Fréttablaðið - 10.12.2020, Side 60
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@
frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
02.12.20 - 08.12.20
1 2
5 6
7 8
109
43 Bráðin Yrsa Sigurðardóttir
Vetrarmein
Ragnar Jónasson
Þagnarmúr
Arnaldur Indriðason
Dýralíf
Auður Ava Ólafsdóttir
Fjarvera þín er myrkur
Jón Kalman Stefánsson
Spænska veikin
Gunnar Þór Bjarnason
Snerting
Ólafur Jóhann Ólafsson
Orri óstöðvandi -
Bókin hennar Möggu Messi
Bjarni Fritzson
Gata mæðranna
Kristín Marja Baldursdóttir
Þín eigin undirdjúp
Ævar Þór Benediktsson
Í dag verður opnuð sýning á verkum úr nýrri bók lista-mannsins Antons Lyngdal í Núllinu galleríi við Banka-stræti. Bókin Mr. Awkward Show Presents: Mr. POSER
verður til sölu á sýningunni, en Mr.
Awkward show er hugarfóstur og
listrænt hliðarsjálf Antons. Kar-
akterinn varð til þegar hann var í
listnámi við hinn virta skóla Gerrit
Rietveld í Amsterdam í Hollandi.
„Þetta er listanafnið mitt sem
ég bjó til fyrir nokkrum árum.
Mr. Poser er nokkurs konar undir-
karakter sem kemur út frá Mr.
Awkward show. Mr. Poser á sér
þann draum að verða módelstjarna.
Hann hefur gengið á einni tísku-
sýningu úti í Amsterdam. Það er svo
sem ekki mikið að gera hjá honum,
þannig að hann gerði bók í staðinn,“
segir Anton um karakterana tvo
sem birtast í gjörningalist hans.
Stærstur í senunni
Bókin skiptist í tvennt, annars vegar
myndir þar sem Mr. Poser stillir sér
upp og hins vegar þar sem hann
stillir sér upp við verk eins fremsta
vegglistamanns landsins, Opes_
vs_vato. Eðli listarinnar vegna og
þar sem hún getur vissulega verið á
gráu svæði, kemur hann aldrei fram
undir eigin nafni. Það svífur því
alltaf ákveðin dulúð yfir vegglista-
senunni, bæði hér heima og erlendis.
„Hann er einn sá allra stærsti
í senunni. Mr. Poser fílar Opes_
vs_vato. Hann kemur aldrei fram
undir nafni þar sem graffití er á gráu
svæði. Þeir fara í samstarf, fá ljós-
myndarann Þórstein Sigurðsson til
að taka ljósmyndir af Mr. Poser fyrir
framan verk Opes.“
Vinnan að baki bókinni hófst
sumarið 2019. Upphaflega stóð til
að hún kæmi út á Menningarnótt
í sumar. Anton segir það hafa verið
lán í óláni að útgáfunni hafi verið
frestað.
„Við urðum að fresta útgáfunni
út af COVID. En í rauninni er bókin
miklu betur gerð núna út af þess-
ari seinkun. Við nýttum tímann
og fórum aftur yfir hönnunina og
útfærðum hana betur. Bókin er
eiginlega miklu flottari en hún var
upphaflega.“
Stofnuðu útgáfu
Bókin er gefin út af Núllið Book
club, og er hún þeirra fyrsta útgáfa.
Að henni standa gallerístjóri Núlls-
ins, ljósmyndarinn Þórsteinn Sig-
urðsson, og grafíski hönnuðurinn
Stefán Hjálmtýr Stefánsson. Þór-
steinn og Anton hafa lengi verið
vinir en Anton kynntist Stefáni
þegar þeir voru báðir í námi við
Gerrit Rietveld.
„Þetta er sem sagt ný bókaútgáfa
undir nafni Núllsins. Þórsteinn og
Stefán stofnuðu hana saman. Hug-
myndin að bókaútgáfunni kom
bara í kringum gerð bókarinnar.
Þeir ákváðu bara að gera þetta
sjálfir,“ segir Anton, en Núllið Book
club stefnir svo á frekari bókaútgáfu
síðar.
Heldur sig ekki við eitt listform
Sjálfur var Anton í vegglist á sínum
yngri árum.
„Það var samt ekkert áhugi á
„graffi“ sem kveikti áhuga minn á
list. Ég hef verið að gera list frá því
ég var lítill. Ég held mig ekkert við
eitt listform. Sumir kjósa að mála
bara, eða vera fyrst og fremst í
gjörningum. Ég get alveg málað líka.
Ég fæ einhverja hugmynd og vinn í
kringum hana, útfæri eftir því hvað
hentar. Mig langar að verða jafn-
vígur í ólíkri framsetningu á list.“
Áhuginn á gjörningalist hófst í
náminu úti í Amsterdam.
„Ég var með fjölda gjörninga. Þar
á meðal það sem ég kalla „stripp-
rapp“. Það varð svo vinsælt að ég
fékk alveg endalaust af bókunum.
Ég ætlaði fyrst bara að gera þetta
einu sinni. Þannig að ég er þekktur
í Hollandi fyrir að gera stripp-rapp,“
segir Anton og hlær.
Hugmyndin var fyrst sú að hann
rappaði á sviði og fékk vinkonu sína
til að rífa af honum fötin á meðan á
innsetningunni stóð.
„Ég þykist ekki búast við henni og
ekki alveg vita hvað hún er að gera.
Síðan vatt þetta upp á sig og fékk ég
með mér spænska rapparann Mr.
Portfolio. Hann að rappa á spænsku
og ég á íslensku, í Hollandi. Þannig
að þetta var orðið mjög litríkt.“
Sýningin verður opnuð í dag
klukkan 17.00 í Núllinu galleríi við
Bankastræti 0. Þar verður hægt að
festa kaup á bókinni Mr. Awkward
Show Presents: Mr. POSER. Fyllstu
sóttvarna er gætt og samkomutak-
markanir virtar.
steingerdur@frettabladid.is
Blanda af gjörningi og
vegglist í nýrri bók
Listamaðurinn Anton Lyngdal gefur í dag út bókina Mr. Awkward
Show Presents: Mr. POSER. Til að halda upp á útgáfuna opnar
hann sýningu á verkunum úr bókinni í Núllinu galleríi í dag.
Vinir Antons, Þórsteinn og Stefán, ákváðu að stofna bókaforlag í kjölfar útgáfunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
ÉG HEF VERIÐ AÐ
GERA LIST FRÁ ÞVÍ ÉG
VAR LÍTILL. ÉG HELD MIG
EKKERT VIÐ EITT LISTFORM.
SUMIR KJÓSA AÐ MÁLA BARA,
EÐA VERA FYRST OG FREMST Í
GJÖRNINGUM.
1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R44 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð