Fréttablaðið - 18.12.2020, Síða 16

Fréttablaðið - 18.12.2020, Síða 16
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Með trú- verðugri áætlun ættum við að sjá ríkissjóð geta fjár- magnað sig á betri kjörum innanlands. Sem betur fer hefur stór hluti eldri borgara á Íslandi það gott –en allt of stór hópur hefur það alls ekki. Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Sem betur fer hafa lífsgæði okkar batnað og lífslíkur fólks hækka með hverju ári. Aldrað fólk heldur heilsunni sífellt betur langt fram eftir aldri og hefur góða möguleika á að lifa inni- halds- og viðburðarríkt ævikvöld. Eitt meginverkefni stjórnvalda er að sjá til þess að hér sé gott að eldast – að allt eldra fólk á Íslandi búi við sómasamleg lífskjör, hafi val um atvinnu- þátttöku, fái notið hágæða heilbrigðisþjónustu, geti sótt sér fræðslu, notið innihaldsríkra tóm- stunda ásamt samvista með vinum og fjölskyldu. Stærsta og umtalaðasta hagsmunamál eldri borgara er þar af leiðandi sómasamlegar ellilíf- eyrisgreiðslur. Sem betur fer hefur stór hluti eldri borgara á Íslandi það gott – en allt of stór hópur hefur það alls ekki. Um 9.000 eldri borgarar búa við fátækt en stór hluti þeirra var áður á örorku, er á leigu- markaði eða einstaklingar sem eiga ekki sterkt bakland. Stjórnvöld síðustu ára hafa látið undir höfuð leggjast að styrkja stöðu þessa hópa. Ellilífeyris- greiðslur hafa ekki fylgt launaþróun og eldri borgarar hafa horft á tekjur sínar dragast aftur úr launafólki ár frá ári. Stefna sem leyfir kjörum eldri borgara að dragast aftur úr launaþróun lægstu launa jaðarsetur þá. Þeir hafa hvorki samningsrétt né verkfallsrétt og þurfa því að treysta á að Alþingi tryggi þeim mannsæmandi kjör. En samkvæmt fjárlögum og fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar breikkar bilið áfram og það er óboðlegt. Landsamband Eldri borgara hefur sett fram þá skýlausu kröfu að elllilífeyrir hækki um 15.750 krónur vegna ársins 2021, rétt eins og samið var um í Lífskjarasamningunum. Þingmenn Sam- fylkingarinnar munu sýna þeirri hófsömu kröfu stuðning í verki á Alþingi með breytingartillögu við fjárlög síðar í dag. Þingmenn úr öllum f lokkum fá þannig tækifæri til að standa með eldri borgarum landsins og bæta stöðu þeirra frá og með 1. janúar. 15.750 Logi Einarsson formaður Sam- fylkingarinnar Skák og mát Nú er komin niðurstaða í stóra fæðingarorlofsfrumvarpsmálið á Alþingi. Reyndar var ágreining- urinn um aukaatriði máls, það er hvernig foreldrar áttu að skipta á milli sín litlum hluta orlofsins. Einhverjir vildu að skiptingin væri óhagganleg, aðrir vildu lausari taum. Niðurstaðan varð að hægt er að skipta þessu niður á klukkustundir og fá allir verðandi foreldrar skákklukku að gjöf frá fæðingarorlofssjóði þar sem hvort um sig hefur til- tekinn tíma á klukkunni. Þá þarf bara að muna að ýta á takkann þegar foreldri skákar sér út af heimilinu og fer til vinnu. Norður-Norður-Kórea Reykjavíkurborg leitar að nýjum yfirmanni fyrir alla upp- lýsingafulltrúana sem starfa hjá borginni. Þeir sem þekkja til kalla skrifstofuna iðulega fréttastofu norður-Norður- Kóreu enda er alltaf allt frábært, aldrei neitt fer úrskeiðis og ef eitthvað fer úrskeiðis þá er það einhverjum náttúruvættum eða huldufólki að kenna. Þeir sem sækja um þurfa að leggja sig alla fram við að finna það, enda búið að djassa upp starfstitilinn í „teymisstjóra samskiptateymis“ en undirmennirnir „stafrænir leiðtogar“. Er það ný regla að aldrei má segja starfstitilinn án þess að fá til baka: „Já ókei. Og hvað í ósköpunum felur það í sér?