Fréttablaðið - 18.12.2020, Page 24
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Sportval er tveggja ára fyrir-tæki en við opnuðum 7. des-ember 2018 sem skíðagöngu-
verslun og höfum dálítið þróast út
frá því. Okkar helsta áhersla hefur
verið þjónusta við skíðagönguiðk-
endur en núna í dag erum við orðin
meiri alhliða útivistarverslun,“
segir Óskar Jakobsson, annar eig-
enda Sportvals.
„Við erum með mikið úrval af
útivistarfatnaði og öllu sem tengist
göngu og gleði á fjöllum. Við höfum
líka verið með hlaupatengdar vörur
yfir sumartímann og núna í sumar
bættum við við okkur hjólreiða-
fatnaði.“
Vönduð vörumerki
Um þessar mundir eru það skíðin
sem ráða ríkjum. „Við bjóðum upp
á mikið úrval af gönguskíðum og
utanbrautarskíðum. Við erum með
Åsnes sem er eitt vinsælasta merkið
í utanbrautarskíðum á Íslandi í dag.
Það er norskt merki sem hefur verið
starfrækt í rúm 90 ár,“ segir Óskar.
„Það er gaman að segja frá því að
skíðin þeirra eru hönnuð í samráði
við og heita eftir þekktum pólför-
um. Það er hálft andlit á hvoru skíði
og svo þegar þú setur þau saman
ertu kominn með heilt andlit og
sérð því andlitið á þeim sem hann-
aði skíðin. Þar má til dæmis nefna
Liv-fjallaskíðin, kvenskíði sem eru
hönnuð af konum fyrir konur, og
eru kennd við Liv Arnesen en hún
var fyrsta konan til þess að ganga á
skíðum yfir suðurpólinn. Karla-
skíðin eru svo hönnuð af körlum og
heita eftir þeim, eins og Amundsen
og Gamme,“ útskýrir Óskar.
„Við erum einnig með finnska
vörumerkið Peltonen sem er búið
að vera við lýði í 60-70 ár en Finnar
eru náttúrulega frægir fyrir göngu-
skíði og gríðarleg gæði. Svo erum
við með fleiri merki eins og Craft
Sportswear, Bliz gleraugu og auð-
vitað Lillsport vettlingana sem eru
sérhannaðir keppnisvettlingar,“
segir Óskar. „Þá erum við líka
með eitt af flottustu merkjunum
í gönguskóm, Garmont, en það er
ítalskt vörumerki sem leiðsögu-
menn í Ölpunum mæla með. Síðan
erum við líka með Brooks hlaupa-
skó og göngustafi frá Fizan svo
eitthvað sé nefnt.“
Vakning meðal landsmanna
Að sögn Óskars hafa gönguskíði
aldrei verið eins vinsæl og nú. „Það
er búin að vera gríðarleg aukning
eftir að COVID skall á, fólk virðist
vera að vakna til lífsins og átta sig á
því að það er til eitthvað meira og
annað skemmtilegt en að fara til
útlanda, eins og að fara á hálendi
Íslands. Þetta eru þannig skíði að
þú getur bara sett skinn undir,
labbað á fjöll og svo rennirðu þér
niður.“
Óskar segir gaman að fylgjast
með þróuninni en hann hefur
stundað skíðagöngur frá því að
hann var lítill drengur auk þess sem
hann hefur þjálfað um árabil.
„Sem skíðagöngumaður frá æsku
á Ísafirði þá er búið að vera alveg
hreint stórkostlegt að fylgjast með
því hvað íþróttin hefur stækkað
mikið á undanförnum árum.
Í gamla daga voru þetta örfáir
sem voru á Ísafirði, Siglufirði og
Akureyri en í dag er þessi íþrótt
stunduð úti um allt land. Þetta er
orðin almenningsíþrótt, við sjáum
þessa miklu fjölgun í utanbrautar-
og brautarskíðum, það liggur við að
þetta sé að tvöfalda sig á milli ára.“
Hann segir söluna hafa farið
fram úr öllum vonum. „Þeir hjá
Åsnes segjast hvergi hafa séð eins
mikla sölu per capita og á Íslandi.
Þeir eru alveg undrandi á þessari
gríðarlegu sölu og reiknuðu engan
veginn með að það væri hægt að
selja svona mörg utanbrautarskíði.
Við erum búin að selja eins mörg
skíði núna og allan síðasta vetur.
Fótanuddtækin voru vinsæl ein
jólin, núna eru það utanbrautar-
skíði,“ segir Óskar og brosir.
Konur duglegri að hreyfa sig
„Það er okkar von og trú að þetta
muni aukast og heilsa landsmanna
fari batnandi með tímanum. Það
mætti segja að þótt að þetta sé
íþróttaverslun þá séum við í raun
lífsstílsverslun, það eru margir sem
velja sér þennan lífsstíl,“ útskýrir
Óskar.
„Þessi vakning er líka tengd
Landvættum en hingað koma
margir hópar, sérstaklega kvenna-
hópar, sem hafa verið að fara á staði
eins og Ísafjörð og annað með því
markmiði að taka þátt í Fossavatns-
göngunni á vorin. Sem skíðaþjálfari
í nokkur ár get ég sagt að konur eru
yfirleitt í 75% á móti 25% karl-
mönnum. Konur eru einfaldlega
duglegri að hreyfa sig.“
Þá er algengt að viðskiptavinir
séu í leit að einhverju sem fjöl-
skyldan geti stundað saman og
þannig átt fleiri gæðastundir.
„Hingað koma hjón og jafnvel heilu
fjölskyldurnar. Sumir eru kannski
á leiðinni í sumarbústað, út á land
eða bara í Heiðmörk og vilja geta
haft þennan valkost. Krakkarnir
vilja oft gera eitthvað annað en að
ganga en þau hiklaust vilja fara
á gönguskíði og þetta er tilvalið
tækifæri til að byggja krakkana
upp í að vera framtíðariðkendur.
Það er frábært hvað þessi íþrótt
hefur sameinað margar fjöl-
skyldur.“
Breytilegt eftir árstíðum
Sportval er einnig með mikið
úrval af vörum fyrir hlaupa- og
hjólareiðafólk. „Við erum líka með
mikið af fatnaði fyrir hjólreiða-
fólk, hvort sem þú ert í venjulegum
eða fjallahjólreiðum. Svo bjóðum
við upp á að sérmerkja fatnað
fyrir hlaupa-, skíða- og hjólreiða-
hópa. Skíðin eru dálítið ráðandi
frá nóvember og fram í apríl en svo
tekur annað við, þá koma göngu-
hóparnir. Það mætti segja að með
vorinu breytist okkar sérstaða yfir
í að þjónusta þessa hópa,“ skýrir
Óskar frá.
„Almenningur flytur sig á milli
íþróttagreina eftir árstíðum.
Margir eru í golfi á sumrin og á
skíðum á veturna. Menn eru á
fjallaskíðum langt fram eftir sumri
og eru til dæmis að fara á Snæfells-
jökul eða Tröllaskaga í lok maí eða
taka jafnvel ferðir frá Ísafjarðar-
djúpi og yfir á Jökulfirði, labba þar
upp á fjöll og renna sér svo niður
hinum megin og þar er tekið á móti
þeim. Þetta tímabil er að lengjast,
frá fyrsta snjó sem fellur að hausti
fram í lok maí, jafnvel fram í júní.“
Mikilvægt að gefa sér tíma
Hjá Sportval er lögð áhersla á
vandaða þjónustu og sanngjarnt
verð. „Þegar þú kemur hingað til
okkar geturðu verið öruggur um
að fá þá þjónustu sem þú vilt og
þarft. Eins og með gönguskíðin, þá
erum með ákveðið ferli, þar sem
við skoðum atriði á borð við hæð,
þyngd og í hvað viðkomandi ætlar
að nota skíðin, til þess að tryggja
það að viðskiptavinir okkar fái
nákvæmlega réttu skíðin.
Vegna COVID geta viðskipta-
vinir pantað sér tíma utan opn-
unartíma þar sem hægt er að koma
í mátun og mælingar. Þú þarft að
hafa smá frið þegar þú ert að kaupa
skíði, ef þú kaupir skíði á fimm
mínútum þá ertu sennilega ekki
að fara að fá réttu skíðin. Það þarf
að fara í gegnum nokkur atriði og
gefa sér tíma til að skoða skíði og
annan búnað svo allir séu sáttir,“
segir hann.
„Við leggjum líka áherslu á eigin
innflutning, með enga milliliði eða
heildverslanir en þannig teljum við
að við getum náð sem bestu verði
fyrir okkar viðskiptavini og verið
samkeppnishæfir á markaðinum.“
Best geymda leyndarmálið
Það er margt skemmtilegt fram
undan. „Í byrjun næsta árs verðum
við komin með fleiri flott umboð í
útivistarfatnaði, utanvegahlaupa-
skóm og öðru, þetta er allt í bígerð.
Við höfum verið á Selásbraut 98
í Árbænum frá upphafi en núna
erum við að sprengja utan af okkur
húsnæðið, það er búið að vera alveg
brjálað að gera,“ segir Óskar.
„Það er líka gaman að segja frá
því að við erum með Facebook- leik
þar sem við drögum út tvö utan-
brautarskíði. Það geta allir geta
tekið þátt og sigurvegarar verða
tilkynntir 23. desember þannig að
um að gera að taka þátt.“
Óskar hvetur þau sem eru í leit
að hinni fullkomnu jólagjöf að gera
sér ferð í Sportval. „Við erum með
skemmtilega dótið í jólapakkann,
enda mætti segja að við séum dóta-
búð útivistarmannsins, 365 daga
á ári. Við höfum stundum verið
kölluð eitt best geymda leyndar-
málið því það eru ótrúlega margir
sem koma inn og höfðu ekki hug-
mynd um búðina. Við höfum ekki
verið að markaðssetja okkur mikið
en hægt og rólega spyrst þetta út
og það eru alltaf fleiri sem eru að
koma og allir sem koma hingað
koma aftur. Þannig að við hljótum
að vera að gera eitthvað rétt.“
Framhald af forsíðu ➛
Sportval hefur verið kallað eitt best geymda leyndarmálið en þar er að finna einstakt úrval af vönduðum útivistarvörum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Hér má sjá
skíðin frá Ås-
nes en þau eru
skreytt and-
litum þekktra
pól fara sem
komu að
hönnun.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Sportval býður upp á mikið úrval af skóm frá ítalska merkinu Garmont.
Fólk virðist vera
að vakna til lífsins
og átta sig á því að það er
til eitthvað meira og
annað skemmtilegt en að
fara bara til útlanda, eins
og að fara á hálendi
Íslands.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R