Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.12.2020, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 18.12.2020, Qupperneq 36
Mér hefur fundist vera stígandi í mínum leik og nú er kom- inn tími til að breyta til og fara inn í umhverfi þar sem ég hef möguleika að bæta mig enn frekar. Berglind Rós Ágústsdóttir Ég er ekki mesta sleggjan í boltanum þannig að ég treysti meira á leikskilninginn og að vinna með samherjum mínum. Ómar Ingi Magnússon FÓTBOLTI Berglind Rós Ágústsdóttir varð fyrr í þessari viku nýjasti atvinnumaður okkar Íslendinga í knattspyrnu kvenna en hún samdi þá við sænska úrvalsdeildarliðið Örebro. Berglind Rós varð þannig þriðji leikmaðurinn sem skrifar undir hjá liði í sænsku úrvalsdeildinni á skömmum tíma en áður hafði Hall- bera Guðný Gísladóttir gert samn- ing við AIK Solna og Hlín Eiríks- dóttir gengið til liðs við Piteå en þær voru báðar Valskonur. „Ég var með nokkur tilboð í hönd- unum en það sem heillaði mig við Örebro var hversu metnaðarfullur þjálfarinn og þeir sem starfa hjá félaginu eru. Bæði fyrir mína hönd, það er að bæta mig sem leikmann, og svo fyrir hönd liðsins,“ segir Berglind Rós í samtali við Frétta- blaðið. Hjá Örebro mun Berglind vinna með þjálfara sem er nýtekinn við liðinu en vill nota Íslendinginn í þeim stöðum sem Berglind kann best við sig í. „Þjálfarinn sem er nýtekinn við liðinu sér fyrir sér að ég muni spila bæði sem miðvörður og djúp á miðj- unni. Það eru þær stöður sem ég kann best við að spila og mér finnst heillandi að þeir vilji nota mig á þeim stöðum á vellinum.“ Berglind sem er 25 ára á að baki 87 leiki í efstu deild, flesta með Fylki eftir að hafa stigið fyrstu skrefin í meistaraflokki með Val. Þá lék hún með Aftureldingu eitt sumar. „Eftir síðasta sumar fannst mér vera kominn tími á nýja áskorun og mér fannst ég vera búin að ná mínu besta formi eftir að hafa jafnað mig almennilega á krossbandsslitunum sem ég lenti í fyrir fjórum árum. Mér hefur fundist verið stígandi í mínum leik og að nú sé kominn tími til að breyta til og fara inn í umhverfi þar sem ég hef möguleika á að bæta mig enn frekar. Þegar tækifærið gafst fannst mér rétt að stíga skrefið og einbeita mér að fullu að fótboltanum sem atvinnu- maður,“ segir Berglind sem hefur slitið krossband tvisvar sinnum á ferlinum. Á nýloknu keppnistímabili hafn- aði Örebro í sjöunda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar en Berglind Rós segir að metnaður félagsins sé að enda ofar á næstu leiktíð og verið sé að fá góða leikmenn til liðsins þessa dagana. Það sýni þann metnað í verki. „Örebro er að mörgu leyti svipað félag og Fylkir þar sem mér hefur liðið mjög vel síðustu árin. Þetta er fjölskylduklúbbur með góða aðstöðu þar sem vilji er til þess að gera betur en gert var á síðasta tímabili. Félagið vill hjálpa mér að ná markmiðum mínum sem eru að þróa áfram minn leik og tryggja mér sæti í landsliðinu,“ segir þessi öflugi leikmaður sem lék sinn fyrsta A-landsleik í vináttulandsleik gegn Skotlandi fyrr á þessu ári. Íþróttastjóri Örebro, Jonas Karl- berg, hafði orð á því þegar vista- skipti Berglindar voru staðfest að hún gæti tekið skref í átt að föstu sæti í íslenska landsliðinu með Örebro. „Fyrst og fremst er ég hins vegar með stefnuna á að gera vel fyrir Örebro og svo sjáum við bara hverju það skilar fyrir liðið mitt og varð- andi landsliðssæti.“ hjorvaro@frettabladid.is Hluti af markmiðinu að festa mig í sessi í landsliðshópnum Berglind Rós Ágústsdóttir sem verið hefur fyrirliði kvennaliðs Fylkis í knattspyrnu undanfarin ár skrif- aði nýverið undir samning við sænska úrvalsdeildarliðið Örebro. Berglind Rós segir að vilji félagsins til þess að bæta hana sem leikmann og gera vel á komandi keppnistímabili hafi hljómað afar spennandi. Berglind er spennt fyrir áskoruninni að spreyta sig sem atvinnumaður eftir góð ár í Fylki. