Fréttablaðið - 18.12.2020, Síða 38
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ég hef því alla tíð haldið upp
á afmælið þegar mér sýnist,
fertugsafmælið í júlí og fimm-
tugsafmælið einu sinni í viku
allt árið.
Innilegar þakkir færum við öllum
þeim sem sýndu samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Dóru Maríu Ingólfsdóttur
Miðleiti 7,
áður Álfheimum 4.
Lilja Sigurðardóttir
Anna Sigurðardóttir Konráð Ingi Jónsson
Erna Sigurðardóttir Tonny Espersen
Gylfi Ingi Sigurðsson
Berglind Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kjartan Leifur Sigurðsson
Starrahólum 8, Reykjavík,
lést á heimili sínu, 13. desember.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Friðrika Rósa Sigurbjörnsdóttir
Jórunn Ingibjörg Kjartansdóttir Þorkell Gunnarsson
Sigurbjörn Kjartansson
Sigurður Ingi Kjartansson Sólveig Sigurðardóttir
Jens Pétur Kjartansson Harpa Óskarsdóttir
Íris Berglind Kjartansdóttir Júlíus Jónsson
Kjartan Örn Kjartansson Guðbjörg Kristín
Bárðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Kristín Jónsdóttir
Kópavogstúni 4,
áður að Bræðratungu 1,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
sunnudaginn 13. desember. Útför hennar fer fram frá
Kópavogskirkju þriðjudaginn 29. desember kl. 15.
Vegna sóttvarnareglna verður jarðarförin aðeins fyrir
nánustu aðstandendur en streymi verður frá athöfninni á
slóðinni utfor-kristinar-jonsdottur.is
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
minningargjafasjóð Sunnuhlíðar (sunnuhlid.is).
Gunnar Smári Þorsteinsson
Jón Bjarni Gunnarsson Elín Björt Grímsdóttir
Hrefna Gunnarsdóttir Kristján Björgvinsson
Ella Björg Rögnvaldsdóttir Arndís Pétursdóttir
Björgvin Smári Kristjánsson Iðunn Elva Ingibergsdóttir
Kristín Jónsdóttir Sverrir Már Bjarnason
Hrefna Björk Jónsdóttir Barði Freyr Þorsteinsson
Bryndís Helga Jónsdóttir Bjarki Steinn Aðalsteinsson
Gunnhildur Kristjánsdóttir
og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Ingibjörg J. Jónasdóttir
Bjarkarheiði 21,
Hveragerði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
sunnudaginn 13. desember.
Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju mánudaginn
21. desember kl. 14. Í ljósi aðstæðna verða aðeins
nánustu ættingjar viðstaddir.
Sturla S. Þórðarson Ingibjörg Jones
Herdís Þórðardóttir Sigurður Egilsson
Jónas Þór Þórðarson
Ingibjörg Erna Þórðardóttir Sveinn Guðmundsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Það er ómögulegt að verða sextug þegar ástandið í samfélaginu er eins og það er. Ég ætla því að vera 59 ára um óákveðinn tíma. Sennilega verður sumarpartí,“ segir
Björg Eva Erlendsdóttir glaðlega og
heldur áfram: „Mér finnst skammdegið
ekki henta fyrir afmælisveislu, það má
enginn vera að neinu rétt fyrir jólin. Ég
hef því alla tíð haldið upp á afmælið
þegar mér sýnist, fertugsafmælið í júlí
og fimmtugsafmælið einu sinni í viku
allt árið. Núna er manni sagt að hitta
helst ekki neinn og þá bara hlíti ég því.“
Vonar að norsku genin nýtist
Björg Eva er framkvæmdastjóri Vinstri
grænna og er að byrja á fjarfundi þegar
ég heyri í henni fyrst, svo ég prófa
nokkrum tímum seinna. Þá er hún
komin upp í Hreppa og bíður úti í bíl
eftir einhverjum úr sóttkví á æsku
stöðvum sínum að Hamarsheiði í gamla
Gnúpverjahreppi. Þar er nú frístunda
býli en hún segir föður sinn hafa verið
bónda þar og skeifnasmið þegar hún
var að alast upp – „og hann var Sjálf
stæðismaður,“ bætir hún við. „Ég ólst
upp bæði í hægri og vinstri pólitík, for
eldrar mínir voru ekki sammála í þeim
efnum. Mamma er norsk og vinstrisinn
uð og náði að snúa pabba til betri vegar
því hann endaði í Kvennalistanum!
Stundum fæ ég að heyra að ég sé norski,
níski framkvæmdastjórinn! En ég ber
virðingu fyrir því hvernig Norðmenn
umgangast peninga, þeir eru f linkari
í því en Íslendingar og ég vona að mín
norsku gen nýtist í að fara vel með fjár
muni VG.“
Spurð hvort hún hafi aldrei hugleitt
að setjast á þing fyrir f lokkinn, svarar
Björg Eva: „Nei, en ég vann í sextán ár
á Ríkisútvarpinu, meðal annars sem
þingfréttamaður og hef alltaf haft áhuga
á pólitík. Það skemmtilegasta við hana
er að berjast fyrir eigin hugsjónum en
þegar fólk er komið inn á þing, þarf það
að gera gott betur.“
Hundrað manna fjarfundur
Björg Eva segir starf sitt nú snúast minna
um pólitík en ætla mætti en það sé
áhugavert enda kynnist hún bæði fólki
og málefnum. „Það hafa orðið miklar
breytingar frá því ég byrjaði í upphafi
árs 2016. Þá voru kosningar á hverju ári
og f lokkurinn átti enga peninga. En nú
hefur verið friðsamlegt undanfarið og
fjármálin í betra horfi, enda fara þau
mikið eftir árangri og lög hafa verið sett
um meiri styrki til stjórnmálaflokka en
áður. Það er hollara fyrir lýðræðið en ef
stórfyrirtæki reka f lokka. Svo f leygir
tækinni fram og á þessu ári hefur hún
verið gjörnýtt. Við héldum nýlega
flokksráðsfund á netinu með um hund
rað manns, því fylgdi ákveðið f lækju
stig, við undirbjuggum hann á skrif
stofunni og þurftum að skrifa frekar
nákvæmt handrit. Landsfundur er svo
fyrirhugaður í mars og verður spenn
andi að sjá hvort um fjarfund verður að
ræða, hann verður þá enn stærri.“
Mikill ferðasirkus
Eins og fram hefur komið var Björg
Eva fréttamaður á Ríkisútvarpinu og
kveðst hafa notið þess. „Mér fannst
líka gaman að vera í Norðurlandaráði.
Fékk það starf örugglega af því ég hafði
verið fréttamaður í Noregi, bæði á NRK
og nokkrum blöðum. Norðurlandaráð
er mikill ferðasirkus og ég var að vinna
fyrir alla vinstri f lokkana á Norður
löndum með skemmtilegu fólki.“
gun@frettabladid.is
Fimmtíu og níu ára áfram
Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Vinstri grænna, fæddist þennan dag fyrir
60 árum. Þetta átti að verða afmælisviðtal en snerist upp í „ekkiafmælis“ spjall.
„Stundum fæ ég að heyra að ég sé norski, níski framkvæmdastjórinn,“ segir Björg Eva glaðlega. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
1 8 . D E S E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R26 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT