Fréttablaðið - 18.12.2020, Síða 28

Fréttablaðið - 18.12.2020, Síða 28
Starfsfólk fyrirtækisins vinnur náið með íþróttahreyfing-unni og fagaðilum í heil- brigðisstétt. Einnig ferðast fagfólk á vegum fyrirtækisins um landið með göngu- og hlaupagreiningar, kynningar og sölu á tengdum vörum. Elva Björk Sveinsdóttir og Lýður Skarphéðinsson starfa bæði sem sérfræðingar í göngu- greiningu hjá fyrirtækinu og hafa sitt að segja um starfið. Einnig ber Ingólfur Ingólfsson kírópraktor fyrirtækinu vel söguna. Bakverkir hverfa eftir áratuga þrautagöngu Elva segir að það ánægjulegasta við starfið sé að hitta fólk sem hefur losnað algjörlega við verki og eignast nánast nýtt líf eftir að hafa komið í göngugreiningu. „Allt of margir sem koma til okkar hafa ekki hugað að fótaheilsu í mörg ár, til dæmis með því að nota rétta skó eða innlegg. Fólk gerir sér ekki grein fyrir hversu mikilvægt þetta er og tengir ekki bakverk eða mjaðmaverk við ólag á fótum. Margir glíma við þessa verki árum saman í vinnu og íþróttaiðkun sem getur verið verulega heftandi. Það er dásamlegt að sjá þegar til dæmis bakverkir hverfa eftir ára- tuga þrautagöngu.“ Í greiningunni er notuð full- komnasta tækni sem völ er á til að mæla álag á fótinn við niðurstig. „Þetta er til dæmis þrýstiplata með yfir tólf þúsund skynjurum en reynslan okkar skiptir samt mestu máli. Við erum með yfir 20 ára reynslu í göngugreiningum og höfum tekið þátt í þróun á greiningunum og innleggjunum alveg frá því við unnum með stoð- tækjadeild Össurar,“ segir Elva, sérfræðingur í göngugreiningum. Sætti mig ekki við það næstbesta Lýður er bæði sérfræðingur í göngugreiningu og framkvæmda- stjóri fyrirtækisins Fætur toga. „Fyrirtækið okkar hefur þróast hratt á síðustu árum. Við opn- uðum tvær stórar verslanir sem eru stútfullar af hlaupavörum, stoðvörum og vörum fyrir endur- heimt,“ segir Lýður sem hefur alla tíð lagt metnað í að bjóða upp á bestu fáanlegu vörurnar á markaðnum. „Allar vörurnar sem við bjóðum upp á hafa hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Brooks-skórnir henta frábærlega því þeir eru ekki bara góðir í hlaupin heldur eru þeir framleiddir á þann hátt að almenn fótaheilsa er sett í fyrsta sæti. Hlaupafötin okkar eru frá Fusion, Compressport og Brooks sem henta öllum sem stunda hlaup og einnig keppnisfólki í fremstu röð. Ég sætti mig ekki við það næstbesta því ég vil alltaf geta boðið bestu lausnirnar fyrir hvern og einn,“ segir Lýður. Ætluðu yfir Fimmvörðuháls í sumar Ingólfur Ingólfsson kírópraktor er dæmi um hæstánægðan viðskipta- vin Fætur toga, en hann fór með dóttur sína í göngugreiningu til fyrirtækisins í sumar eftir að hún hafði glímt við verki í fótleggjum. „Fjölskyldan byrjaði að æfa fyrir göngu yfir Fimmvörðuháls í sumar. Við töldum okkur vera vel í stakk búin til þess að takast á við verkefnið og hlökkuðum mikið til. Þegar gönguferðirnar fóru að lengjast þá fór dóttir mín að kvarta yfir verkjum í fótleggjunum. Verkirnir fóru versnandi eftir því sem gönguferðunum fjölgaði og við sáum fram á að hún gæti ómögulega komist alla leið yfir Fimmvörðuhálsinn næsta sumar. Ég gerði hreyfifærnipróf á Helgu og útilokaði möguleikann á því að verkirnir kæmu frá hryggnum eða mjaðmagrindinni. Við ákváðum að leita ráða hjá Fætur toga og sjá hvort þeir hefðu einhverja lausn fyrir okkur. Fætur Helgu Rakelar voru skoðaðir vandlega og göngu- greining framkvæmd. Í ljós kom að hana vantaði meiri stuðning undir tábergið, en það orsakaði verk sem leiddi í hælinn og framan á leggina. Þegar hún byrjaði að nota innleggin var árangurinn vonum framar. Helga getur gengið mun lengur og meira krefjandi leiðir án þess að verkja nokkuð í fæturna. Æfingarnar fram að þessu hafa gengið mjög vel og gangan yfir Fimmvörðuháls sumarið 2021 er aftur á dagskrá. Takk fyrir hjálpina,“ segir Ingólfur. Fætur toga er staðsett að Höfða- bakka 3, 110 Reykjavík, og í Kringl- unni, Heilsuhæð, 103 Reykjavík. Sími 557 7100. Skoðaðu úrvalið og pantaðu tíma í göngugreiningu á gongugreining.is Ég sætti mig ekki við það næstbesta því ég vil alltaf geta boðið bestu lausnirnar fyrir hvern og einn. Lýður Skarphéðinsson Þrautagangan verður að gleðigöngu Hjá fyrirtækinu Fætur toga starfar gífurlega reynslumikið fagfólk sem hefur síðastliðin tíu ár tekið yfir 60.000 Íslendinga í göngu- og hlaupagreiningu á höfuðborgarsvæðinu og um allt land. Lýður Skarphéðinsson, sérfræðingur í göngugreiningu og framkvæmda- stjóri Fætur toga, mælir með hlaupaskónum frá Brooks. MYNDIR/AÐSENDAR Ingólfur Ingólfsson kírópraktor þakkar Fætur toga fyrir að fjölskyldan geti farið Fimmvörðuhálsinn næsta sumar. „Takk fyrir hjálpina,“ segir hann. Elva Björk Sveinsdóttir er sérfræðingur í göngugreiningu hjá Fætur toga. Hún segir það besta við starfið vera að verða vitni að því þegar fólk sem hefur lengi glímt við verki, jafnvel árum saman, eignast nánast nýtt líf eftir að hafa komið í göngugreiningu. Margir tengi bakverki eða mjaðmaverk við ólag í fótum. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.