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HANDBOLTI Magdeburg með Ómar Inga Magnússon og Gísla Þorgeir Kristjánsson innanborðs er að rétta úr kútnum í þýsku efstudeildinni í handbolta karla eftir kaf laskipta byrjun á yfirstandandi leiktíð. Ómar Ingi átti stórleik þegar liðið lagði Erlangen að velli í síðasta deildarleik liðsins í vikunni en hann skoraði ellefu mörk í leiknum. Ómar Ingi sem er að spila sinn fyrsta vetur hjá Magdeburg og í efstu deild í Þýskalandi er þar af leiðandi orðinn sjötti markahæsti leikmaður deildarinnar með 66 mörk. Magdeburg er eins og sakir standa í áttunda sæti deildarinnar með fjórtán stig, fimm stigum á eftir Alexander Petterson, Ými Erni Gíslasyni og samherjum þeirra hjá Rhein-Neckar Löwen og Flensburg sem eru á toppnum. „Við fórum illa af stað og náðum ekki að sýna gæðin sem búa í liðinu í fyrstu leikjunum. Eftir átta leiki vorum við með fjóra sigra og fjögur töp. Það voru allir sammála um það að við þyrftum að bæta leik okkar og þar var ég engin undantekning. Það tekur alltaf tíma að aðlagast nýju liði, þeim leikkerfum sem liðið spilar og staðsetningum í vörn og sókn. Það tók smá tíma að kynn- ast því hvernig leikmenn liðsins vilja spila en ég og liðið allt erum að finna taktinn. Það var alltaf stefnan að spila í efstu deild í Þýskalandi og standa mig vel þar og ég er mjög ánægður með að það sé að takast,“ segir Ómar Ingi í samtali við Frétta- blaðið um fyrstu mánuði sína í Þýskalandi. „Ég er ekki mesta sleggjan í bolt- anum þannig að ég treysti meira á leikskilninginn og að vinna með samherjum mínum. Af þeim sökum er það mikilvægt fyrir mig að ná góðum tengslum við þá leik- menn sem ég er að spila með. Það er allt að koma og mér finnst frábært að vera kominn í jafn sterkt lið og ég er í og leika með jafn góðum einstaklingum og ég er að gera þessa stundina. Þetta er erfið deild þar sem allir geta unnið alla en við stefnum á að blanda okkur í toppbaráttuna,“ segir þessi klóki leikmaður sem hefur auk þess að skora 66 mörk gefið 29 stoðsend- ingar. – hó Var alltaf stefnan að standa mig í efstu deild í Þýskalandi Ómar er að finna sig betur og betur í þýska boltanum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FÓTBOLTI Íslendingafélagið Al Arabi leikur í dag úrslitaleik í katörsku bikarkeppninni í knattspyrnu karla, Emir Cup, en þetta er í fyrsta skipti síðan árið 1994 sem Al Arabi kemst í úrslit þessarar keppni. Aron Einar Gunnarsson, fyrir- liði íslenska landsliðsins, skoraði annað marka Al Arabi þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitaleiknum. Al Arabi hefur unnið þessa keppni átta sinnum, síðast árið 1993. Síðasti titill félagsins kom í hús árið 1997. Heimir Hallgrímsson hefur stýrt Al Arabi síðan árið 2018 en undir lok síðasta árs framlengdi hann samning sinn við félagið til loka keppnistímabilsins á næsta ári. Freyr Alexandersson var nýverið ráðinn aðstoðarmaður Heimis en Bjarki Már Ólafsson hefur verið í þjálfarateymi liðsins í tvö ár. Heimir á nú möguleika á að landa sínum fyrsta titli í stjórnartíð sinni þegar Al Arabi mætir Al Sadd í úrslitum. Leikurinn hefst klukkan 15.00 að íslenskum tíma í dag. – hó Íslendingaliðið leikur til úrslita Heimir á hliðarlínunni. HANDBOLTI Nor ska kvennalands- liðið í handbolta, sem leikur undir stjórn Þóris Hergeirssonar, mun í kvöld spila við Danmörku í und- anúrslitum á Evrópumótinu í hand- bolta. Noregur fór nokkuð þægilega í gengum riðlakeppnina og milli- riðlana og er liðið það sigurstrang- legasta á mótinu. Þórir hafði það raunar á orði fyrr á mótinu að það gæti komið í bakið á liðinu þegar út í undanúrslitin væri komið að hafa ekki mætt sterkari andstæðingum. Norska liðið stefnir á sinn fjórða Evrópumeistaratitil undir stjórn Þóris en þetta verður í 12. skipti sem liðið leikur til verðlauna á stórmóti undir stjórn Selfyssingsins. – hó Fjórði EM-titill Þóris í sjónmáli 1 8 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R24 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.