“ FYIT WWW.JÓLAGESTIR.IS Í BEINNI FRÁ BORGARLEIKHÚSINU LAUGARDAGINN 19. DESEMBER HEIMA Í STOFU HJÁ ÞÉR! ÖLL MIÐASALA Á EINUM STAÐ Á TIX.IS HORFÐU Á TÓNLEIKANA ÞAR SEM ÞÉR HENTAR PPV PPV STREYMI Þeir fjármunir sem hið opinbera hefur til ráðstöfunar hverju sinni ráðast í grunninn af verðmætasköpun í atvinnulífinu. Skuldsetn-ing ríkissjóðs og sveitarfélaga, sem verður vel á annað þúsund milljarða á næstu árum, kemur til af nauðsyn á meðan við þurfum að styðja við hagkerfið í gegnum kórónakreppuna. Sem betur fer stóðum við Íslendingar vel að vígi við upphaf faraldursins. Skuldahlutfall ríkisins var minna en flestra annarra þróaðra hagkerfa og þá nýtur ríkissjóður góðs af sterkri lausafjárstöðu sem dregur úr þörf á að sækja lánsfé á mörkuðum. Það þýðir samt ekki að við getum leyft okkur ábyrgðarleysi. Ef það á að takast að halda uppi öflugum hagvexti og greiða skuldirnar til baka þarf að verja lánsfénu skynsamlega með áherslu á aukna verðmætasköpun og þá um leið fjölgun starfa. Skuldirnar eru eitt, vextirnir annað. Langtíma vextir á markaði hafa lækkað mikið undanfarin ár samhliða því að stýrivextir Seðlabankans hafa farið lækkandi – þó það nú væri. Vaxtabyrði ríkissjóðs, sem hlutfall af landsframleiðslu, verður því viðráðanlegri en áður. Það segir samt ekki alla söguna. Þótt Ísland fari inn í þessa kreppu með lágt skuldahlutfall þá stefnir í að það muni vaxa afar hratt, mun meira en í samanburði við önnur OECD-ríki, og verði orðið um 65 prósent 2025. Það er lítil ástæða til að stæra sig sérstaklega af því enda verður það hærra en hjá hinum Norðurlöndunum. Þá er það umhugsunarefni að vaxtabyrði ríkissjóðs verði margfalt meiri en annarra vestrænna ríkja – jafnvel Grikklands – þrátt fyrir að skuldastabbinn sé minni. Það veit ekki á gott ef hagvöxtur reynist lakari en spár gera ráð fyrir. Eigum við að sætta okkur við þessa stöðu? Með trú- verðugri áætlun, bæði hvað varðar erlenda lántöku og virkari stuðnings Seðlabankans, ættum við að sjá ríkið geta fjármagnað sig á betri kjörum innanlands. Þegar faraldurinn hófst boðaði bankinn kaup á ríkisbréfum til að tryggja miðlun peningastefnunnar og létta á fjár- mögnun ríkissjóðs. Það hefur ekki gengið eftir og ávöxt- unarkrafa ríkisbréfa er hærri en þegar vaxtalækkunar- ferlið hófst í ársbyrjun. Margt spilar þar inn í, meðal annars óvissa og áhugaleysi lífeyrissjóða. Enginn er að tala fyrir því að beita lífeyrissjóðina óeðlilegum þrýst- ingi. Hins vegar er það áhyggjuefni ef sjóðirnir, einkum vegna einokunar á skyldusparnaði landsmanna, ætla að draga verulega úr kaupum á ríkisbréfum á þessum tímum. Um þetta eru Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sammála en í viðtali við Markaðinn í vikunni benti Bjarni réttilega á að vegna „hagsmuna umbjóðenda lífeyrissjóðanna væru skuldir ríkissjóðs álitlegur kostur fyrir þá“. Við erum lánsöm að hafa fjármálaráðherra sem skilur mikilvægi þessi að skuldasöfnunin sé sjálfbær. Þrýstingurinn á að gera allt fyrir alla er mikill. Það er rétt, eins og ráðherra hefur sagt, að við höfum alla burði til að vaxa úr þeim vanda sem faraldurinn hefur valdið. Ísland er hins vegar nánast eina ríkið sem hefur horft upp á vexti á markaði fara hækkandi síðustu mánuði samtímis versnandi efnahagshorfum. Það er alvarlegt að fylgni okkar við vaxtaþróunina erlendis hafi brostið eins mikið og raun ber vitni. Stjórnvöld geta gert betur. Gerum betur 1 8 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.