Fréttablaðið - 10.12.2020, Side 56
ÞAÐ ER
KOMINN ANSI
LANGUR TÍMI
SÍÐAN ÉG
HÆTTI AÐ
FARA Í LJÓS
ENDA GÍFUR-
LEGA MIKIÐ
ÚRVAL TIL AF
GÓÐUM
BRÚNKU-
VÖRUM SEM
FARA MIKIÐ
BETUR MEÐ
HÚÐINA.
Núna á meðan sviðs-l i s t a h e i m u r i n n lig gur að mestu leyti niðri hef ég verið að lesa mikið fyrir Storytel en
er líka á fullu í að talsetja. Núna í
byrjun desember er ég svo á leið-
inni norður til Akureyrar að starfa
með Leikfélagi Akureyrar í annað
sinn, en þau eru að fara að setja upp
söngleikinn Benedikt Búálf. Ég er
hrikalega spennt að geta loksins
farið að leika á sviði aftur.“
Þórdís segist alltaf hafa reynt að
hugsa vel um húðina og að heims-
faraldurinn hafi ekki haft mikil
áhrif á rútínu hennar þegar þegar
það kemur að notkun á snyrti- og
húðvörum.
„Ég hef alltaf lagt mjög mikið
upp úr því að hugsa vel um húð-
ina mína og hef bara gert meira
af því núna ef eitthvað er. Það er
kannski helst það að maður er að
mála sig sjaldnar þar sem maður
er með fá tilefni til, en mér finnst
það bara mikill kostur þar sem
mér líður best ómálaðri eða lítið
málaðri. Mig þyrstir hins vegar
orðið í samkvæmi eins og sennilega
f lesta landsmenn en það er annað
mál. Til að halda rútínu á þessum
skrítnu tímum sem við lifum finnst
mér mikilvægt að gera alltaf mína
daglegu húðrútínu á morgnana og
hreinsa húðina svo vel á kvöldin,
hvort sem ég hef verið heima að
vinna eða ekki. Þetta er líka kjörið
tækifæri til að fara vel yfir skápana
heima og henda út gömlum snyrti-
vörum,“ segir hún.
En hvað gerir hún til að gera vel
við sig?
„Þegar ég er að eiga rólegt kvöld
heima, sem eru jú öll kvöld á þessu
ári, f innst mér æðislegt að fara
í bað eða góða sturtu, skrúbba
húðina og setja góða djúpnær-
ingu í hárið. Nota síðan einhverja
góða olíu á líkamann og setja á mig
maska, annaðhvort sýrumaska, er
til dæmis mjög hrifin af Peeling
Solution frá The Ordinary eða ein-
hvern góðan rakamaska frá Dr.
Hauschka,“ svarar Þórdís.
Þórdís verður fyrir norðan að
leika fram að 20. desember.
„Þannig að jólaundirbúningur
verður í sögulegu lágmarki þetta
árið. Ég fæ hins vegar gott jólafrí og
hlakka mikið til að verja tímanum
með stráknum mínum.“
steingerdur@frettabladid.is
Mikilvægt
að nota alltaf
sólarvörn
Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, leikkona
og Reykjavíkurdóttir, er lítið fyrir meik
en elskar góðar brúnkuvörur. Að hennar
sögn er eitt best geymda leyndarmálið
þegar kemur að umhirðu húðarinnar dag-
leg notkun á sólarvörn, líka á veturna.
Þórdís notar lítið af farða og hugsar vel um húðina. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Oi Oil
Davines er mitt allra uppáhalds
hárvörumerki. Flestar hárvörurnar
mínar eru frá þeim og ég hef ekki
enn þá prófað vöru frá Davines
sem ég elska ekki. Ég nota þessa
olíu á hverjum degi. Olían mýkir
hárið og gefur því gljáa. Ég er með
þykkt og mikið hár sem á það til
að flækjast og verða úfið og þessi
olía verður alltaf að vera til inní í
skáp hjá mér. Svo er líka guðdóm-
leg lykt af henni sem skemmir
ekki fyrir.
Mimitika sólarvörn
Það eru nokkur ár síðan sólarvörn
varð partur af daglegri húðum-
hirðu minni og það er sennilega
eitt best geymda leyndarmálið
þegar kemur að öldrun húðar. Ég
hef prufað margar sólarvarnir í
gegnum árin en þessi verður alltaf
í uppáhaldi. Ég nota sólarvörn alla
daga, hvort sem það er sól eða
ekki til að vernda húðina gegn
UVA- og UVB-geislum. Það er ekki
síður mikilvægt að nota sólarvörn
á veturna.
Dr. Hauschka Translucent
Bronzing Tint
Eftir að ég fór að hugsa betur um
húðina mína hætti ég að nota
meik, ég mála mig ekki dagsdag-
lega en þegar ég vil setja eitthvað
létt á mig nota ég hyljarann minn
frá Dr. Hauschka og set svo þetta
bronzing tint yfir. Það má líka
blanda því við dagkrem og það
gefur húðinni fallegan ljóma. Fyrir
þær sem nota farða er líka upplagt
að blanda þessu út í farðann og fá
smá sólarkysst útlit. Ég er algjör-
lega dolfallin yfir þessu merki og
þeirra hugmyndafræði um hreinar
lífrænar snyrtivörur, formúlurnar
eru stútfullar af andoxunarríkum
steinefnum og vítamínum.
Dr. Hauschka Rose Day
Cream
Þetta er mitt uppáhaldsdagkrem
á veturna. Á vorin og sumrin nota
ég Melissa Day Cream frá sama
merki sem er örlítið léttara. Þetta
er mjög nærandi og róandi dag-
krem sem verndar húðina og það
er æðislegt að nota þegar það er
farið að kólna mikið og húðin er
extra viðkvæm. Ég veit ekki hvað
ég hef farið í gegnum margar
túpur af þessu.
Marc Inbane Perle de
soleil brúnkudropar
Enn önnur snilldin frá Marc
Inbane. Ég blanda 3-4 dropum
af þessu í rakakremið mitt þegar
mig vantar smá lit og ljóma. Sér-
staklega nauðsynlegt yfir þessa
dimmu mánuði hér á Íslandi.
Marc Inbane brúnkufroða
Ég hef notað Marc Inbane brúnku-
vörurnar í mörg ár. Það er kominn
ansi langur tími síðan ég hætti að
fara í ljós enda gífurlega mikið
úrval til af góðum brúnkuvörum
sem fara mikið betur með húðina.
Marc Inbane er besta brúnkan að
mínu mati og gefur ofboðslega
fallegan lit, ég á alltaf til bæði
froðuna og spreyið. Froðan þornar
hratt og það er auðvelt að bera
hana á.
Tan Organic sólarpúður
Verandi manneskja sem forðast það að láta sólina
skína mikið framan í mig finnst mér mjög mikilvægt
að nota góðar vörur sem fríska upp á mann og gefa
manni þetta sólakyssta „lúkk”. Ég er alltaf með sólar-
púður í snyrtitöskunni minni og þetta er það allra
besta sem ég hef prófað. Það er tvískipt, helmingur-
inn er ljómapúður og liturinn er guðdómlegur.
Skin Regimen 15.0
vitamin C booster
Ég hefði aldrei trúað því hvað
C-vítamín serum geta gert mikið
fyrir húðina. C-vítamín er mjög
öflugt andoxunarefni sem
verndar húðfrumurnar og hægir
á öldrunarmerkjum. C-víta mín er
það inni halds efni í húðvör um sem
hef ur hvað flest ar rann sókn ir á
bak við sig sem sann a virkni þess
svo þetta er eitt eft ir sótt asta inni-
halds efnið í húðvör um í dag. Þetta
dásamlega serum jafnar húðlit,
áferð húðar og dregur úr fínum
línum.
1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R40 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