Fréttablaðið - 10.12.2020, Page 50
ÉG HEF GREINILEGA
EKKI KOMIST AÐ
NEINNI NIÐURSTÖÐU ÞVÍ ÞÁ
VÆRI ÉG HÆTTUR.
Yfirlitssýning á verkum Sigurðar Árna Sigurðs-sonar, ÓraVídd, stend-ur yfir á Kjarvalsstöð-um. Sýningarstjóri er Markús Þór Andrés-
son. Verkin á sýningunni spanna
um þrjátíu ára feril listamannsins.
„Elstu verkin eru frá 1990, gerð í
París, og þau nýjustu eru frá þessu
ári, gerð með sýninguna í huga,“
segir Sigurður Árni sem valdi verkin
með sýningarstjóranum Markúsi
Þór. „Þetta var mjög ánægjulegt og
gott samstarf og alveg nauðsynlegt
að hafa góðan sýningarstjóra þegar
unnið er að sýningu á verkum sem
spanna þrjátíu ára feril. Ég hef aldr-
ei sett upp yfirlitssýningu á verkum
mínum áður og það er auðvelt að
týna sér í eigin heimi og smáatrið-
um sem koma ekki heildinni við. Þá
kemur sýningarstjórinn og réttir af
kúrsinn.
Á sýningunni má sjá ákveðin
áhersluatriði sem ég hef unnið með
á ólíkum tímum. Ég fór úr nokkuð
bundinni landslagshefð yfir í hug-
myndalegri nálgun og útfærslu á
viðfangsefninu. Það opnaði auð-
vitað bara f leiri dyr sem leiða yfir
í sögu málverksins og abstraksjón
á því. Þetta er yfirlit hugmynda
minna síðustu þrjá áratugina.“
Ekki viss um niðurstöðu
Spurður hvort honum finnist hann
hafa lært mikið á þeim þremur ára-
tugum sem hann hefur starfað sem
listamaður segir Sigurður Árni:
„Nei, ég hef ekki lært neitt! Mér
miðar vonandi eitthvað áfram en
veit ekki hvort ég hafi komist að
einhverri niðurstöðu. Í byrjun var
ég mikið að fást við landslagið og
Jón Stefánsson var mér hugleikinn
á þeim tíma. Ég hafði stúderað hann
og formskoðun hans sem mér finnst
ekki hafa fengið næga athygli. Jón er
einn af þeim fyrstu sem abstraktera
landslagið þó að hann sé um leið
algjörlega bundinn því. Ég var hrif-
inn og upptekinn af þessu í byrjun
og elstu verkin á sýningunni sýna
það mjög vel. Smám saman sneri
ég mér að öðru eins og görðum og
golfvöllum og vangaveltum um
málverkið og flötinn.“
Nýjustu verkin á sýningunni eru
plexígler og álverk. „Það má kalla
þau veggverk, þau eru upphleypt
en ég flokka þau sem teikningar eða
bara málverk. Ég hef verið að vinna
með þessi efni á síðustu árum en
það er líka nýtt málverk á sýning-
unni. Í raun eru þetta bara efni sem
ég vel til að þjóna hugmyndum,
hvort sem það er plexígler, ál eða
olía á striga.“
Engin klukknahringing
Vegna COVID var engin formleg
opnun og Sigurður Árni segist
hafa fundið fyrir því. „Ég vann að
þessari sýningu allt síðasta ár og
pressan var orðin mikil rétt fyrir
opnun. Svo varð þetta dálítið eins
og þegar maður var krakki að bíða
eftir jólunum. Maður er búinn að
fara í bað og kominn í sparifötin
og bíður eftir að kirkjuklukkurnar
hringi klukkan sex, en þær hringja
ekki. Sýningin tilbúin og allt klárt
en salirnir lokaðir. Ég hafði ekki
áttað mig á því hvað opnunin og
samskipti við áhorfandann skiptir
mikil máli. Kannski er gott fyrir
mann að upplifa þetta.“
Spurður hvað hafi komið honum
mest á óvart í undirbúningi sýn-
ingarinnar segir hann: „Það sem
kom mér á óvart er að sjá hversu
mikið ég er að vinna með sömu hug-
myndirnar og um leið hversu langt
mér tekst að teygja þær. Ég sé sömu
vandamál í dag sem ég var að fást
við fyrir tuttugu eða þrjátíu árum, í
sambandi við myndflötinn og mál-
verkið. Ég hef greinilega ekki komist
að neinni niðurstöðu því þá væri ég
hættur. Það opnast bara meiri víð-
átta, hæð tekur við af hól og ég held
bara áfram.“
Yfirlit hugmynda
minna síðustu
þrjá áratugina
Sýning á verkum myndlistarmannsins
Sigurðar Árna Sigurðssonar stendur yfir
á Kjarvalsstöðum. Fór úr bundinni lands-
lagshefð yfir í hugmyndalegri nálgun.
