar Skúlason Sigríður Bergsdóttir Auður Skúladóttir Magnús V. Magnússon barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Hrafnhildur Tryggvadóttir Elísabetarhaga 2, Akureyri, lést 5. desember á öldrunarheimilinu Hlíð. Útför hennar mun fara fram mánudaginn 14. desember frá Höfðakapellu. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Birkihlíð og starfsfólks heimahlynningar á Akureyri fyrir einstaka umönnun. Þorgrímur Þorsteinsson Elínborg Þorgrímsdóttir Hallsteinn Guðmundsson Björn Þorgrímsson Drífa Kristjánsdóttir Anna Guðrún Þorgrímsdóttir Eirik Blix Madsen barnabörn og barnabarnabörn. Bókin um landverðina er myndasögubók um íslensk-ar ofurhetjur sem láta gott af sér leiða. Atlas er venju-legur menntaskólaungl-ingur en ofurhetja í frítíma sínum og getur gert alls konar hluti með vatni, til dæmis skotið því út frá sér og flogið með því. Avion er líka unglingur og hann er nýbúinn að komast að því að hann sé gæddur ofurkröftum, en ræður ekki nógu vel við þá og leitar til Atlasar. Saman mynda þeir gott teymi sem berst gegn eldi illmennis.“ Þannig lýsir Úlfar Konráð Svansson í stuttu máli söguhetjum bókarinnar Landverðirnir: Atlas og Avion, sem hann er höfundur að, ásamt Degi Lárussyni. En hvernig kom verkefnið til? Dagur verður fyrir svörum: „Við Úlfar erum vinir og höfum gaman af því að skapa eitthvað saman, okkur fannst liggja beinast við að búa til eitthvað sem væri nálægt okkar áhugasviði. Við erum báðir miklir aðdáendur ævintýramynda og sagna eins og Star Wars, Lord of the Rings og ofurhetjubóka. Þess vegna vildum við búa til eina séríslenska ofur- hetjusögu,“ segir hann og tekur fram að þeir hafi aldrei komið nálægt bókaút- gáfu áður. Fannar Georg Gilbertsson mynd- skreytti bókina Landverðirnir: Atlas og Avion. Rithöfundarnir, Úlfar og Dagur, eru sammála um að Fannar eigi enda- laust lof skilið fyrir sína ótrúlegu vinnu. „Stefán Atli Rúnarsson hefur svo verið hjálparhella okkar á síðari stigum verk- efnisins, hann hefur verið duglegur að koma því á framfæri og klæðist búning- um við ákveðin tilefni,“ upplýsir Dagur. Með útgáfunni vilja þeir Úlfar og Dagur láta gott af sér leiða, því rennur söluhagnaður þeirra af bókinni til Barnaspítala Hringsins. Úlfar segir þá hugmynd hafa kviknað þegar hann rakst á frétt um leikarana Tom Holland (Spiderman) og Jake Gyllenhaal (Mys- terio) sem fóru á barnaspítala í Banda- ríkjunum í fullum skrúða til að gleðja litlu ofurhetjurnar þar. „Við vildum fara að dæmi þeirra. Okkar karakterar, Atlas og Avion, hvetja alla til að gera góðverk og það er eitthvað sem allir geta gert. Auðvitað viljum við þá skapa gott for- dæmi.“ Dagur lýsir því að þeir félagar hafi heimsótt barnadeild Landspítalans, klæddir sem ofurhetjur bókarinnar. „En vegna COVID höfum við bara fengið að hitta krakkana í gegnum gluggana sem eru á herbergjunum þeirra og vísa út í garðinn hjá spítalanum og að gefa þeim gjafir á borð við boli með mynd af per- sónum úr bókinni.“ „Já, krakkarnir sem hafa dvalið á spítalanum hafa átt sérlega erfitt ár,“ segir Úlfar. „Eins og allir í heiminum hafa þeir þurft að sæta samkomubanni og líka heimsóknabanni. Það eitt og sér er næg ástæða til svona verkefnis.“ gun@frettabladid.is Vilja láta gott af sér leiða Góðhjartaðar ofurhetjur eru sögupersónur Úlfars Konráðs og Dags Lárussonar sem munu gefa Barnaspítala Hringsins hagnað sinn af bókinni: Landverðirnir: Atlas og Avion. Úlfar Konráð Svansson, Fannar Georg Gilbertsson, Stefán Atli Rúnarsson og Dagur Lárusson eru ofurhetjur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Okkar karakterar, Atlas og Avion, hvetja alla til að gera góðverk og það er eitthvað sem allir geta gert. Auðvitað viljum við þá skapa gott fordæmi. 1901 Nóbelsverðlaunin eru veitt í fyrsta sinn. 1924 Rauði kross Íslands er stofnaður í Reykjavík. 1955 Halldór Laxness veitir Nóbelsverðlaunum viðtöku í Stokkhólmi. 2005 Unnur Birna Vilhjálmsdóttir sigrar í keppninni Ung- frú heimur 2005 í Sanya í Kína. Merkisatburðir 1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R26 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.