Fréttablaðið - 18.12.2020, Síða 49
Lægra verð – léttari innkaup
JÓLAINNKAUPIN
hafa aldrei verið eins leikandi létt.
Þú færð jólabækurnar á netto.is
Með því að nýta þér netverslun Nettó
sparar þú þér tíma í jóla amstrinu.
Nýttu tímann frekar í að lesa góða bók.
4.399 kr.
Útkall á ögurstundu
Útkallsbækur Óttars Sveinssonar
hafa á hverju ári frá 1994 verið
eitthvert vinsælasta lesefni
Íslendinga og þær hafa verið
gefnar út víða um heim.
Í þessum hörkuspennandi
bókum gleyma lesendur sér í
frásögnum þar sem höfundurinn
og söguhetjurnar sjálfar lýsa
sönnum atburðum úr íslenskum
raunveruleika.
3.999 kr.
Samskipti
Góð samskipti eru lykillinn
að velgengni og þau opna
fjölmargar dyr. Þau eru það
mikilvægasta sem við getum
tileinkað okkur og hafa áhrif á
alla þætti lífs okkar. Með færni
í samskiptum gerum við lífið
einfaldara og skemmtilegra,
fækkum árekstrum og
auðveldum okkur að kynnast
fólki og ná markmiðum okkar.
4.899 kr.
Siddi gull
Í þessari bók segir
Þistilfirðingurinn Sigmar Ó.
Maríusson – Siddi gull – frá
viðburðarríkri ævi sinni.
Ríflega tvítugur að aldri missti
hann báða fæturna í bílslysi á
Heiðarfjalli á Langanesi og hafði
þá ýmislegt dunið á honum áður
og átti enn eftir að gera.
8.499 kr.
Íslensku fuglarnir og
þjóðtrúin
Í þessari bók eru teknir fyrir
allir íslenskir, reglubundnir
varpfuglar í hérlendri og
erlendri þjóðtrú og sagt hverju
þeir tengdust.
Jafnframt er hér að finna vel
á þriðja hundrað mynda, sem
margar hverjar eru algjört
listaverk, auk útbreiðslukorts
hverrar tegundar fyrir sig.
2.499 kr.
Spegill fyrir
skuggabaldur
Í þessari bók skyggnist Ólína
Kjerúlf Þorvarðardóttir undir
blæjuna sem umlykur spillingu
og fyrirgreiðslupólitík á
Íslandi. Hún greinir frá reynslu
fólks sem orðið hefur fyrir
atvinnubanni og misbeitingu
ráðningarvalds.
4.599 kr.
Kórdrengur í
Kaupmannahöfn
Við kynnumst hörðum heimi
sönglistarinnar, áskorunum,
hamingju og sorg. Bókin
leiftrar af frásagnargleði og
dregur upp ljóslifandi mynd
af gömlu höfuðborginni
við Eyrarsund, stórfelldum
breytingum í þjóðfélaginu og
lífi Íslendinga þar.
4.449 kr.
Ellert
Ellert rekur hér lífshlaup
sitt í hispurslausri og
líflegri frásögn, allt frá
uppvaxtarárum á stóru heimili
í Vesturbænum fram til
dagsins í dag. Bókina prýðir
fjöldi mynda.
4.999 kr.
ISORTOQ – Stefán
hreindýrabóndi
Ævi Stefáns Hrafns
Magnússonar er ævintýri
líkust. Hann var alltaf í
sveitinni fyrir vestan á sumrin.
Hann vildi verða bóndi og á
unglingsárunum hafði hann
meiri áhuga á pólförum og
landkönnuðum heldur en
popptónlist.
2.399 kr.
Kindasögur II
Í öðru bindi Kindasagna eru
meðal annars rifjuð upp tildrög
þessara tilkynninga, sagt frá
afdrifum kinda í eldgosum og
sauðfjárhaldi í höfuðborginni,
vikið að framliðnum kindum,
forystukindum, stökkrollum og
karakúlfé, auk kinda í kvæðum
íslenskra skálda.
6.499 kr.
Sá stóri, sá missti og
sá landaði
Bók fyrir allt áhugafólk um
laxveiði, bæði byrjendur og
lengra komna.
Sigurður Héðinn, hinn
landsþekkti veiðimaður, fer
nákvæmlega yfir hvernig
stórlaxinn tekur fluguna og
skoðar líka veiðitækni og
veiðigræjur.
GLEÐILEG BÓKAJÓL!
Gildistími: 18.– 20. desember