Ég hafði ekki áttað mig á því hvað opnunin skiptir miklu máli, segir Sigurður Árni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Valerie. Pólýhúðað ál. 126X288 cm. 2020.
Vegleg
sýningarskrá
Í tengslum við sýninguna
gefur Listasafn Reykjavíkur
út veglega sýningarskrá með
ljósmyndum af sýningunni,
myndum af verkum og textum
um Sigurð Árna og viðfangs-
efni hans. Þar skrifar Michel
Gauthier, sýningarstjóri við
Samtímalistasafn Frakklands
í Centre Pompidou í París,
ítarlega fræðigrein um Sigurð
Árna og list hans, Auður Ava
Ólafsdóttir rithöfundur ræðir
við listamanninn um ferilinn og
Markús Þór Andrésson skrifar
um þróun ferils Sigurðar Árna.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
14 stöðvar, sjálfsmynd sem... er sýning Helga Þorgils Frið-jónssonar, sem verður opnuð
laugardaginn 12. desember í Gall-
eríi göngum, Háteigskirkju. Allar
myndirnar eru olíumálverk unnin
á striga og unnin frá fyrstu drögum
2014 – 2020.
Um sýninguna segir Helgi Þor-
gils: „Þegar kirkjur eru heimsóttar
sér maður oft á látlausum hliðar-
veggjum 14 málverk, eða lista-
verk hvers konar, sem sýna Krist
með krossinn á öxlinni, stíginn til
Mount Calvary. Stundum sýna þær
hann bera krossinn nokkuð létti-
lega, en í önnur skipti örmagna
og þjáðan. Fyrir mér er þetta eins-
konar mantra, talnabönd og annað
sem bera mann í ástand sem tengir
við annað ástand. Við hverja mynd
hugleiðir áhorfandinn, eða horfist í
augu við sjálfan sig. Leiðin markast
af því að Jesú fellur með krossinn,
eða Jesú horfir í augu móður sinnar,
o. s. frv.
Frægar tilvitnanir í krossburð-
inn í list nútímans er verk Barnett
Newman, The Stations of the Cross,
og svo kvikmynd Mel Gibson, The
passion of the Christ. Ég kópíera 14
myndir úr listasögunni, eftir fræga
og minna fræga listamenn, og set
sjálfsmynd í kristsmyndina. Allar
fjórtán stöðvarnar eru eitt verk.
Hver og einn verður að gera það
upp við sjálfan sig hvað það þýðir,
og hvort það sé trúarlegt verk eða
ekki. Það sýnir mannlega breytni,
mannleg örlög og hugmyndir. Einn-
ig sýnir það hugmyndir listamann-
anna og tímann sem frumverkið
er gert, og tímann sem mitt verk er
gert. Jafnvel tæknilegar vangaveltur
eða skóla.“
Mannleg breytni
Helgi Þorgils sýnir verk í Háteigs-
kirkju. MYND/AÐSEND
Í Gallerí Fold stendur yfir sýning á verkum danska málarans Ole Ahlberg (f. 1949). Hann er
íslenskum listunnendum að góðu
kunnur enda hefur hann sýnt verk
sín hér á landi nokkrum sinnum.
Hann er einna
þ e k k t a s t u r
fyrir myndir
s í n a r a f
teiknimynda-
hetjunni góð-
kunnu Tinna
og félög u m
hans þar sem
hann sý nir
persónur úr
Tinnabókun-
um í ýmsum
ó v e n j u l e g -
um, óvæntum og jafnvel erfiðum
aðstæðum. Stundum eru verk hans
dökk eða erótísk en í öðrum ríkir
gleði og leikur en þau bjóða áhorf-
andanum alltaf upp á óvænta upp-
lifun og vísa gjarna út fyrir sig.
Á sýningunni eru prent í tak-
mörkuðu upplagi, auk þriggja olíu-
verka, en þetta er í fyrsta sinn sem
olíuverk eftir Ole eru sýnd hér á
landi en þau eru afar eftirsótt.
Sýningin stendur til 19. desember.
Ole Ahlberg sýnir
verk í Galleríi Fold
1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R34 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING